Morgunblaðið - 20.10.2009, Page 6

Morgunblaðið - 20.10.2009, Page 6
FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is FRAMKVÆMDIR sem þegar eru komnar af stað, einkum á Suð- urnesjum, eru víða í uppnámi. Að sögn Vilhjálms Egilssonar, fram- kvæmdastjóra Samtaka atvinnulífs- ins, hafa einstaka ákvarðanir stjórn- valda, s.s. er varða svokallaða Suðvesturlínu vegna fyrirhugaðs ál- vers í Helguvík, valdið því að fjár- festar halda að sér höndum í öðrum atvinnugeirum. „Það eru margir fjárfestar að horfa til Íslands. Hér er hægt að gera góð kaup ef menn eiga mikið af útlendum peningum. Því miður hef- ur skapast mikil óvissa um nokkurn fjölda af verkefnum sem flest tengj- ast orkunýtingu. Ég tel mjög mik- ilvægt fyrir Ísland að framkvæmdir, sérstaklega þær sem þegar eru komnar af stað, fái að halda áfram af fullum þunga. Annað er ekki verj- andi,“ segir Vilhjálmur. Vinna að samningum Gagnaver Verne Holding, sem unnið er í að reisa á varnar- liðssvæðinu við Keflavíkurflugvöll, er nú í nokkurri óvissu þar sem ekki hefur verið gengið frá fjárfestinga- samningi við íslensk stjórnvöld. Þess er nú beðið að samningaviðræðum ljúki og verkefnið getið haldið áfram. Á samningnum byggist með- al annars þátttaka erlendra fjárfesta í verkefninu, þ. á m. fyrirtækisins IBM. Áform stjórnvalda um skatthækk- anir, m.a. á sviði auðlindanýtingar, hafa einnig sett strik í reikninginn. Samkvæmt tillögum sem koma fram í fjárlögum standa vonir til þess að hægt verði að ná um 16 milljörðum í ríkiskassann með auðlindasköttum. Útfærslan á þeim liggur ekki fyrir enn. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra hefur þó ítrekað í blaðagrein að álfyrirtækin sem hér eru með framleiðslu, Alco, Rio Tinto Alcan og Norðurál, verði að leggja sitt af mörkum í endurreisninni. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins hafa stjórnvöld kallað formlega eftir tillögum og hug- myndum frá álfyrirtækjunum um hina fyrirhuguðu skatta. Stjórnvöld hyggjast síðan reyna eftir fremsta megni að taka tillit til sjónarmiða ál- fyrirtækjanna þegar skattarnir verða útfærðir, en ljóst þykir að þeir munu með einum eða öðrum hætti hafa áhrif á þau. Vilhjálmur segir mikilvægt að stjórnvöld vandi mjög til verka þeg- ar nýir skattar eru lagðir á. Hugsa þurfi það til enda hvort það sé þess virði að reyna að afla mikilla tekna með því að skattleggja nýfjárfest- ingu í landinu. „Það þarf að hugsa málin til enda. Ég get vel skilið að það þurfi að hækka skatta eða að fjárlögin geri ráð fyrir niðurskurði og skattahækkunum. En ég tel óskynsamlegt að koma á fót nýjum sköttum ef þeir koma í veg fyrir fjár- festingar í atvinnulífinu. Því miður eru þessi nýju skattar [auðlinda- skattar] líklegir til þess gera það þó að útfærslan á þeim liggi ekki end- anlega fyrir ennþá.“ Verkefni stopp og óvissa um skatta  Mörg verkefni, einkum á Suðurnesjum, bíða þess að kom- ast af stað á ný  Ekki enn búið að útfæra auðlindaskatta Morgunblaðið/RAX Í Helguvík Byrjað er að byggja skála fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Ráðgert er að reisa álverið í fjórum 90 þúsund tonna áföngum. Ýmiss konar orkufrekur iðnaður bíður þess að verða byggður upp. Óvissa er um ýmsa þætti, þ. á m. er varða fjármögnun verkefna og fyrirhugaða auðlindaskatta. 6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2009 Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráð- herra segir mörg verkefni bíða þess að komast af stað. Einkum sé mikill áhugi erlendis á grænum iðnaði, þ.e. umhverfisvænum iðn- aði ýmiskonar. „Við finnum fyrir miklum áhuga og það er mikið að gerast á ýmsum vígstöðum þrátt fyrir allt,“ segir Katrín. Verkefni sem bíða þess að kom- ast af stað eru m.a. stækkun ál- versins í Straumsvík og sólarkís- ilframleiðsla í Þorlákshöfn. Þá hafa stjórnendur sólarkísilverk- smiðju Becromal á Akureyri hug á því að stækka hana. Orka til þess liggur þó ekki á lausu og áformin sem slík eru á frumstigi. Þá er óljóst enn hvernig orkan á Þeistareykjum á Norðausturlandi verður nýtt. Alcoa á ekki lengur aðild að viljayfirlýsingu um und- irbúning að álveri á Bakka við Húsavík. Alcoa hefur þó enn mik- inn áhuga á málinu. Enn er eftir að rannsaka Þeistareykjasvæðið bet- ur og fá úr því skorið hversu mikil virkjanleg orka er á svæðinu. Finna fyrir miklum áhuga á grænum iðnaði AFL Starfsgreinafélag á Austur- landi hyggst stefna sjóðsstjórnum Landsvaka, er