Morgunblaðið - 02.10.2009, Blaðsíða 43
Menning 43FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2009
Morgunblaðið/Kristinn
Lýðveldið við lækinn Pólitísk verk, húmorísk verk og ljóðræn verk; allskonar verk sem kveikja ýmsar kenndir og
hugmyndir eru sýnd á Álafossi. „Þetta er táknrænt fyrir ástandið sem við lifum,“ segir Bryndís Jónsdóttir.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
ÞAR sem starfsmenn ullarverk-
smiðja Álafoss snæddu hádegisverð á
árum áður, í Þrúðvangi við Álafoss,
hefur nú risið nýtt lýðveldi; Lýðveld-
ið við lækinn. Lýðveldið er í raun
myndlistarsýning; samstarfsverkefni
átta myndlistarkvenna og Bryndís
Jónsdóttir er talsmaður þeirra. „Ein
úr hópnum, Ólöf Oddgeirsdóttir, býr
í Þrúðvangi. Fyrir fimm árum kvikn-
aði hjá henni löngun að bjóða nokkr-
um myndlistarkonum að sýna með
sér, þar sem hún var búin að gera
salinn upp. Við kölluðum sýninguna
Lýðveldið Ísland, en þá voru 60 ár frá
stofnun lýðveldisins. Sýningin bar
sterkan keim af hugmyndum okkar
um stöðu lýðveldisins, um náttúruna
og landið. Þá gerði ég gjörning við
húsið sem byggt er yfir ána, hellti
málningu í fánalitunum út í ána, sem
bjó til úr þeim mjög falleg mynstur
og bar með sér.“
Tíminn leið og Bryndís var orðin
óþreyjufull að halda samstarfinu
áfram. Tækifærið kom á þessu ári og
listamennirnir ákváðu að gera eitt-
hvað skemmtilegt. Þetta „skemmti-
lega“ varð að stóru verkefni, með
sýningum í þremur landshlutum sem
allar voru byggðar á lýðveld-
ishugmyndinni. „Ég ákvað að bjóða
þeim í hús mitt í Reykjahlíð í Mý-
vatnssveit og fór að leita að sýning-
arstað. Ég fann hlöðu sem var tóm og
lá vel við. Þar sýndum við í sum-
arbyrjun, Lýðveldið við vatnið, og
vorum líka með örsýningu í Reykja-
hlíðarkirkju.
Hlaðan var full af áburðarpokum
þegar við mættum en þegar búið var
að fjarlægja þá og við byrjaðar að
hengja upp þá var það eins og við
manninn mælt að þar spratt upp
þessi dásamlega sýning þar sem
veggirnir og umhverfið spiluðu sér-
staklega skemmtilega með verk-
unum. Þarna voru ljósmyndir, teikn-
ingar, málverk, konsept-verk,
draumagildrur og fleira og sýningin
varð mjög fjölbreytt en ólík því sem
við eigum að venjast úr uppstríluðum
sýningarsölum. Hlíf Ásgrímsdóttir
bakaði einstakan gjörning í hlöðunni;
rauðar og bláar lýðveldisvöfflur
skreyttar með hvítri rjómarönd.“
Annað Lýðveldi á Ströndum
Frá Mývatni fóru konurnar norður
í Ingólfsfjörð á Ströndum, þar sem
Hildur Margrétardóttir gat hýst
hópinn í gamalli síldarverbúð. „Þar
settum við upp sýningu sem varð allt
öðru vísi en sú í hlöðunni, fyrst og
fremst vegna þess að umhverfið var
allt öðru vísi.“ Bryndís segir að á sýn-
ingunni á Ströndum, sem fékk heitið
Lýðveldið við fjörðinn, hafi verið ör-
tröð af fólki. „Það komu held ég allir
ábúendur úr nærliggjandi fjörðum,
sumarhúsafólk, gönguhópar og fleiri.
