Morgunblaðið - 02.10.2009, Side 20

Morgunblaðið - 02.10.2009, Side 20
20 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2009 Þetta helst ... ● Actavis gerir ráð fyrir að selja hjartalyfið Ator- vastatin Magn- esium fyrir 30 milljónir evra eða tæpa 5,5 milljarða króna í ár sam- kvæmt upplýs- ingum frá Hjördísi Árnadóttur sviðs- stjóra ytri samskipta fyrirtækisins. Er það heildarsala allra sölusviða á fimmtán mörkuðum. Í gær tilkynnti Actavis að flogið hefði verið með þrjátíu milljón töflur af sama hjartalyfi til Spánar. Það er verðmætasti lyfjafarmur sem fluttur hefur verið frá fyrirtækinu í einni sendingu í meira en fimm ár. Pill- urnar voru framleiddar í verksmiðju Actavis í Hafnarfirði. bjorgvin@mbl.is Actavis selur hjartalyf fyrir 5,5 milljarða króna Hjördís Árnadóttir ● Gengisvísitalan hækkaði um 0,7% í gær og veiktist krónan sem því nemur. Kostar evran þá 182 krónur, pundið rétt tæpar 200 krónur og Bandaríkjadalur 125 krónur. Lítil velta var með skuldabréf í Kaup- höllinni eða rétt 3,2 milljarðar króna. Pundið kostaði í lok dags tæpar 200 krónur var fyrir embætti sérstaks sak- sóknara. Við skýrslugerðina ein- beitti franski endurskoðandinn sér að því að bera framsett virði eigna í árs- og árshlutareikningum bank- anna fyrir bankahrun saman við mat skilanefnda þeirra á sömu eignum. Þar skeikar afar miklu og snýst rannsókn sérstaks saksókn- ara um það hvort stjórnendur Kaupþings, Landsbanka og Glitnis, ásamt endurskoðendum bankanna, hafi birt rangar upplýsingar um stöðu þeirra til að fela raunveru- Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is GÖMLU viðskiptabankarnir þrír, Kaupþing, Glitnir og Landsbanki, eru grunaðir um að hafa vísvitandi birt rangar upplýsingar um virði eigna sinna í skýrslum til mark- aðarins, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Þeir eru grunaðir um að hafa sýnt virðið mun hærra en það raunverulega var til að dylja þá stöðu sem þeir voru komnir í. Vegna þessara grunsemda fram- kvæmdi embætti sérstaks saksókn- ara húsleitir í höfuðstöðvum endur- skoðunarskrifstofanna KPMG og PriceWaterhouseCoopers (PWC) í gærmorgun. Alls tóku 22 þátt í að- gerðunum sem hófust klukkan tíu og stóðu fram eftir degi. Skýrsla erlends endurskoðanda Heimildir Morgunblaðsins herma að húsleitirnar hafi verið fram- kvæmdar á grundvelli skýrslu fransks endurskoðanda sem unnin legt ástand þeirra. Ástæðan fyrir því að farið var inn í KPMG og PWC en ekki önnur endurskoð- unarfyrirtæki er sú að þessi tvö sáu um endurskoðun reikninga gömlu viðskiptabankanna þriggja. PWC sá um endurskoðun fyrir Landsbankann, og reyndar Glitni fram til ársins 2005, en KPMG end- urskoðaði fyrir Kaupþing og Glitni. Þess utan var verið að leggja hald á gögn vegna annarra mála sem eru í rannsókn hjá sérstökum sak- sóknara, meðal annars mála sem tengjast meintri markaðs- misnotkun og sýndarviðskiptum með hlutabréf. Komu vegna Evu Joly Sex erlendir sérfræðingar, í tveimur þriggja manna hópum, á sviði endurskoðunar aðstoðuðu við húsleitirnar í gær. Annar hópurinn er franskur og fór hann inn í KPMG. Hinn hópurinn var sam- ansettur af þremur norskum end- urskoðendum og leitaði hjá PWC. Embætti sérstaks saksóknara komst í kynni við endurskoðend- urna í gegnum Evu Joly og þeir starfa allir samkvæmt samningi við embættið. Þessir sömu endurskoðendur munu vinna áfram úr þeim upplýs- ingum sem lagt var hald á í gær þar sem ekki ríkir nægjanlegt traust til neinna íslenskra endur- skoðenda til að inna þá vinnu af hendi vegna tengsla þeirra flestra við þau fyrirtæki sem verið er að rannsaka. