Skinfaxi - 01.11.2011, Side 10
10 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Frjálsar íþróttir: Silfurleikarnir
haldnir í 16. sinn
Alls voru 559 keppendur skráðir til leiks frá
22 samböndum og félögum á hina árlegu
Silfurleika ÍR sem fram fóru í Laugardals-
höll 19. nóvember sl. Keppendur komu
víða að af landinu, s.s. vestan af Fjörðum,
frá Akureyri, úr Austur-Húnavatnssýslu, af
Suðurlandi og víðar þó að flestir hafi kom-
ið frá félögum á höfuðborgarsvæðinu.
Fjögur aldursflokkamet
Fjögur aldursflokkamet voru sett á mót-
inu. Bjarki R. Bjarnason frá Selfossi setti
nýtt met í 60 m hlaupi í flokki 13 ára pilta
en hann kom í mark á tímanum 7,77 sek.
Aníta Hinriksdóttir úr ÍR setti met í 800 m
hlaupi í flokki 15 ára stúlkna þegar hún
kom í mark á 2:13,38 mín. Félagi hennar
úr ÍR, Stefán Velimir, setti met í flokki
16–17 ára pilta með kast upp á 15,99 m.
Krakkar frá Ungmennafélagi Selfoss hafa mætt
vel á Silfurleika ÍR undanfarin ár. Til vinstri er hópur
sem tók þátt í þrautabrautinni ásamt þjálfara
sínum, Bríeti Helgadóttur. Til hægri eru eldri
krakkar ásamt Ágústu Tryggvadóttur þjálfara.
Reynir Zoega úr Breiðabliki setti met í þrí-
stökki 12 ára pilta, 11,17 m, en fyrra metið
var 10,53 m.
Þrautabraut
Á þessu móti er boðið upp á sérstaka
keppni í þrautabraut sem um 180 börn
tóku þátt í. Þrautabrautin samanstendur
af ýmsum frjálsíþróttagreinum og er hugs-
uð fyrir yngri börn. Fjölbreytt aldurssam-
setning keppenda var mjög mismunandi,
þar voru börn fædd á árunum 1996–2006.
Ólympíuafrek Vilhjálms
Mótið er haldið til heiðurs Vilhjálmi Einars-
syni til að minnast þess atburðar þegar
hann vann afrek sitt á Ólympíuleikunum
í Melbourne árið 1956 en hann vann þar
fyrstur Íslendinga til verðlauna á Ólympíu-
leikum. Silfurleikarnir eru eitt af umfangs-
mestu frjálsíþróttamótum ársins en alls
voru um eitt hundrað sjálfboðaliðar starf-
andi á mótinu.
N
Ý
P
R
E
N
T
eh
f.
Leirhús Grétu Gallerí
Gallerí og vinnustofa
SUMAROPNUN
15. júní - 20. ágúst
mánudaga - föstudaga frá kl. 13-18
laugardaga frá kl. 13-16
VETRAROPNUN
21. ágúst - 14. júní
föstudaga frá kl. 13-18
Litla Ósi Húnaþingi vestra Sími 451 2482 og 897 2432