Við ákváðum að loka hringnum og
sýna aftur á Álafossi, og þar erum við
nú.“
Sýningin á Álafossi hefur að sögn
Bryndísar að geyma bæði pólitísk
verk, húmorísk verk og ljóðræn verk
– allskonar verk sem kveiki ýmsar
kenndir og hugmyndir. „Sýning hef-
ur tekið breytingum frá einum stað
til annars og við sýnum ekki endilega
sömu verkin. Ólöf málar fyrstu ís-
lensku fjallkonumyndina yfir sitt eig-
ið málverk sem hún gerði af gömlum
íslenskum dúkamunstrum. Anna Jóa
sýnir ljósmyndir sem hún kallar
Vallamál, en þær eru annars vegar af
Þingvöllum og hins vegar af Aust-
urvelli í búsáhaldabyltingunni. Hild-
ur sýnir draumagildrur fyrir mar-
traðir Íslendinga og hengir í þær
þorskhausa og aðra táknræna hluti.
Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá
sýnir vatnslitaverk sem hún kallar
Vötn, en það er unnið út frá minningu
hennar um það þegar hún flaug í
fyrsta sinn yfir Ísland og sá vötnin á
Arnarvatnsheiði.
Þjóð á brauðfótum
Ég sýni ljósmyndaröð sem ég kalla
Þjóð á brauðfótum, og það er mín út-
færsla á ástandi þjóðarinnar. Guð-
Átta myndlistarmenn ljúka sýningaþrennu byggðri á hugmyndinni um lýðveldið með sýningu á Álafossi
Pólitískt og ljóðrænt í Lýðveldinu við lækinn
GUÐMUNDUR Eggerts-
son, sem kallaður er faðir
erfðafræðinnar á Íslandi,
heldur erindi um uppruna
lífsins í stofu 132 í Öskju á
morgun kl. 13 í tilefni af 200
ára afmæli Darwins. Erind-
ið er öllum opið. Líf á jörð-
inni er allt af sömu rót, en
stærstu spurningunni er
ósvarað. Hvernig varð lífið
til? Kviknaði líf á jörðinni,
einhvern tímann aftur í grárri forneskju, eða
kemur það frá öðrum hnöttum? Guðmundur
hefur rýnt í margar ólíkar tilgátur, tilraunir og
röksemdir um tilurð lífsins. darwin.hi.is.
Vísindi
Guðmundur ræðir
upphaf lífs á jörðu
Guðmundur
Eggertsson
Á SÝNINGU sem opnuð
verður í Listasal Mosfells-
bæjar á morgun sýnir
Steingrímur Eyfjörð Krist-
mundsson Orgone-boxið.
Það er smíðað eftir teikn-
ingum Wilhelms Reich sem
var austurrísk-amerískur
sálgreinandi og þróaði Or-
gone-boxið til að safna or-
gone sem hann taldi grund-
vallarlífsorku alheimsins. Á
sýningunni verða einnig teikningar eftir Stein-
grím en gestir eru hvattir til að taka þátt í sýn-
ingunni með því að setjast inn í Orgone-boxið
og skrá reynsluna af dvölinni þar.
Myndlist
Býður gestum í
Orgone-boxið
Orgone-box
Steingríms
ÍRSK menningarhátíð hefst í Kópavogi í dag. Þrjár sýn-
ingar verða opnaðar í Gerðarsafni; sýning á kúrrökkum,
skinnbátum frá vesturströnd Írlands, og sýningin Aftur
heim til Írlands, þar sem sýnd eru veggspjöld frá þriðja
fjórðungi síðustu aldar sem ætlað var að laða gesti á
þekkta írska ferðamannastaði. Þau sýna írskar stað-
almyndir svo sem fagurt fjallalandslag, hús með stráþök-
um, rústir, hringturna og keltneska krossa. Þriðja sýn-
ingin heitir Opinberun. 29 þekktum listamönnum af
ýmsu þjóðerni var boðið að gera grafíkverk sem skyldu
sækja innblástur í listaverkaeign Listasafns Írlands.
Á morgun kl. 17 heldur írski píanóleikarinn John
O’Connor tónleika í Salnum, og á föstudag eftir viku,
dansar Ragús danshópurinn írska dansa á sama stað.
Írland í Kópavoginum
Morgunbalðið/RAX
UM þessar mundir eru 150
ár frá fæðingu norska rit-
höfundarins Knut Hamsun,
en bækur hans hafa verið
ákaflega vinsælar á Íslandi.
Í Noregi hefur Hamsun
verið umdeildur og varðar
afstaðan til hans öll meg-
insvið í tilveru okkar; póli-
tík, siðfræði, fegurð og sam-
kennd, svo nokkuð sé nefnt.