önnuðust upplýs- ingagjöf til félagsins og fóru með fjármuni þess, til greiðslu bóta vegna þeirra fjármuna er félagið tapaði við uppgjör sjóðsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu sem Sverrir Albertsson, fram- kvæmdastjóri félagsins, sendi frá sér í gærvöldi, en málshöfðunin var samþykkt á stjórnarfundi AFLs. Í samþykkt sem stjórnin gerði kemur fram að grundvöllur máls- höfðunar sé að félagið telji að um- ræddir sjóðsstjórar hafi blekkt fé- lagið til áframhaldandi viðskipta þegar ljóst hafi verið að eignasafn sjóðsins hafi ekki verið í samræmi við lýsingar og sjóðurinn stefndi í óefni. Ennfremur telur félagið að verulega óeðlilegt útstreymi hafi verið síðustu fjóra daga í starfs- rækslu sjóðsins og ljóst að inn- herjaupplýsingar hafi haft áhrif sem juku enn á tap annarra. Grundvöllur málshöfðunarinnar eru, að því er fram kemur í til- kynnignu AFLs, gögn sem AFL Starfsgreinafélag hefur fengið af- hent frá Landsbankanum í kjölfar málshöfðunar félagsins á hendur bankanum til að fá afhentar upplýs- ingar um samsetningu eigna sjóðs- ins vikurnar fyrir hrun. Þær upplýs- ingar fengust afhentar fyrir skömmu. Samþykkt stjórnarinnar frá því fyrr í kvöld er svohljóðandi: „Stjórn AFLs Starfsgreinafélags felur fram- kvæmdastjóra félagsins í samráði við lögmenn AFLs að undirbúa og hefja málsókn á hendur þeim sjóðs- stjórum Landsvaka sem önnuðust um sjóði félagsins og upplýsingagjöf til AFLs. Ennfremur samþykkir stjórn AFLs að fela lögmönnum félagsins að gæta hagsmuna félagsins gagn- vart uppgjöri Landsbankans þar sem svo virðist sem reglur Lands- vaka um áhættudreifingu hafi verið brotnar. Stjórn AFLs Starfsgreinafélags samþykkir að fela lögmanni AFLs, að ganga frá sátt við Landsbanka Ís- lands / Landsvaka vegna málshöfð- unar AFLs varðandi upplýsingar um meðferð peningamarkaðssjóða Landsvaka.“ AFL hyggst stefna sjóðs- stjórnum Landsvaka Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is EXISTA tapaði 206 milljörðum króna á síðasta ári, en félagið birti í gær uppgjör sitt fyrir árið 2008. Eigið fé Exista var um síðustu áramót 200 milljónir evra, eða um 34 milljarðar króna, sem er lækk- un um 90 prósent milli ára. Fall Kaupþings þungt högg Eftir því sem næst verður kom- ist hefur ekkert annað íslenskt fé- lag tapað meiri peningum á einu rekstrarári. Fram kemur í af- komuskýrslu Exista með ársreikn- ingi að fall Kaupþings og sala eignarhluta Exista í Sampo hafi haft verulega neikvæð áhrif á af- komu félagsins á síðasta ári. Þar segir jafnframt að félagið eigi í viðræðum við helstu lánveitendur um fjárhagslega endurskipulagn- ingu. Heildareignir Exista námu 2,3 milljörðum evra, eða um 391 millj- arði króna, í árslok 2008 og lækk- aði verðmæti þeirra um rúm 70 prósent frá árinu á undan. Endurskoðendur gefa ekki álit Fram kemur í ársreikningnum að Exista telur sig eiga kröfur á Kaupþing og Glitni vegna gjald- miðlaskiptasamninga upp á sam- tals 782 milljónir evra. Félagið og bankana greinir á um uppgjör þessara samninga og hafa báðir bankarnir höfðað mál gegn Exista og telja sig á móti eiga kröfu á fé- lagið upp á 46 milljónir evra. Ex- ista vill að samningarnir verði gerðir upp miðað við gengi evru hjá Seðlabanka Evrópu hinn 9. október 2008, eða 305 krónur fyrir hverja evru. Niðurstöður dómsmála vegna gjaldmiðlaskiptasamninganna munu skipta verulegu máli varð- andi afkomu Exista og eigið fé, en mikil óvissa er um hver niðurstað- an verður. Það er m.a af þessari ástæðu sem endurskoðendur fé- lagsins hjá Deloitte treysta sér ekki til að undirrita ársreikninginn með áliti, samkvæmt upplýsingum frá Deloitte. Með öðrum orðum eru þeir ekki tilbúnir að skrifa upp á að ársreikningurinn gefi rétta mynd af fjárhagsstöðu félagsins þar sem óvissa er til staðar um jafn veigamikinn þátt og uppgjör gjaldmiðlaskiptasamninganna er. Íslandsmet í taprekstri Exista tapaði 206 milljörðum árið 2008 Morgunblaðið/Kristinn Taprekstur Bankahrunið var Exista þungbært. Eignir rýrnuðu um 70%. Í HNOTSKURN »Exista er móðurfélagSkipta (Símans), VÍS, Lífís og Lýsingar. Félagið er í raun í óbeinni eigu kröfuhafa í dag. »Skilanefnd Kaupþings hef-ur stefnt Exista og krefst þess að félagið greiði sér 20,1 milljarð króna vegna gjald- eyrisskiptasamninga. »Frá því í maí á þessu árihafa innlendir kröfuhafar viljað taka félagið yfir og gera breytingar á stjórn þess.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.