Morgunblaðið - 02.10.2009, Qupperneq 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2009
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
ALÞINGI Íslendinga, 138. löggjaf-
arþingið, var sett í gær. Fyrstu
daga þingsins munu fjárlögin setja
mestan svip á þingstörfin ásamt
umræðum um Iceasave-samning-
inn, ef að líkum lætur. Þá bíða Al-
þingis ákveðin verkefni í umsókn-
arferlinu að Evrópusambandinu,
eins og forseti Alþingis nefndi í
ræðu sinni.
Venju samkvæmt hófst þingsetn-
ingarathöfnin með guðsþjónustu í
Dómkirkjunni, þar sem Jón Á.
Baldvinsson, víglubiskup á Hólum,
predikaði.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, setti þingið. Forseti nefndi í
upphafi ræðu sinnar að vonandi færi
senn að ljúka erfiðasta skeiði í síðari
tíma sögu okkar Íslendinga.
„Margir hjallar eru að baki, að-
gerðir sem urðu deiluefni og erfitt
reyndist að hrinda í framkvæmd,
sársaukafullar fyrir flesta, ekki að-
eins þá sem sýndu gáleysi eða
glannaskap heldur líka fjölmarga
sem gættu hófs, fóru með gát en
bera nú saklausir þungar byrðar
sem hóflaus sjálftaka og græðgi
annarra leggur þeim á herðar.
Enn glíma þúsundir heimila við
djúpstæðan vanda, atvinnuleysi,
greiðsluþrot. Óvissa, jafnvel ótti,
móta víða morgunstund og eigna-
missir, tekjutap og skuldabyrði
setja svip á daglegt líf. Deilan við
tvö nágrannalönd hefur ekki verið
til lykta leidd og aðrar þjóðir bíða
átekta með að efna gefin fyrirheit.
Allt er þetta þungbær reynsla.
Ábyrgð okkar sem vorum og erum
þjóðkjörnir fulltrúar ótvíræð og ör-
lagarík,“ sagði Ólafur Ragnar meðal
annars í ræðu sinni.
Áfram hélt forsetinn: „Rannsókn-
arnefndin sem Alþingi kaus mun
senn skila skýrslu; sérstakir sak-
sóknarar leggja fram ákærur og
dómstólar úrskurða um sök. Áfram
þarf þó þjóðin öll að glíma við afleið-
ingar ófaranna og mikilvægt að Al-
þingi veiti þá forystu sem kallað er
eftir, nái að leggja til hliðar flokka-
drætti þegar þjóðarheill krefst víð-
tækrar samstöðu.“
Í síðari hluta ræðunnar setti for-
setinn í bjartsýnisgírinn. Atvinnu-
leysi væri minna en óttast var, unga
fólkið hefði trú á landinu, hinir hefð-
bundnu atvinnuvegir færðu björg í
bú og ferðaþjónustan hefði á liðnu
sumri skilað meiri arði en oftast áð-
ur. Orðspor Íslands væri áfram gott
á mörgum sviðum og virðing borin
fyrir árangri okkar.
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti
Alþingis, sagði að mikil verkefni
biðu haustþingsins og hvatti ráð-
herra til að hraða sem mest fram-
lagningu þeirra mála, sem þeir
hygðust fá afgreidd.
Samskipti við þjóðþing ESB
Forseti Alþingis sagði m.a. að í
byrjun næsta árs myndu formlegar
viðræður væntanlega hefjast milli
Íslands og Evrópusambandsins um
umsókn Íslands um aðild að sam-
bandinu. Þó að þær viðræður séu af
hálfu Íslands á hendi ríkisstjórn-
arinnar bíði Alþingis eigi að síður
ákveðin verkefni í umsóknarferlinu.
Þá sé ljóst að þetta umsóknarferli
muni setja sterkan svip á alþjóða-
samstarf Alþingis á næstu miss-
erum. „Það kemur t.d. í hlut Alþing-
is að sinna samskiptum við
Evrópuþingið, bæði við forustu þess
og nefndir svo og þingflokkana á
Evrópuþinginu sem eru mikilvægir
valdahópar innan þingsins. Þá verð-
ur það Alþingis að sinna tengslum
við þjóðþing einstakra ríkja Evr-
ópusambandsins í þessu ferli,“ sagði
Ásta R. Jóhannesdóttir.
Morgunblaðið/Ómar
Einn á kvennabekk Kynjaskipting er nú jöfn í ríkisstjórninni en ekki er hægt að segja með sanni að skipting kynja á ráðherrabekkina sé jöfn. Össur
Skarphéðinsson situr einn meðal fimm kvenna og hinum megin við forsetastólinn situr nýr ráðherra, Álfheiður Ingadóttir, ein með fimm körlum.
Ábyrgðin er ótvíræð
Forseti Íslands sagði við þingsetningu að ábyrgð þjóðkjörinna fulltrúa væri
ótvíræð og örlagarík Hóflaus sjálftaka og græðgi hefur lagt þungar byrðar
Morgunblaðið/Ómar
Gengið til kirkju Forseti Íslands, biskupar, ráðherrar og forseti Alþingis
ganga til Dómkirkjunnar við upphaf þingsetningar síðdegis í gær.
BJARNI Bene-
diktsson, formað-
ur Sjálfstæðis-
flokksins, hefur
sent forsætisráð-
herra og fjár-
málaráðherra
bréf og óskar eft-
ir því að haldinn
verði fundur án
tafar þar sem
upplýst verði
hvaða áform ríkisstjórnin hefur uppi
varðandi lyktir Icesave-deilunnar.
