Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.2011, Blaðsíða 34

Skinfaxi - 01.11.2011, Blaðsíða 34
34 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Laugardaginn 12. nóvember sl. hélt Héraðs- sambandið Hrafna-Flóki innanhússmót í frjálsum íþróttum í tilefni þess að sam- bandið varð 40 ára í febrúar síðastliðnum. Mótið var haldið í íþróttahúsinu Bröttuhlíð á Patreksfirði. Alls tóku þátt 47 krakkar á aldrinum 9–18 ára og var keppt í sprett- Afmælismót Hrafna-Flóka: Áhorfendur hvöttu krakkana vel áfram Úr hreyfingunni hlaupi, langhlaupi, kúluvarpi, langstökki og hástökki. Í lok móts var svo boðið upp á pizzur og glæsilega afmælisköku. Allir þátttakendur fengu verðlaunapening og viðurkenning- arskjal með skráðum árangri hvers og eins, auk þess að fá smáglaðning frá Hrafna-Flóka. Mikil stemning var í húsinu og voru margir áhorfendur að hvetja krakkana áfram. Stjórn Hrafna-Flóka vill þakka öll- um þeim sem tóku þátt í þessum frábæra degi, jafnt keppendum, starfsfólki og áhorfendum.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.