Málþing um Hamsun verð-
ur haldið á sunnudag í Norræna húsinu, en á
morgun verða sýndar þar kvikmyndir sem
gerðar hafa verið eftir bókum hans, Gróður
Jarðar kl. 15 og Pan kl. 17.
Bókmenntir
Hamsun-hátíð í
Norræna húsinu
Knut
Hamsun
MENNINGAR-
hátíðin Regnbog-
inn hefst í Vík í
Mýrdal í dag og
stendur yfir
helgina. Meðal at-
riða á dagskrá
Regnbogans er kórakeppni, með þátttöku
fjölda kóra, en sá besti þeirra, að mati dóm-
nefndar, hreppir Regnbogastjörnuna, en verð-
launin, 100 þúsund krónur, renna til Einstakra
barna. Á morgun verður Regnbogamarkaður í
bænum þar sem hægt er að kaupa ýmiss konar
listmuni, handverk og fleira og í hátíðardag-
skrá um kvöldið verða leiklist, myndlist og
söngur í öndvegi.
Listir
Regnboginn rís
yfir Vík í Mýrdal
Frá Vík í Mýrdal
ÞÆR Hrafnhildur Hagalín leikskáld
og Eva María Jónsdóttir sjónvarps-
kona hafa hvor í sínu lagi unnið að
nýjum verkum undanfarið sem eiga
það sameiginlegt að þar hafa þær
verið samvistum við nokkra okkar
elstu og ástsælustu leikara. Verk-
efnin verða opinberuð á sunnudag,
því klukkan 14 hefst flutningur á
leikritaflokknum Einförum eftir
Hrafnildi í Útvarpsleikhúsinu á Rás
eitt. Um kvöldið hefst ný þáttaröð
Evu Maríu og Hauks Haukssonar í
sjónvarpinu sem kallast á við leikrit
Hrafnhildar. Sjónvarpsþættirnir
heita Persónur og leikendur og eru
einskonar portrett af leikurum, þar
sem Eva María heimsækir þá og tal-
ar við þá um starfið og lífið.
Leikararnir eru Erlingur Gísla-
son, Herdís Þorvaldsdóttir, Bryndís
Pétursdóttir, Steindór Hjörleifsson
og Margrét Ólafsdóttir, Árni
Tryggvason og Róbert Arnfinnsson.
Brot úr mörgum þeirra verka, sem
leikararnir hafa unnið við, verða
sýnd í þættinum.
Leikritin verða send út á rás eitt
kl. 14 næstu sunnudaga, en á eftir
flutningi hvers verks verður fluttur
sérstakur útvarpsþáttur sem ber
heitið Í aðalhlutverki. Þar verða
flutt ýmis hljóðbrot úr verkum sem
viðkomandi aðalleikarar hverju sinni
hafa tekið þátt í á löngum ferli sínum
í Útvarpsleikhúsinu. Umsjón með
þáttunum hefur Viðar Eggertsson.
Einfarar og Per-
sónur og leikendur
Hrafnhildur
Hagalín
Eva María
Jónsdóttir
Þær sem sýna eru Anna Jóa,
Bryndís Jónsdóttir, Guðbjörg
Lind Jónsdóttir, Hildur Mar-
grétardóttir, Hlíf Ásgrímsdóttir,
Kristín Geirsdóttir, Kristín Jóns-
dóttir frá Munkaþverá og Ólöf
Oddgeirsdóttir.
Sýningin er opin alla daga frá
klukkan 14-18 til 11. október.
Liðsmenn Lýðveld-
isins við lækinn
björg Lind sýnir meðal annars minn-
ingasafn, undirskálar með leifum af
kaffi. Þetta eru minningar um ósýni-
legar sögur, eins og fólk hafi staðið
upp og gengið út. Kristín Geirsdóttir
spilar með liti umhverfis og náttúru
og spáir í litrænt gildi sýningarstað-
anna. Hlíf og Ólöf sýna vídeóverk. Hlíf
safnaði plasti – hún er eins og gull-
grafari og finnur plast á ólíklegustu
stöðum í náttúrunni en Ólöf tók mynd-
ina og klippti. Innst í herbergi sýni ég
vídeó sem ég kalla Holskeflu, þar sem
sjórinn fellur yfir landið úr mörgum
áttum í holskeflum og kaffærir það
næstum því. Þetta er táknrænt fyrir
ástandið sem við lifum og holskefl-
urnar verða eflaust fleiri.“