Skinfaxi - 01.11.2011, Síða 29
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 29
Jólasaga:
Nóttin helga fór í hönd. Áliðið var aðfanga-
dagsins: kirkjukertin horfin og komin út
í Sólheimakirkju. Búið að senda kerti og
ýmsar jólagjafir víðsvegar til fátæklinga.
Aðeins einn jólagestur sat eftir af öllum
þeim gestum, sem komið höfðu í dag.
Stúlkurnar höfðu raðað öskunum nýþvegn-
um á búrbekkinn, sópað undan öllum rúm-
um og þvegið rúmstokkana. Öll gólf voru
tárhrein, og helst máttu börnin ekki koma
inn allan daginn. Fátækraþerririnn brást
ekki, og engin flík var óhrein innan bæjar.
Í kýrkláfunum var besta taða, og öll verk-
færi hrein. Rokkarnir allir, kembukassar og
hesputré var sett út á miðloft og raðað
þar, og blöðin, sem alltaf voru geymd upp-
undir í sperrukverk, horfin. Þegar dimma
tók, var borinn þvottabali inn í norðurhús,
þar sem vefstaðurinn var. Og þar var allagt
gólfið með boldangi. Sjóðandi heitu vatni
var hellt í balann, og þegar það var mátu-
lega heitt, vorum við börnin kölluð þangað
og þvegin frá hvirfli til ilja.
Þarna var nokkuð heitt af vatnsgufu, en
kaldara mátti það samt ekki vera. En áður
fórum við í eldhúsið, þar beið Inga systir
og beygði okkur ofan yfir keytustamp, sem
hún svo vatt hárið á okkur upp úr. Þetta
var það versta fyrir jólin. Ég kreisti aftur
augun og beit saman munninum, þorði
varla að anda á meðan þessu stóð. Síðan
þerraði hún höfuðið og hárið með striga-
dúk og lét okkur hlaupa inn að kerlaug-
inni í vefjarhúsinu. Það var mikil svölun að
baða sig þar eftir höfuðþvottinn í eldhús-
inu. Þetta gekk eftir röð, og alltaf varð að
bæta í balann nýju heitu vatni. Svo stóð
stór skál á borðinu með hreinu köldu vatni
og sápu sem hver notaði síðast eftir vild.
Þegar búið var að skola okkur börnin, kom
fullorðna fólkið og lét líka lauga sig, það
var bara einstaka manneskja, sem ekki tók
nema keytuþvottinn. Þegar stúlkurnar
voru búnar lokuðu karlmennirnir sig inni
og báru áður að margar fötur af volgu og
köldu vatni, það var mikill gauragangur í
þeim, og oft tók dágóða stund að laga til
eftir þá. Að öllu þessu loknu var borin inn
rjúkandi kjötsúpa, þykk eins og grautur.
Það verkaði vel á mann baðið og fólkinu
létti í skapi. Vænir spaðbitar, feitur og mag-
ur voru í hvers manns aski. Allir höfðu skipt
um nærföt, er þeir komu úr baðinu, og nú
klæddu þeir sig í sparifötin. Svo var kvöld-
verkum öllum lokið klukkan 6–7 um kvöldið.
Kertalykkjurnar lágu á baðstofuborð-
inu, og byrjaði mamma að kveikja á þeirri
fyrstu og lét brenna sundur rakið á milli
þeirra, logaði þá á tveim kertum undir eins.
Þau voru gefin elstu mönnum í baðstof-
unni. Þessi athöfn stóð talsverðan tíma, og
biðum við börnin, meðan allt eldra fólk tók
á móti sínum kertum. Loksins tók mamma
kertalykkjuna okkar og kveikti á henni. Svo
rétti hún mér og Ólu systur sitt kertið hvoru
með ljósi. „Takið þið við, börnin mín góð,“
sagði hún og tárin runnu niður kinnar
hennar. Ég tók við mínu kerti og kyssti
mömmu og strauk með litlu lófunum tárin
hennar, hún brosti og sagði: „Þykir þér
falleg jólaljósin, Eyfi minn. Þrír bræður
þínir og systur njóta þó fegurri jólaljósa
hjá jólabarninu Jesú.“ Svo kveikti hún á
tveim hákertum, sem stóðu í stjökum á
borðinu, það voru hjónaljósin. Gesturinn,
sem var aldraður bóndi, sat við annan
borðsendann og fékk líka sitt kerti. Af há-
hillunni yfir baðstofuglugganum voru nú
teknar lestrarbækurnar. Það var Péturs-
postilla, bænakver og tvær sálmabækur.