„Ég óska eftir því að fundurinn
eigi sér stað nú þegar og alls ekki
eftir að fulltrúar ríkisstjórnarinnar
hafa undirritað samkomulag eða
viljayfirlýsingu um lausn deilunnar
við Bretland og Holland, hafi rík-
isstjórnin uppi áform um slíkt.
Þetta tel ég mikilvægt í ljósi þeirr-
ar atburðarásar sem í hönd fór eftir
að ríkisstjórnin staðfesti samkomu-
lag við Bretland og Holland án
stuðnings Alþingis. Einnig og ekki
síður er þetta mikilvægt í ljósi þess
að Alþingi Íslendinga hefur þegar
tekið ákvörðun um með hvaða hætti
Icesave-málið skuli til lykta leitt. Sú
ákvörðun hefur verið lögfest og gild-
ir sem lög í landinu.“
Vill fund
um Icesave
án tafar
Ákvörðun um Ice-
save fest í lögum
Bjarni
Benediktsson
ÞINGMENN
drógu í gær um
sæti í sal Alþing-
is. Eins og venju-
lega ríkti nokkur
spenna um það
hver hreppti sæti
númer 13, en þeir
sem það draga
hafa oftar en ekki
átt vísan frama í
þinginu. Magnús
Orri Schram, hinn ungi þingmaður
Samfylkingarinnar, dró fyrstur, og
upp kom talan 13.
Meðal þingmanna sem þarna hafa
setið eru Ásta R. Jóhannesdóttir,
Guðmundur Árni Stefánsson, Sólveig
Pétursdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, Kristján Möller, Katrín Júl-
íusdóttir og Jón Bjarnason, en þau
hafa öll gegnt ráðherraembættum.
Magnús Orri
dró sæti
númer 13
Magnús Orri
Schram
RÁÐHERRASKIPTI urðu á ríkis-
ráðsfundi á Bessastöðum í gærmorg-
un. Álfheiður Ingadóttir tók við
embætti heilbrigðisráðherra af Ög-
mundi Jónassyni, sem sagði af sér í
fyrradag. Formleg lyklaskipti urðu
síðdegis í gær, þegar Álfheiður tók
við lyklunum að ráðuneytinu úr
hendi Ögmundar.
„Ég er að taka við þessu embætti
á óvenjulegum tímum.“ sagði Álf-
heiður eftir að hafa tekið við lykl-
unum. „Ég er að taka við embættinu
í miðjum klíðum, sama daginn og
fjárlagafrumvarpið er lagt fram á Al-
þingi með miklum niðurskurði. Þetta
verður erfitt en það sagði enginn að
verkefni þessarar ríkisstjórnar yrðu
auðveld.“
Hún segir að stuðningsmenn rík-
isstjórnarinnar og raunar þjóðin öll
geri sér grein fyrir því að þetta verði
mjög erfiður vetur en ef þjóðinni
takist að fara í gegnum hann ættum
við geta séð fram á betri tíma; snúið
þróuninni við úr vörn í sókn.
Ákvörðun um að Álfheiður tæki
við sem heilbrigðisráðherra var tek-
in á þingflokksfundi Vinstri grænna í
fyrrinótt. Álfheiður segir að það hafi
komið flatt upp á hana, hún hafi alls
ekki átt von á því. Hún hafi engan
umhugsunartíma fengið.
Álfheiður segir að það sér alltaf
ögrandi að taka við nýju verkefni og
hún sé alveg tilbúin til þess. „En ég
neita því ekki að þetta verður ekki
auðvelt.“
Álfheiður ætlar að hefjast handa
strax í dag. Hennar fyrsta verkefni
verður að eiga fundi með starfsfólki
ráðuneytisins.
„Þetta er gríðarlega stórt ráðu-
neyti með mjög öflugt starfslið. Ég
er svo heppinn að þekkja þarna
nokkra öfluga einstaklinga og á eftir
að kynnast hinum,“ segir nýbakaður
heilbrigðisráðherra. sisi@mbl.is
„Þetta verður ekki auðvelt“
Álfheiður Ingadóttir tók við embætti
heilbrigðisráðherra af Ögmundi
Morgunblaðið/Ómar
Lyklaskipti Álfheiður tekur við lyklunum úr hendi Ögmundar Jónassonar.
Álfheiður Ingadóttir er 20.
konan sem gegnir ráðherra-
embætti á Íslandi. Auður Auð-
uns varð fyrst kvenna ráðherra
er hún tók við embætti dóms-
málaráðherra í ráðuneyti Jó-
hanns Hafstein 10. október ár-
ið 1970.
Þá verða þau tímamót með
ráðherraskiptunum að kynja-
skipting í ríkisstjórninni verður
jöfn, 6 konur og 6 karlar.
Kynjaskipting var jöfn í fyrsta
ráðuneyti Jóhönnu Sigurð-
ardóttur, sem tók við í febrúar
s.l. Hins vegar varð skiptingin
7 karlar og 5 konur í öðru
ráðuneyti Jóhönnu, sem hún
myndaði eftir kosningarnar í
vor.
Næsti kvenráðherrann var
Ragnhildur Helgadóttir, sem
varð menntamálaráðherra í
fyrsta ráðuneyti Steingríms
Hermannssonar 1983. Jóhanna
Sigurðardóttir varð sú þriðja í
röðinni, er hún settist í stól fé-
lagsmálaráðherra í öðru ráðu-
neyti Steingríms 1987.
Kynjaskipting jöfn