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er þáttur endurskoð- enda í bankahruninu einnig undir í vinnu rannsóknarnefndar Alþingis, en hún hefur meðal annars fengið Sigurð Þórðarson, fyrrum ríkisend- urskoðanda, til starfa vegna þessa. Bankarnir taldir hafa fegrað efnahagsreikninga Morgunblaðið/Sverrir Húsleitir Á þriðja tug manna framkvæmdu húsleit hjá KPMG og Price- WaterhouseCoopers í gær. Fyrirtækin voru endurskoðendur bankanna. Erlendir sérfræð- ingar munu koma að rannsókninni FRÉTTASKÝRING Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is TELJI Seðlabankinn nú hagkvæmt að sækja allt að sextíu milljarða króna í aukið lánsfé fyrir hönd rík- issjóðs gefur það vísbendingar um að vextir fari ekki lækkandi. Annars væri hagstæðara fyrir ríkissjóð að fjármagna hallarekstur og gjald- daga ríkisbréfa á næsta ári ef vextir yrðu lækkaðir, eins Jóhanna Sigurð- ardóttir hefur talað fyrir. Lánasýslan tilkynnti síðastliðinn þriðjudag að til stæði að gefa út rík- isskuldabréf fyrir allt að sextíu milljarða til að leggja inn á reikning ríkissjóðs í Seðlabankanum. „Að einhverju leyti má lesa útúr þessu væntingar um þróun stýri- vaxta í náinni framtíð. Það hefur klárlega verið harðlínutónn í Seðla- bankanum varðandi stýrivextina. Að einhverju leyti endurspeglast þær væntingar í því að ákveðið er að fara í þessa útgáfu núna með þeim fyr- irvörum að markaðsaðstæður verði hagstæðar,“ bendir Ingólfur Bender forstöðumaður Greiningar Íslands- banka á. Stóraukin kostnaður Gísli Hauksson, framkvæmda- stjóri GAM Management, hélt því fram í viðskiptablaði Morgunblaðs- ins í gær að ákvörðun Lánasýsl- unnar muni kosta skattgreiðendur marga milljarða í formi hærri vaxta- kostnaðar ríkissjóðs. „Þótt látið sé að því liggja að að- gerðin sé fegrunaraðgerð á sviði rík- isfjármála er allt útlit fyrir að hún sé þvert á móti hugsuð til að herða á vaxtastiginu í landinu. Aðgerðin lyktar af því að hér sé verið að draga lausafé úr umferð til að gera stýri- vexti Seðlabankans áhrifameiri og lyfta jafnframt upp langtímavöxt- um,“ segir í markaðspunktum grein- ingardeildar Kaupþings. Markmið að hækka vexti Með öðrum orðum er Seðlabank- inn að reyna að fylgja eftir orðum seðlabankastjóra við síðustu vaxta- ákvörðun að toga þurfi vexti á Ís- landi upp. Hann sagði innlánsvexti til dæmis of langt frá virkum vöxt- um Seðlabankans. Til þess að ná þessum mark- miðum Seðlabankans, sem margir viðmælendur Morgunblaðsins segja gert að kröfu Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins, er ríkissjóður látinn sækja sér milljarða króna á mark- aðinn í raun án sýnilegs tilgangs. Með þessari aðgerð tekur rík- isstjórnin þátt í því að halda vöxtum uppi sem er augljóslega í andstöðu við vilja ráðherra. Þeir hafa talað fyrir því að vextir lækki og sagt há- vaxtastefnuna tefja uppbyggingu at- vinnulífsins. „Ef þetta gengur eftir þá verður gríðarlegu magni af ríkisskuldabréf- um dælt á markaðinn á síðasta árs- fjórðungi. Til að setja þessa tölu í samhengi þá eru iðgjöld lífeyr- issjóða umfram útborgun um 80-90 milljarðar á ári,“ segir Snorri Jak- obsson hagfræðingur hjá IFS ráð- gjöf. Vaxtastig í landinu hert þvert á vilja Þversögn milli orða og athafna ríkissjóðs Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is