Skinfaxi - 01.11.2011, Side 9
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 9
Norðurlandamót 19 ára og yngri fór fram
í Kaupmannahöfn í haust. Íslensku kepp-
endurnir náðu mjög góðum árangri í mörg-
um greinum. Sveinbjörg Zophaníasdóttir
frá USÚ gerði sér lítið fyrir og varð Norður-
landameistari í langstökki þegar hún stökk
6,08 metra. Að auki voru nokkur aldurs-
flokkamet sett á mótinu.
Sveinbjörg náði frábærum árangri og
var 4 cm á undan þeirri sem varð í öðru
sæti. Besti árangur hennar á árinu var 6,07
m og því bætti hún sig um 1 cm. Besta
árangri sínum, 6,10 m, náði hún í fyrra.
Aníta Hinriksdóttir úr ÍR nældi vann gull
í 800 metra hlaupi og bronsverðlaun í
1500 metra hlaupi og setti auk þess tvö
aldursflokkamet. Hún bætti aldursflokka-
met 15 ára í 1500 metra hlaupi og var
einnig í sveit Íslands sem bætti aldurs-
flokkamet 18–19 ára í 4x400 m boðhlaupi.
Með heila 400 metra braut
út af fyrir sig
„Ég var búin að standa mig vel í allt sum-
ar og vissi að ég væri í góðu formi. Á meist-
aramótinu meiddi ég mig í aftanverðu lær-
inu þannig að það stóð tæpt hvernig mér
myndi reiða af á Norðurlandamótinu. Það
hafðist og því var árangurinn þar afar
ánægjulegur,“ sagði Sveinbjörg Zophanías-
dóttir í samtali við Skinfaxa.
Sveinbjörg hefur keppt undir merkjum
Ungmennasambandsins Úlfljóts fram að
þessu og sagði hún æfingaaðstöðuna fyrir
austan, á Hornafirði, vera mjög góða á
sumrin. Hún væri með heila 400 metra
braut út af fyrir sig. Brautin var sett niður
2007 í tengslum við Unglingalandsmótið
sem þar var haldið. Innanhússaðstaðan
væri hins vegar ekki nægilega góð en hún
hefði verið dugleg að sækja æfingar fyrir
sunnan á veturna.
Ætlar að spýta enn frekar í
lófana
Sveinbjörg sagði að eftir áramótin yrðu
breytingar á högum hennar en hún hyggst
setjast á skólabekk í Háskóla Íslands eftir
að hafa lokið framhaldsskólanámi á Horna-
firði. Sveinbjörg ætlar að leggja stund á
nám í uppeldis- og menntunarfræðum.
„Þetta verður töluverð breyting fyrir mig
að geta nú farið að æfa við bestu aðstæður
innandyra en ég legg aðaláherslu á lang-
stökkið og sjöþrautina. Mín markmið eru
að stefna enn hærra en segja má að ég hafi
æft stanslaust í fjögur ár og ég ætla að
halda mínu striki. Ég fer í betri aðstæður
og ætla að spýta enn frekar í lófana,“ sagði
Sveinbjörg en þess má geta að móðir
hennar, Guðrún Ingólfsdóttir, gat sér gott
orð sem kringlu- og kúluvarpari á sínum
tíma. Guðrún á enn núverandi Íslandsmet
í kringlukasti.
Draumurinn að verða
atvinnumaður
„Mamma hefur haft mikil áhrif á mig
og hvatti mig til að leggja stund á frjálsar
íþróttir. Hún hefur verið þjálfarinn minn
og fylgt mér í öllum keppnisferðum. Það
hefur verið mjög gott og góður stuðning-
ur við mig og virkað vel. Núna verður breyt-
ing á högum mínum þegar ég held suður
til náms en ég ætla að keppa með FH-ing-
um. Ég er bjartsýn á framhaldið og hef
sett stefnuna á Evrópumeistaramót full-
orðinna og svo er freistandi að stefna á
Ólympíuleikana 2016. Íþróttirnar hafa gefið
mér heilmikið en ef ég ætti mér einn draum
þá væri hann að vera atvinnumaður í
þessu. Íþróttirnar hafa verið stór partur af
lífi mínu síðustu ár og verða það áfram. Ég
hlakka til að takast á við ný verkefni fyrir
sunnan,“ sagði Sveinbjörg í spjallinu við
Skinfaxa.
Frjálsar íþróttir:
Sveinbjörg Zophaníasdóttir
Norðurlanda-
meistari
í langstökki
Sveinbjörg
Zophaníasdóttir,
USÚ, Norður-
landameistari í
langstökki.