Skinfaxi - 01.11.2011, Síða 3
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 3
Aðventan er gengin í garð og jólin eru rétt
handan við hornið. Hvert sem litið er má sjá
fallega skreytta glugga og hús með marglit-
um jólaljósum. Ljósum sem minna okkur á
komu jólanna og þann boðskap sem þau
standa fyrir. Þetta er sá tími ársins sem gleði,
kærleikur og tilhlökkun eru einna ríkustu
þættirnir í fari hvers og eins. Það er eins og
það séu samantekin ráð okkar að beina
athyglinni ekki að því sem miður hefur farið
heldur að því sem við elskum og metum, full-
viss um að það geri okkur kleift að búa til
betri heim.
Og handan við annað horn, örlítið fjær,
bíður okkar nýtt ár, árið 2012. Það er enn sem
óskrifað blað en fullt væntinga um betri tíð.
Ársins 2011 verður minnst fyrir margt hjá
ungmennafélagshreyfingunni en ég trúi að í
hugum flestra standi upp úr allt það jákvæða
sem hreyfingin stóð fyrir á árinu. Verkefnin
hafa verið fjölbreytt og mörg og margir tekið
þátt, hver á sinn hátt, en umfram allt höfum
við haft það gaman saman.
Ég er ákaflega stolt af því mikla starfi sem
hefur verið unnið um allt land af öllum þeim
fjölda sjálfboðaliða sem undirbjuggu það og
framkvæmdu. Jafnframt er ég þakklát fyrir að
tilheyra þessum hópi og mér finnst það
munaður að fá að vinna með honum að
öllum þessum góðu málum. Ég færi öllu
þessu fólki mínar hjartans þakkir fyrir óeigin-
gjörn störf, þjóð og landi til heilla.
Áherslan í starfi hreyfingarinnar verður hér
eftir sem hingað til á mannrækt með það að
markmiði að vekja fólk til umhugsunar um
mikilvægi heilbrigðs lífsstíls, fjölbreytileika
þjóðfélagsins og þess að bera virðingu fyrir
umhverfinu.
Samvera fjölskyldunnar, yngri kynslóðar-
innar sem hinnar eldri, er þýðingarmikil til að
nýta fortíðina sem best sem veganesti inn í
framtíðina.
Verkefnin, sem ungmennafélagshreyfingin
stendur fyrir, miðast að því að mæta öllum
þessum þáttum. Það er hreyfingunni mikils
virði að skapa vettvang til að efla félags-
þroska einstaklinga og samskiptahæfileika
Tækifærin bíða okkar
og að læra gildi þess að starfa með öðru fólki
að sameiginlegum markmiðum, að ræktun
lýðs og lands. Þannig byggjum við upp frum-
kvæði og styrkjum forystuhæfileika einstakl-
inga sem munu leiða starfið í nútíð og fram-
tíð. Til þess að svo megi verða er nauðsyn-
legt að halda áfram að virkja fólk til þátttöku
í félagsstarfi og sjálfboðaliðastarfi ásamt því
að mennta fólk til forystustarfa innan og utan
hreyfingarinnar. Tækifærin bíða okkar, nýtum
þau öll eins og best við getum.
Megi aðventan færa ykkur öllum ljós og
frið og góðar samverustundir. Ég óska ykkur
öllum gleðilegrar jólahátíðar, þakka fyrir gott
samstarf á árinu sem er að líða og vona að
nýja árið verði ykkur gjöfult og gott.
Íslandi allt!
Helga Guðrún Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ
Helga Guðrún
Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ:
Stjórn UMFÍ
2011–2013
Stjórn Ungmennafélags Íslands, sem kosin
var á 47. sambandsþingi UMFÍ á Akureyri í
október sl., skipti með sér verkum á öðrum
stjórnarfundi sínum. Fjórir nýir einstakling-
ar voru kosnir í aðalstjórn en þeir eru Stefán
Skafti Steinólfsson og Jón Pálsson, gjald-
keri, en báðir sitja þeir í framkvæmdastjórn
auk Helgu Guðrúnar Guðjónsdóttur, for-
manns UMFÍ, Haukur Valtýsson, varafor-
maður, og Bolli Gunnarsson. Björg Jakobs-
dóttir og Eyrún Harpa Hlynsdóttir, ritari,
voru báðar endurkjörnar. Í varastjórn komu
þau ný inn Baldur Daníelsson, Matthildur
Ásmundsdóttir og Anna María Elíasdóttir.
Einar Kristján Jónsson var endurkjörinn í
varastjórn.
Stjórn UMFÍ 2011–2013. Efri röð frá vinstri: Haukur Valtýsson, Anna María Einarsdóttir, Helga Guðrún Guðjónsdóttir, Björg
Jakobsdóttir, Eyrún Harpa Hlynsdóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Baldur Daníelsson og Sæmundur Runólfsson, framkvæmda-
stjóri. Neðri röð frá vinstri: Einar Kristján Jónsson, Jón Pálsson, Bolli Gunnarsson og Stefán Skafti Steinólfsson.
„Við erum fjögur saman í hóp, nemend-
ur í vöruhönnun á þriðja ári við Lista-
háskólann. Við erum að vinna að verk-
efni er tengist Þrastaskógi sem gengur
út á það að bæta aðgengi almennings
að skóginum. Verkefnið er í sjálfu sér opið
og við gátum valið út frá hverju við vild-
um vinna. Við höfum hugsað að vinna
Guðrún Harðardóttir og Kolbeinn Ísólfsson unnu að verkefni er
tengdist aðgengi almennings að Þrastaskógi.
Vinna að
verkefni
sem tengist
Þrastaskógi
með auglýsingaskilti og annan fróðleik
og miðla þannig upplýsingum til þeirra
sem leggja leið sína í skóginn.
Aðalmarkmiðið hjá UMFÍ er að halda
skóginum fallegum fyrir almenning sem
þangað kemur og að allar upplýsingar
séu áreiðanlegar og aðgengilegar,“
sögðu þau Guðrún Harðardóttir og
Kolbeinn Ísólfsson, nemendur á þriðja
ári við Listaháskóla Íslands. Þau sögðu
verkefnið á byrjunarstigi og þau ennþá í
hugmyndavinnu. Þau væru að rannsaka
skóginn og allt sem tengdist honum og
væru að viða að sér upplýsingum.
„Þetta er spennandi verkefni. Við mun-
um að lokum kynna þrjár tillögur og
vinna lengra með eina þeirra,“ sögðu
þau Guðrún og Kolbeinn.