Pabbi flutti sig inn til mömmu sinnar í
norðurbaðstofuna, en söngfólkið var kyrrt
í frambaðstofunni.
Gesturinn var góður raddmaður og byrj-
aði jólasálminn. Tveir sálmar voru sungnir
á undan og tveir á eftir. Hjá pabba sat ég
allan lesturinn og mændi á opna postill-
una. Hvenær ætlaði þessi lestur að enda?
Og svo átti ég að muna eitthvað úr hon-
um. Þetta mundi ég: „Guð-Drottinn-allt-
Amen!“ og pabbi brosti. Þetta var allt og
sumt, en söngnum tók ég betur eftir og
braut heilann um það, hvað Guð mundi
eiga margt í „hornum“ sínum. Seinna um
kvöldið spurði ég ömmu, hvort hún vissi
það. Hún var byrst og sagði, að hjá guði
væru engin horn. „Svona máttu ekki spyrja,
dengi minn,“ sagði hún. „En það var sungið
í jólasálminum,“ sagði ég. Það mundi ég
glöggt. Forsöngvarinn sagði svo skýrt:
„... minn Guð gaf af hornum sér“. Amma
leiðrétti mig eftir andartak, og bágt átti ég
að skilja, að hennar meining væri réttari
en mín. Eftir húslesturinn byrjaði sálma-
söngur á víxl og góðlátlegt samtal. Og
brátt rauk upp af stórri leirskál, barmafullri
af „púnsi“. Pabbi kveikti á henni, og var það
fallegur rauðblár logi. Svo fengu allir púns
í bolla, og sló þá nokkuð í glaðværð. Svo
kom fullt af lummum og kaffi. Hin ánægju-
legasta stund þetta kvöld var meðan á
jólagjöfum stóð. Mamma gaf öllum ein-
hverja nýja flík, þegar að afloknum jóla-
lestri. Karlmennirnir fengu nýjar milliskyrt-
ur eða nýjan jakka, jólaskó bryddaða og
nýja háleista. Stúlkurnar fengu millipils
eða svuntu og sjalhyrnu, stundum allt
þetta hver, sauðskinnsjólaskó og sortu-
litaða sokka. Börnin fengu ný föt, rauða
eða bláa sokka eða jólaskó. Enginn mátti
fara í jólaköttinn.
Jólagestur var í þetta sinn Ólafur bóndi
frá Brekkum. Hann var ókátur og einmana,
en glaðnaði við púnsdrykkjuna og jóla-
gjafirnar. Konu sína hafði hann misst á
þriðja hjónabandsári þeirra. Hún dó af
barnsförum. Eftir lát hennar eirði hann
hvergi, en sat helst í smiðju sinni og
klambraði eitthvað smávegis, sem engu
var nýtt. Fann hann þá eitt sinn í smiðj-
unni blað sem skrifaðar voru á þrjár vísur.
Huggaðist hann við að lesa þær og vissi,
að guðs engill hafði flutt honum þær til
styrkingar, þær voru frá konunni hans.
Þessar vísur söng hann tárfellandi, þó
jólanótt væri. Mamma byrjaði sjálf jóla-
sálmana, en engin rödd var svo fögur eins
og hennar. Síðast var sungið þetta vers úr
Passíusálmunum, „Gef þú að móðurmálið
mitt,“ o.s.frv. Ljósið á baðstofulampanum
var ekki slökkt, þegar háttað var, og logaði
alla nóttina á honum. Reyndi ég að vaka
sem lengst til þess að njóta birtunnar.
Síðast streymdu ljósstafir frá lampanum til
mín, og ljósbrotin mynduðu geislakrans
um baðstofuna. Og ég þoldi ekki að horfa
á móti allri þeirri dýrð, sem myndaðist um
jólabarnið. „Góða nótt, mamma mín,“
sagði ég, og tungan drafaði. Draumur
tók við.
Eyjólfur Guðmundsson:
Vökunætur II (1947), Vetrarnætur.
Jólanóttin
Justin Bieber notar Proactiv® Solution
- bætt útlit, betri líðan
Burt með bólurnar!