Morgunblaðið - 20.10.2009, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.10.2009, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2009 Frú Clooney í gegnsæju“,„Smávaxinn afturendi“,„Dauðadrukkið súper- módel“, „Nafli Kate Hudson“, „Courtney Cox (45): Í fantaformi á fimmtugsaldri“, „Nicole Kidman (42): Ég hef aldrei farið í botox“, „Verslar ómáluð“.    Þessar fyrirsagnir eru teknar afFólkshluta vefmiðilsins Eyj- unnar en flestar þeirra er hægt að rekja til visir.is. En dv.is er með óheilnæman slatta af áþekkum fyr- irsögnum líka. Og þegar Eyjan sjálf tekur sig til er hoggið í sama knérunn (og Eyjan er meira að segja með sérsvið í þessum efnum, sem snýst um hversu kynþokka- fullar konur geta verið á miðjum aldri). Og já, gott ef hið háa Morg- unblað hefur ekki gerst sekt um að læða út frétt og frétt af þessum toga. Í þessum fréttum felst afar djúp og stæk kvenfyrirlitning. Hún er svo djúp reyndar að flest gerum við okkur ekki almennilega grein fyrir henni, erum ekki meðvituð um hana þar sem hún er rígbundin í alla vestræna hugsun að því er virðist, situr pikkföst í allri orð- ræðu, ákvarðanatöku og valdboð- un, liggur þvers og kruss um sam- félagið eins og ósýnilegur, níðsterkur kóngulóarvefur.    Fyrirlitningin og virðingarleysiðer framreitt í formi flippaðra og „skemmtilegra“ frétta og þess vegna er allt í lagi að skrifa þær. Það er ekki hægt að taka þær al- varlega. Ég, pistilhöfundurinn, er bara fúll og húmorslaus, skv. þess- ari réttlætingu. En skoðum þetta nánar. Af hverju eru allar þessar fréttir af kvenfólki? Jú, af þeirri einföldu ástæðu að karlar fara með völdin í þessum skrifum/miðlum. Annars værum við að lesa um þröngu og gegnsæju sundskýluna hans Johnny Depp dag eftir dag. Ég verð að hryggja ykkur með því að tildrög skrifanna liggja þó í öðru. Þau liggja í pirringi út í það sem sumir álíta greinilega full- komlega eðlileg skrif um svokall- aða dægur- eða afþreyingarmenn- ingu, þær listir sem eru knúnar af gangverki fjöldaframleiðslunnar, form eins og dægurtónlist, kvik- myndir, tölvuleikir og sjónvarps- þættir. Það er eins og fréttastjórar sumra þeirra miðla sem hér hafa verið nefndir hendi öllu ofan- greindu í einn pott sem kallast slúður.    Pistli þessum er því ekki ætlaðað gera lítið úr fréttum úr dægurmenningu, ég meina, hún er lifibrauðið mitt! En dægurmenn- ingu er hægt að taka alvöru tök- um, virðingarverðum tökum sem geta, þó ótrúlegt megi virðast, ver- ið skemmtileg um leið. En bíðið nú hæg, á þá að henda út öllu brjósta- og fyllirísruglinu? Er það ekki mál- ið, miðað við orð mín í upphafi? Með öðrum orðum: er mögulegt að skrifa „létt og skemmtilegt“ efni sem felur ekki í sér að gera lítið úr kvenfólki?    Ég er andvígur þeirri stefnusem visir.is fylgir í þessum efnum. Fyrirsagnir og efnistök sem stíma beint á rætnar og ómerkilegar hvatir mannsins, eitt- hvað sem er vitað að lætur fólk, þessi dýr sem við erum, tikka. Finnst það ekki kúl. En það er sorglegt en satt að þetta er það sem fólk étur upp, eins og allar þessar „Mest lesið“ stikur sýna. Viljum við eftir allt saman, innst inni, lesa endalausar greinar um rassinn á Sharon Stone? Nei, ég bara trúi því ekki. Það er eitthvað sjúkt við þetta (sagði hann, opnaði nýtt wordskjal, og fór að skrifa stutta og skemmtilega frétt um Amy Winehouse). arnart@mbl.is Hvað er þetta annað en kvenfyrirlitning? AF LISTUM Arnar Eggert Thoroddsen » Fyrirlitningin ogvirðingarleysið er framreitt í formi flipp- aðra og „skemmtilegra“ frétta og þess vegna er allt í lagi að skrifa þær. Það er ekki hægt að taka þær alvarlega. Frétt? Rassinn á Sharon Stone, gerið svo vel. Eru þá allir sáttir? SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI Jóhannes kl. 4 - 6 - 8 - 10 LEYFÐ Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 5:20 - 8 - 10:40 Lúxus 9 kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i.10 ára The Ugly Truth kl. 10:15 B.i.14 ára Guð blessi Ísland kl. 5:45 - 8 LEYFÐ Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 3:45 LEYFÐ Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.16 ára HHH „Ef þú sást fyrstu myndina og fílaðir hana, þá máttu alls ekki sleppa þessari!