Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.2011, Blaðsíða 29

Skinfaxi - 01.11.2011, Blaðsíða 29
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 29 Jólasaga: Nóttin helga fór í hönd. Áliðið var aðfanga- dagsins: kirkjukertin horfin og komin út í Sólheimakirkju. Búið að senda kerti og ýmsar jólagjafir víðsvegar til fátæklinga. Aðeins einn jólagestur sat eftir af öllum þeim gestum, sem komið höfðu í dag. Stúlkurnar höfðu raðað öskunum nýþvegn- um á búrbekkinn, sópað undan öllum rúm- um og þvegið rúmstokkana. Öll gólf voru tárhrein, og helst máttu börnin ekki koma inn allan daginn. Fátækraþerririnn brást ekki, og engin flík var óhrein innan bæjar. Í kýrkláfunum var besta taða, og öll verk- færi hrein. Rokkarnir allir, kembukassar og hesputré var sett út á miðloft og raðað þar, og blöðin, sem alltaf voru geymd upp- undir í sperrukverk, horfin. Þegar dimma tók, var borinn þvottabali inn í norðurhús, þar sem vefstaðurinn var. Og þar var allagt gólfið með boldangi. Sjóðandi heitu vatni var hellt í balann, og þegar það var mátu- lega heitt, vorum við börnin kölluð þangað og þvegin frá hvirfli til ilja. Þarna var nokkuð heitt af vatnsgufu, en kaldara mátti það samt ekki vera. En áður fórum við í eldhúsið, þar beið Inga systir og beygði okkur ofan yfir keytustamp, sem hún svo vatt hárið á okkur upp úr. Þetta var það versta fyrir jólin. Ég kreisti aftur augun og beit saman munninum, þorði varla að anda á meðan þessu stóð. Síðan þerraði hún höfuðið og hárið með striga- dúk og lét okkur hlaupa inn að kerlaug- inni í vefjarhúsinu. Það var mikil svölun að baða sig þar eftir höfuðþvottinn í eldhús- inu. Þetta gekk eftir röð, og alltaf varð að bæta í balann nýju heitu vatni. Svo stóð stór skál á borðinu með hreinu köldu vatni og sápu sem hver notaði síðast eftir vild. Þegar búið var að skola okkur börnin, kom fullorðna fólkið og lét líka lauga sig, það var bara einstaka manneskja, sem ekki tók nema keytuþvottinn. Þegar stúlkurnar voru búnar lokuðu karlmennirnir sig inni og báru áður að margar fötur af volgu og köldu vatni, það var mikill gauragangur í þeim, og oft tók dágóða stund að laga til eftir þá. Að öllu þessu loknu var borin inn rjúkandi kjötsúpa, þykk eins og grautur. Það verkaði vel á mann baðið og fólkinu létti í skapi. Vænir spaðbitar, feitur og mag- ur voru í hvers manns aski. Allir höfðu skipt um nærföt, er þeir komu úr baðinu, og nú klæddu þeir sig í sparifötin. Svo var kvöld- verkum öllum lokið klukkan 6–7 um kvöldið. Kertalykkjurnar lágu á baðstofuborð- inu, og byrjaði mamma að kveikja á þeirri fyrstu og lét brenna sundur rakið á milli þeirra, logaði þá á tveim kertum undir eins. Þau voru gefin elstu mönnum í baðstof- unni. Þessi athöfn stóð talsverðan tíma, og biðum við börnin, meðan allt eldra fólk tók á móti sínum kertum. Loksins tók mamma kertalykkjuna okkar og kveikti á henni. Svo rétti hún mér og Ólu systur sitt kertið hvoru með ljósi. „Takið þið við, börnin mín góð,“ sagði hún og tárin runnu niður kinnar hennar. Ég tók við mínu kerti og kyssti mömmu og strauk með litlu lófunum tárin hennar, hún brosti og sagði: „Þykir þér falleg jólaljósin, Eyfi minn. Þrír bræður þínir og systur njóta þó fegurri jólaljósa hjá jólabarninu Jesú.