Skinfaxi - 01.11.2011, Side 6
6 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Skinfaxi 4. tbl. 2011
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson.
Ábyrgðarmaður: Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ.
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson,
Ómar Bragi Stefánsson, Sigurður Guð-
mundsson, Hildur Bergsdóttir o.fl.
Umbrot og hönnun: Indígó.
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja.
Prófarkalestur: Helgi Magnússon.
Auglýsingar: Miðlun ehf. og
Gunnar Bender.
Ritnefnd:
Gunnar Gunnarsson, Kristín Hálfdánar-
dóttir og Óskar Þór Halldórsson.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFÍ,
Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Sími: 568-2929
Netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn UMFÍ:
Sæmundur Runólfsson, framkv.stjóri,
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri,
Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri Skinfaxa
og kynningarfulltrúi,
Sigurður Guðmundsson, landsfulltrúi,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki,
Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari.
Stjórn UMFÍ:
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður,
Haukur Valtýsson, varaformaður,
Jón Pálsson, gjaldkeri,
Eyrún Harpa Hlynsdóttir, ritari,
Björg Jakobsdóttir, meðstjórnandi,
Bolli Gunnarsson, meðstjórnandi,
Stefán Skafti Steinólfsson, meðstjórnandi,
Baldur Daníelsson, varastjórn,
Matthildur Ásmundardóttir, varastjórn,
Anna María Elíasdóttir, varastjórn,
Einar Kristján Jónsson, varastjórn.
Forsíðumynd:
Verðlaunaafhending og viðurkenningar
í almenningsíþróttaverkefnum UMFÍ fóru
fram í þjónustumiðstöð UMFÍ 8. desember
sl. Á myndinni eru þeir einstaklingar sem
gengu á flest fjöll. Frá vinstri: Guðbjartur
Guðbjartsson, Birna Steingrímsdóttir og
Ástríður Helga Sigurðardóttir. Á myndina
vantar Þröst Vilhjálmsson. Mjög góð
þátttaka var í verkefnunum í sumar.
Árið, sem nú er að renna sitt skeið á
enda, hefur verið afar viðburðaríkt í
sögu Ungmennafélags Íslands og
skal engan undra. Tvö stórmót voru
haldin, annað þeirra Landsmót
UMFÍ 50+ var haldið í fyrsta sinn á
Hvammstanga og hitt var Unglinga-
landsmótið sem haldið var í 14. sinn
á Egilsstöðum. Bæði þessi mót fóru
einstaklega vel fram og voru hreyf-
ingunni til sóma. UMFÍ stóð fyrir
fjölda annarra verkefna sem voru
vel sótt af almenningi.
Í okkar hraða þjóðfélagi, þar sem
hlutirnir breytast fljótt, eru mögu-
leikarnir endalausir. Styrkur og mátt-
ur UMFÍ er mikill og þessi fjölmennu
samtök munu hér eftir sem hingað
til vinna að góðum málum fyrir land
og þjóð. Miklir og spennandi tímar
blasa við og krafturinn og áræðnin
hafa aldrei verið meiri.
Félagar í hreyfingunni hafa margir
skarað fram úr á árinu sem er að líða.
Árangur knattspyrnuliða í sumar var
einstaklega góður, lið fóru upp um
deild og Stjarnan úr Garðabæ tryggði
sér Íslandsmeistaratitilinn í kvenna-
flokki í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Hópfimleikalið Gerplu úr Kópavogi
gerir það ekki endasleppt frekar en
fyrri daginn. Gerpla varð í nóvember
Norðurlandameistari en fyrir tæpu
ári síðan varð liðið Evrópumeistari í
þessari upprennandi íþróttagrein.
Árangur Gerplustúlkna er frábær,
þær eru handhafar tveggja stórra
titla. Það segir ýmislegt um þá gríð-
arlega vinnu sem liggur þar að baki.
Árið 2011 rennur brátt sitt skeið á
enda. Árið var viðburðaríkt hjá ung-
mennafélagshreyfingunni, hún stóð
í ströngu, en þegar litið er um öxl
mega félagar vera afar stoltir og geta
horft bjartsýnisaugum til framtíðar.
Á nýja árinu blasa við ný tækifæri.
Unglingalandsmót verður haldið á
Selfossi og Landsmót UMFÍ 50+ í
Mosfellsbæ. Margt fleira væri hægt
að nefna.
Íþrótta- og æskulýðsstarf hefur
aldrei verið mikilvægara en á þeim
tímum sem við lifum nú. Það er því
afar mikilvægt að hlúa vel að þess-
um málaflokki og að við pössum
upp á það sem aldrei fyrr að börn
og unglingar eigi greiðan aðgang
að íþrótta- og æskulýðsstarfi. Það er
án nokkurs vafa stór þáttur í öflugu
forvarnastarfi.
Skinfaxi óskar ungmenna-
félögum, sem og landsmönnum
öllum, gleðilegra jóla og farsældar
á nýju ári.
Íþrótta- og æskulýðsstarf
hefur aldrei verið mikilvægara
Jón Kristján Sigurðsson – ritstjóraspjall:
Á sjötta tug nemenda við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti komu í heimsókn í
þjónustumiðstöð UMFÍ 24. nóvember
sl. til að kynnast starfsemi hreyfingar-
innar. Nemendurnir voru flestir af
íþróttabraut skólans og komu í fylgd
Torfa Magnússonar, íþróttakennara
við skólann. Nemendurnir fræddust
um verkefni sem UMFÍ stendur fyrir og
sýndu mikinn áhuga í heimsókninni.
Nemendur af
íþróttabraut
FB fræddust
um starfsemi
UMFÍ
Helga Dagný Árnadóttir, verkefnastjóri hjá
Evrópu unga fólksins, fræddi nemendurna
um verkefnið og það sem er í boði fyrir þá
í Evrópu.
Nemendur af íþróttabraut Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti hafa komið reglulega
hin síðustu ár í heimsókn í þjónustumið-
stöðina. Þó nokkuð er um að hópar komi
og fræðist um starfsemina innan UMFÍ.