Skinfaxi - 01.11.2011, Page 34
34 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Laugardaginn 12. nóvember sl. hélt Héraðs-
sambandið Hrafna-Flóki innanhússmót
í frjálsum íþróttum í tilefni þess að sam-
bandið varð 40 ára í febrúar síðastliðnum.
Mótið var haldið í íþróttahúsinu Bröttuhlíð
á Patreksfirði. Alls tóku þátt 47 krakkar á
aldrinum 9–18 ára og var keppt í sprett-
Afmælismót Hrafna-Flóka:
Áhorfendur hvöttu krakkana vel áfram
Úr hreyfingunni
hlaupi, langhlaupi, kúluvarpi, langstökki
og hástökki.
Í lok móts var svo boðið upp á pizzur og
glæsilega afmælisköku. Allir þátttakendur
fengu verðlaunapening og viðurkenning-
arskjal með skráðum árangri hvers og eins,
auk þess að fá smáglaðning frá Hrafna-Flóka.
Mikil stemning var í húsinu og voru
margir áhorfendur að hvetja krakkana
áfram. Stjórn Hrafna-Flóka vill þakka öll-
um þeim sem tóku þátt í þessum frábæra
degi, jafnt keppendum, starfsfólki og
áhorfendum.