ÁÆTLAÐ markaðsvirði eigna skilanefndar Kaupþings nam 1.705 milljörðum króna um mitt þetta ár sam- kvæmt efnahagsreikningi sem gerður var opinber í gær. Eignirnar hafa aukist um rúma 113 milljarða króna frá síðustu áramótum. Alls eru um 878 milljarðar króna af þessum eignum veðsettir og forgangskröfur nema um 53 milljörðum króna. Þegar búið er að draga þær frá nema hreinar eignir skilanefndarinnar 774,5 milljörðum króna. Ljóst er á efnahagsreikningnum að verðmat skila- nefndarinnar á eignum sínum, sérstaklega lánum til viðskiptavina, hækkaði töluvert á fyrri hluta ársins 2009 en áætlað virði þeirra eigna sem eru ekki veðsett- ar né forgangskröfur hækkaði um 16% á tímabilinu. Greiðslur af lánum miklar Þá hafa uppgreiðslur lána, greiðslur inn á höfuðstól þeirra og vaxtagreiðslur af þeim skilað um 102 millj- örðum króna til skilanefndarinnar frá 21. október síð- astliðnum. Þar fyrir utan fengust 27,6 milljarðar króna fyrir sölu á dótturfélagi bankans í Svíþjóð. Virði eigna Kaupþings eykst Hækkun Steinar Guðgeirsson er formaður skilanefndar Kaupþings. Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is ÞJÓÐHAGSSPÁ sem kynnt var í gær gerir ráð fyrir að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann rýrni um 10,4 prósent á þessu ári og 11,4 prósent á árinu 2010 og verður hann þá svipaður kaupmætti ár- anna 1999-2000. „Við erum að reikna með um- talsverðum samdrætti í landsfram- leiðslu sem er samt minni sam- dráttur en kynntur var í vor. Þetta endurspeglar gífurlegan samdrátt í innlendri eftirspurn en það mild- ar höggið að það er mikill viðsnún- ingur í utanríkisviðskiptum,“ sagði Þorsteinn Þorgeirsson, skrifstofu- stjóri efnahagsskrifstofu fjármála- ráðuneytisins í gær þegar hann kynnti spána fyrir árin 2009-2014. 8,4 prósent samdráttur Áætlað er að samdráttur í lands- framleiðslu nemi 8,4 prósentum á árinu 2009 sem endurspeglar fimmtungslækkun innlendrar eft- irspurnar. Árið 2010 mun einkenn- ast af atvinnuleysi, og neikvæðum hagvexti. Jákvæðu hliðarnar í spánni eru að viðskiptajöfnuður verður jákvæður og að samdráttur í hagvexti verður mun minni á næsta ári en í ár. Áætlað er að halli verði á rík- issjóði sem nemi 17,2 prósentum af landsframleiðslu á þessu ári. Efna- hagsáætlun ríkisstjórnarinnar og AGS gerir ráð fyrir miklu aðhaldi á komandi árum svo að ríkissjóður skili afgangi árið 2013 og að lækk- un skulda ríkissjóðs verði hraðað. Gert er ráð fyrir að fjárfesting hins opinbera dragist saman á yf- irstandandi ári vegna strangra að- haldsaðgerða ríkissjóðs og sveitar- félaga.Verður samdrátturinn 32,5 prósent. Áætlað er að atvinnuleysi verði að meðaltali 8,6 prósent af vinnu- afli á þessu ári og að það nái 10,6 prósentum árið 2010 en lækki síð- an í 9,0 prósent árið 2011. Fram kom í máli Þorgeirs í gær að út- lendingum á vinnumarkaði myndi fækka um tvö þúsund manns á þessu ári og Íslendingum um rúm- lega þúsund. Krónan veikist enn meira Þjóðhagsspáin gerir ráð fyrir að krónan veikist um 4,5 prósent á næsta ári. Margir óvissuþættir eru í spánni. M.a. afnám gjaldeyris- hafta, Icesave-málið og lánafyrir- greiðsla AGS, svo aðeins fátt eitt sé nefnt. 2010 mun einkennast af atvinnuleysi og neikvæðum hagvexti Kaupmáttur rýrnar og við förum tíu ár aftur í tímann Morgunblaðið/Heiðar Aftur til fortíðar Kaupmáttur Ís- lendinga mun skerðast um 11,4%.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.