Morgunblaðið - 02.10.2009, Page 47

Morgunblaðið - 02.10.2009, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2009 Yfir skjáinn renna myndir í fögrum lit-um. KodaChrome. Við erum stödd áfenjasvæði í suðurríkjum Bandaríkj- anna. Litirnir minna á ljósmyndir sem sólin hefur skinið á of lengi, sumir þeirra að hverfa en sá blái lifir lengst. Tveir naktir kvenlík- amar þjóta hjá, filman er rispuð og götótt. Hrörleg hús í ónefndum bæ birtast, þeldökk- ar gospelsöngkonur, sveitakrá sem þarf að mála, svart/hvítar fréttamyndir af átökum mótmælenda og lögreglu, kirkjugarður úr fókus. Það er engu líkara en að filman sé að bráðna í hitasvækjunni. Fönguleg kona í æs- andi undirfötum otar rassinum að skjánum, eiturslanga ræðst til atlögu, bílhræ leynist í fenjagróðri. Ungur drengur horfir saklaus- um, spyrjandi augum í myndavélina, íklædd- ur Ku Kux Klan-búningi. Kátir drengir troða í sig jarðarberjum, verða berjarauðir í fram- an líkt og varirnar á þeim hafi sprungið. Filman bráðnar, kynæsandi kona á nærfötum liggur á rúmi í myrkvuðu herbergi, dauð rotta á vegi. Prestur stekkur hæð sína í loft upp, fólk eðlar sig leiftursnöggt, hræ af ref er étið upp til agna af hundruðum maðka. Reykur smýgur inn um blóðrauðar varir, skjárinn flýtur í blóði. Upp úr því rísa tvö orð: True Blood. Raunverulegt blóð. Und- ir ómar kúrekaseiður, „Bad Things“. Söngvarinn Jace Everett segist ætla að gera eitthvað ljótt. Eitthvað uggvænlegt er í uppsiglingu.    Hér er ekki einkennilegt ljóð eftir und-irritaðan á ferð heldur lýsing á mögnuðum inngangi vampíruþáttanna True Blood, enn einnar stórafurðar HBO- sjónvarpsstöðvarinnar. Þáttaraðirnar eru orðnar tvær og sú þriðja á leiðinni. True Blood eru einkennilegir þættir. Líkt og blóðsugur búa þeir yfir sérstöku aðdrátt- arafli. Undirritaður hefur nú horft á fimm þætti úr fyrstu þáttaröð og forvitnin búin að ná á honum tökum. Kynþokkinn er keyrður í botn, aðalleikararnir eru ungir og föngulegir, óseðjandi á allan mögu- legan hátt og yfirborðskenndir. Sögusvið- ið er smábærinn Bon Temps í Louisiana. Þar ætlar sumarhitinn allt að drepa og vöðvastælt ungmenni svolgra í sig bjór, böðuð í svita. Vampírur búa meðal manna í þáttunum og eru lítið fyrir að blanda geði við mannkynið enda fordómarnir miklir í garð hinna lifandi dauðu. Minnir nokkuð á ofsókn- ir hvítra á hendur þeldökkum í suðurríkj- unum um aldabil. Vampírurnar sækja sína bari, lifa þar í synd og fá sér bita af mann- eskju af og til. Blóðið úr ungum og óspjöll- uðum meyjum og sveinum er eftirsótt.    Það merkilega við True Blood er að þó svoað þættirnir fjalli um ósköp lítið og séu í raun ekkert annað en enn ein vampíru- fantasían, hálfgerð froða, þá halda þeir manni við efnið. Vampírufantasíur eru alltaf heillandi, ekki síst þegar þær eru í fallegum umbúðum. Þetta daður við dauðann og hug- myndin um ofurmannlegan styrk. Blóð, of- beldi, kynlíf og fallegt fólk, framleiðandinn Alan Ball veit hvað selst. Skellum svo smá- morðgátu inn í og fólk heldur áfram aðhorfa. Brauð og leikar. En er það ekkert áhyggju- efni að áhorfendur á borð við þann sem hér skrifar sætti sig við innihaldslítið sjónvarps- efni? Dáist að umbúðunum? Nei, líkt og hver önnur sumarmynd er afþreying bara af- þreying, henni er ekki ætlað að rista djúpt. Herslumuninn vantar vissulega upp á að True Blood geti talist merkilegir sjónvarps- þættir, menn hefðu mátt vanda sig meira í handritsskrifum. En skiptir það nokkru máli? Neeeeeeee … Í æðum ólgar blóð » Vampírufantasíur eru alltafheillandi, ekki síst þegar þær eru í fallegum umbúðum. Sookie og vampíran Bill Anna Paquin og Stephen Moyer sjóðandi heit í Suðurríkjunum í vampíruþáttunum True Blood. AF LISTUM Helgi Snær Sigurðsson 47.000 manns í aðsókn! HHHHH - H.G.G, Poppland/Rás 2 HHHH „Gargandi snilld allt saman bara.“ Þ.Þ – DV Uppgötvaðu ískaldan sannleikann um karla og konur Fyndnasta rómantíska gamanmynd ársins SÝND Í SMÁRABÍÓI Fyndnasta rómantíska gamanmynd ársins Uppgötvaðu ískaldan sannleikann um karla og konur Sýnd m/ ísl. tali kl. 4 (650 kr.) Sýnd kl. 4, 7 og 10 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 7 og 10 Frá leikstjóra 40 Year Old Virgin og Knocked Up Stórkostleg grínmynd með þeim Seth Rogen, Eric Bana og Adam Sandler. SÝND Í SMÁRABÍÓI VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG! HHHH – S.V. MBL HHH „Ef þú sást fyrstu myndina og fílaðir hana, þá máttu alls ekki sleppa þessari!“ T.V. – Kvikmyndir.is HHH „Skylduáhorf fyrir alla aðdáendur Larssons, – sannarlega eldfim spennumynd.” MMJ – kvikmyndir.com Mikil grimmd og logandi frásögn. Lisbeth Salander er orðin klassísk og ein eftirminnilegasta persóna glæpabókmenntana. F.E. Rás 2 HHHH – VJV, FBL „Öllu því svalasta, magnaðasta og flottasta úr þykkri spennusögu er þjappað saman í alveg hreint frábæra spennumynd.“ HHHH – ÞÞ, DV 650kr. Uppáhalds BIONICLE®-hetjurnar vakna til lífsins í þessari nýju og spennandi mynd Íslens kt talSÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.is Þú færð 5% endurgreitt í Smárabíó þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á -bara lúxus Sími 553 2075 Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.16 ára The Ugly Truth kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i.14 ára Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 5:20 - 8 - 10:40 Lúxus Inglorious Bastards kl. 6 - 9 B.i.16 ára Jennifer‘s Body kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.16 ára Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 3:45 LEYFÐ Bionicles kl. 4 LEYFÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.