Skinfaxi - 01.11.2011, Qupperneq 4
4 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Baráttudagur gegn einelti var
haldinn 8. nóvember sl. og voru
landsmenn hvattir til að hringja
bjöllum til að vekja athygli á
málstaðnum. Þá hljómuðu m.a.
kirkjuklukkur og skipaflotinn
þeytti lúðra.
Það var Verkefnisstjórn í aðgerðum gegn
einelti sem ákvað, í samvinnu við Reykja-
víkurborg, Samband íslenskra sveitar-
félaga og fjölda félagasamtaka, að standa
að sérstökum degi gegn einelti. Verkefnis-
stjórnin samanstendur af fulltrúum fjár-
málaráðuneytis, mennta- og menningar-
málaráðuneytis og velferðarráðuneytis og
var hún skipuð í kjölfarið á útgáfu Greinar-
gerðar um mögulegar aðgerðir gegn einelti
í skólum og á vinnustöðum sem kom út í
júní 2010.
Í tilefni dagsins var í Höfða í Reykjavík
undirritaður þjóðarsáttmáli um jákvæð
samskipti. Forsætisráðherra er verndari
átaksins og undirrituðu velferðarráðherra,
fjármálaráðherra og mennta- og menn-
ingarmálaráðherra sáttmálann fyrir hönd
ríkisstjórnarinnar og Jón Gnarr borgarstjóri
fyrir hönd Reykjavíkurborgar. Ennfremur
er fjöldi félaga og samtaka aðilar að samn-
ingnum. Helga Guðrún Guðjónsdóttir for-
maður undirritaði hann fyrir hönd UMFÍ.
Við undirritunina voru afhent gul arm-
bönd sem gerð voru í tilefni dagsins og
bera yfirskriftina: Jákvæð samskipti. Þeim
verður í kjölfarið dreift til almennings eftir
því sem upplag endist.
Einelti spyr ekki um aldur, þjóðfélags-
hóp eða kyn og það þrífst einfaldlega alls
staðar þar sem það er látið viðgangast.
Ábyrgð okkar allra er því mikil og það er í
höndum okkar að vinna bug á þessu þjóð-
félagsmeini. Það er ekki flókið ef allir taka
höndum saman og sammælast um
ákveðna sátt, þjóðarsáttmála um jákvæð
samskipti. Verkefnisstjórnin hvetur alla þá
fjölmörgu aðila og samtök, sem starfa á
þeim vettvangi sem átakið nær til, til þess
að taka höndum saman og helga 8. nóv-
ember baráttunni gegn einelti. Sérstak-
lega er þessu beint til leikskóla, grunn- og
framhaldsskóla, félags- og frístundamið-
stöðva, auk vinnustaða og stofnana. Ýmis-
legt er hægt að gera á þessum baráttu-
degi, s.s. með táknrænum viðburðum eða
viðfangsefnum sem hafa það að mark-
miði að beina umræðunni að einelti og
afleiðingum þess í samfélaginu.
Verkefnisstjórnin vonast til að sem
flestir í samfélaginu skrifi undir þjóðar-
sáttmálann og taki þátt í því að setja
umræðuna um einelti í brennidepil
þennan dag – málefnið er brýnt og til
mikils að vinna ef í sameiningu tekst að
koma á þjóðarsáttmála um jákvæð og
uppbyggileg samskipti.
Katrín Jakobsdóttir mennta- og menn-
ingarmálaráðherra flytur ávarp við
athöfnina í Höfða. Til vinstri Jón Gnarr
borgarstjóri, til hægri Guðbjartur
Hannesson velferðarráðherra.
Þjóðarsáttmáli gegn einelti undirritaður
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ,
undirritar yfirlýsinguna.
Dagana 27. nóvember – 3. desember
hélt Evrópa unga fólksins fjölþjóðlegt
námskeið á KEX Hostel sem bar heitið
Coach2Coach. Á námskeiðið mættu
25 þátttakendur frá 16 löndum. Allir
þátttakendur á námskeiðinu voru leið-
beinendur sem starfa með ungu fólki.
Markmið námskeiðsins var að þjálfa þá
í að leiðbeina hópum ungs fólks sem
eru að skipuleggja verkefni sem styrkt
eru af Evrópu unga fólksins. Þátttak-
endur tóku þátt í fjölmörgum krefjandi
verkefnum meðan á námskeiðinu stóð
Evrópa unga fólksins:
Fjölþjóðlegt námskeið – Coach2Coach
og var þá beitt aðferðum óformlegs náms
sem er eitt kennimerkja Evrópu unga fólks-
ins. Þátttakendur fóru í hlutverkaleiki, líktu
eftir framkvæmd verkefna og mátu dag-
lega framgang námskeiðsins.
Allir þátttakendur voru hæstánægðir
með námskeiðið og aðstöðuna á KEX
Hostel. Íslendingum, sem starfa með ungu
fólki, stendur til boða að sækja fjölmörg
álíka námskeið um alla Evrópu og má sjá
lista yfir þau á heimasíðu Evrópu unga
fólksins: www.euf.is.
Alex frá Þýskalandi leikur gjósku að streyma
úr eldfjalli.