“ T.V. – Kvikmyndir.is Mikil grimmd og logandi frásögn. Lisbeth Salander er orðin klassísk og ein eftirminnilegasta persóna glæpabókmenntana. F.E. Rás 2 „Frábær eins og sú fyrsta! Heldur athygli manns allan tímann! Maður getur eiginlega ekki beðið um meiri gæði!“ –H.K., Bylgjan HHH „Skylduáhorf fyrir alla aðdáendur Larssons, – sannarlega eldfim spennumynd.” MMJ – kvikmyndir.com HHHH „Öllu því svalasta, magnaðasta og flottasta úr þykkri spennusögu er þjappað saman í alveg hreint frábæra spennumynd.“ – ÞÞ, DV HHHH „Stúlkan sem lék sér að eldinum er ekki síðri en forveri hennar ... afar spennandi, takturinn betri... Michael Nykvist og Noomi Rapace eru frábær í hlutverkum sínum“ – VJV, FBL HHH „Stúlkan sem lék sér að eldinum er þrælgóð skemmtun og æsispennandi, grimm og harðvítug þegar kemur að uppgjörinu” –S.V., MBL SÝND Í SMÁRABÍÓI HHH „...frumleg og fyndin í bland við óhugnaðinn“ – S.V., MBL „Kyntröllið Fox plumar sig vel sem hin djöfulóða Jennifer!“ – S.V., MBL SÝND Í REGNBOGANUM Ekki fyrir viðkvæma HHHH „Verður vafalaust titluð meistarverk...“ – H.S., Mbl SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI HHHH „Gainsbourg er rosaleg...“ – E.E., DV Fyndnasta rómantíska gamanmynd ársins Sýnd kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 8Sýnd kl. 6, 9 og 10:10 HHH „Ef þú sást fyrstu myndina og fílaðir hana, þá máttu alls ekki sleppa þessari!“ T.V. – Kvikmyndir.is Mikil grimmd og logandi frásögn. Lisbeth Salander er orðin klassísk og ein eftirminnilegasta persóna glæpabókmenntana. F.E. Rás 2 HHH „Skylduáhorf fyrir alla aðdáendur Larssons, – sannarlega eldfim spennumynd.” MMJ – kvikmyndir.com HHHH „Öllu því svalasta, magnaðasta og flottasta úr þykkri spennusögu er þjappað saman í alveg hreint frábæra spennumynd.“ – ÞÞ, DV Sýnd kl. 6 HHH „9 er fyrirtaks samansuða af spennu, ævintýrum og óhugnaði í réttum hlutföllum” B.I. – kvikmyndir.com HHH „9 er með þeim frumlegri – og drungalegri – teiknimyndum sem ég hef séð í langan tíma. Grafíkin er augnakonfekt í orðsins fyllstu merkingu.” T.V. – Kvikmyndir.is SÝND Í REGNBOGANUM HHH „Teikningarnar og tölvugrafíkin ber vott um hugmyndaauðgi og er afar vönduð, sannkallað konfekt fyrir augað.” -S.V., MBL „9 er allt að því fram-andi verk í fábreytilegri kvik- myndaflórunni, mynd sem skilur við mann dálítið sleginn út af laginu og jákvæðan” -S.V., MBL SUMIR DAGAR... NÝ ÍSLENSK GAMANMYND HHH „Jóhannes er myndin hans Ladda, hún er röð af bráðfyndnum up- pákomum sem hann og pottþétt aukaleikaralið koma frábærlega til skila svo úr verður ósvikin skemmtun. ...Sann- kölluð „feelgood”-mynd, ekki veitir af.” – S.V., MBL HHHHH „Þetta er alvöru tær snilld.” A.K., Útvarpi Sögu 600 k r. Gildir ekki í lúxus 500 k r. 500 kr . 500 k r. HHH -Empire „10 ára sonur minn hafði mun meira gaman af því að horfa á þessa mynd en hina sykursætu Wall-E“ -K.G., Ynja.net 600 kr . 600 kr . 600 kr. 600 kr. HHHHH „Æðisleg. Þetta er það besta síðan Sódóma Reykjavík“ Þú færð 5% endurgreitt í Smárabíó 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á -bara lúxus Sími 553 2075 Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.isðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR! 500 KR. Á ALLAR MYNDIR Í HÚSINU, ALLAN DAGINN! ATH! Gildir ekki á íslenskar myndir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.