“ Svo kveikti hún á tveim hákertum, sem stóðu í stjökum á borðinu, það voru hjónaljósin. Gesturinn, sem var aldraður bóndi, sat við annan borðsendann og fékk líka sitt kerti. Af há- hillunni yfir baðstofuglugganum voru nú teknar lestrarbækurnar. Það var Péturs- postilla, bænakver og tvær sálmabækur. Pabbi flutti sig inn til mömmu sinnar í norðurbaðstofuna, en söngfólkið var kyrrt í frambaðstofunni. Gesturinn var góður raddmaður og byrj- aði jólasálminn. Tveir sálmar voru sungnir á undan og tveir á eftir. Hjá pabba sat ég allan lesturinn og mændi á opna postill- una. Hvenær ætlaði þessi lestur að enda? Og svo átti ég að muna eitthvað úr hon- um. Þetta mundi ég: „Guð-Drottinn-allt- Amen!“ og pabbi brosti. Þetta var allt og sumt, en söngnum tók ég betur eftir og braut heilann um það, hvað Guð mundi eiga margt í „hornum“ sínum. Seinna um kvöldið spurði ég ömmu, hvort hún vissi það. Hún var byrst og sagði, að hjá guði væru engin horn. „Svona máttu ekki spyrja, dengi minn,“ sagði hún. „En það var sungið í jólasálminum,“ sagði ég. Það mundi ég glöggt. Forsöngvarinn sagði svo skýrt: „... minn Guð gaf af hornum sér“. Amma leiðrétti mig eftir andartak, og bágt átti ég að skilja, að hennar meining væri réttari en mín. Eftir húslesturinn byrjaði sálma- söngur á víxl og góðlátlegt samtal. Og brátt rauk upp af stórri leirskál, barmafullri af „púnsi“. Pabbi kveikti á henni, og var það fallegur rauðblár logi. Svo fengu allir púns í bolla, og sló þá nokkuð í glaðværð. Svo kom fullt af lummum og kaffi. Hin ánægju- legasta stund þetta kvöld var meðan á jólagjöfum stóð. Mamma gaf öllum ein- hverja nýja flík, þegar að afloknum jóla- lestri. Karlmennirnir fengu nýjar milliskyrt- ur eða nýjan jakka, jólaskó bryddaða og nýja háleista. Stúlkurnar fengu millipils eða svuntu og sjalhyrnu, stundum allt þetta hver, sauðskinnsjólaskó og sortu- litaða sokka. Börnin fengu ný föt, rauða eða bláa sokka eða jólaskó. Enginn mátti fara í jólaköttinn. Jólagestur var í þetta sinn Ólafur bóndi frá Brekkum. Hann var ókátur og einmana, en glaðnaði við púnsdrykkjuna og jóla- gjafirnar. Konu sína hafði hann misst á þriðja hjónabandsári þeirra. Hún dó af barnsförum. Eftir lát hennar eirði hann hvergi, en sat helst í smiðju sinni og klambraði eitthvað smávegis, sem engu var nýtt. Fann hann þá eitt sinn í smiðj- unni blað sem skrifaðar voru á þrjár vísur. Huggaðist hann við að lesa þær og vissi, að guðs engill hafði flutt honum þær til styrkingar, þær voru frá konunni hans. Þessar vísur söng hann tárfellandi, þó jólanótt væri. Mamma byrjaði sjálf jóla- sálmana, en engin rödd var svo fögur eins og hennar. Síðast var sungið þetta vers úr Passíusálmunum, „Gef þú að móðurmálið mitt,“ o.s.frv. Ljósið á baðstofulampanum var ekki slökkt, þegar háttað var, og logaði alla nóttina á honum. Reyndi ég að vaka sem lengst til þess að njóta birtunnar. Síðast streymdu ljósstafir frá lampanum til mín, og ljósbrotin mynduðu geislakrans um baðstofuna. Og ég þoldi ekki að horfa á móti allri þeirri dýrð, sem myndaðist um jólabarnið. „Góða nótt, mamma mín,“ sagði ég, og tungan drafaði. Draumur tók við. Eyjólfur Guðmundsson: Vökunætur II (1947), Vetrarnætur. Jólanóttin Justin Bieber notar Proactiv® Solution - bætt útlit, betri líðan Burt með bólurnar!

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.