Skinfaxi - 01.11.2011, Blaðsíða 13
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 13
valinn til að vera varamaður í stjórn HSK.
Ég var þar um eins árs skeið og var í fram-
haldinu beðinn um að vera gjaldkeri en því
starfi sinnti ég í tíu ár. Það má því segja að
ég hafi verið í íþrótta- og félagsmálum frá
blautu barnsbeini. Litlu ungmennafélögin
í Flóanum eru alhliða félög, þau sinna
skemmtanahaldi, félagsmálum og íþrótt-
um í bland. Þau eiga sín félagssvæði og
hlúa vel að þeim á mörgum sviðum,“ sagði
Bolli Gunnarsson sem tók sæti í aðalstjórn
UMFÍ á sambandsþingi þess á Akureyri.
Bolli telur að spennandi og skemmtileg-
ir tímar séu fram undan hjá UMFÍ. Hann
átti ekki von á því fyrir nokkrum árum að
fara inn í stjórnina en honum finnst að ný
bylgja sé í gangi og það sé spennandi að
fá að vera með í henni og vera fulltrúi
hennar.
„Það kom margt nýtt fólk inn í stjórnina
og því fylgja margar nýjar og ferskar hug-
myndir. Það blæs manni þrótti í brjóst og
margar góðar hugmyndir eru í vinnslu.
Margir bjóða sig fram í nefndir og það eru
betri viðbrögð á því sviði en oft áður. Þetta
er ekki bara við heldur öll hreyfingin sem
er að lyfta sér upp,“ sagði Bolli Gunnarsson.
Haukur Valtýsson:
Hreyfingin gegnir
mikilvægu hlutverki
Haukur Valtýsson er varaformaður UMFÍ
en hann kom inn í aðalstjórnina á sam-
bandsþingi hreyfingarinnar á Akureyri.
Haukur hefur starfað töluvert innan ung-
mennafélagshreyfingarinnar, hjá Ung-
mennafélagi Akureyrar. Haukur sagði í
samtali við Skinfaxa að hann hefði hafið
störf hjá UFA 1999, þá fyrst sem varafor-
maður og síðan sem formaður í nokkur ár.
Eftir að hann hefði gengið úr stjórn hefði
hann komið að ýmsum verkefnum hjá
félaginu, m.a. að blaðaútgáfu og mörgu
öðru. Haukur hefur sl. sex ár setið í stjórn
ÍBA og er nú varaformaður sambandsins.
„Ég hef komið töluvert nálægt blak-
Bolli Gunnarsson:
Spennandi og
skemmtilegir tímar
fram undan
„Jú, það er spennandi verkefni að vera kom-
inn í stjórn UMFÍ og tiltölulega raunhæft
framhald af því að ég hef lifað og hrærst í
ungmennafélagshreyfingunni alla tíð. Ég
var lengi í ungmennafélaginu Baldri í Flóa
og í raun fæddur og uppalinn inn í það
félag. Fjölskylda mín var í félaginu og for-
eldrar mínir störfuðu þar mikið. Systkini
mín voru þar líka meira eða minna og má
segja að þetta hafi verið hluti af tilverunni.
Ég kom síðar inn í stjórn Baldurs og sat
þar fram yfir tvítugt og 1998 var ég síðan
íþróttinni og stjórnað m.a. öldungamót-
um sem haldin hafa verið á Akureyri. Ég
lék í nokkur ár með ÍS þegar ég var fyrir
sunnan og síðan KA, auk þess að þjálfa. Ég
hef síðan hlaupið í skarðið þegar vantað
hefur þjálfara. Í dag tekur maður þátt í öld-
ungablakinu sem gefur manni mikla
ánægju,“ sagði Haukur Valtýsson sem var
um árabil einn sterkasti blakmaður lands-
ins en hann á að baki 30 landsleiki.
Haukur sagði að sér litist mjög vel á að
vera kominn í stjórn Ungmennafélags Ís-
lands. Þetta væri spennandi og þessi hreyf-
ing hefði svo sannarlega eitthvað til mál-
anna að leggja.
„Mér hefur alltaf fundist UMFÍ hafa eitt-
hvað fram að færa til þjóðfélagsins og
þessi hreyfing gegnir mikilvægu hlutverki.
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á þáttum
sem lúta að forvarnamálum. Heilsuefling
ýmiss konar hefur ávallt verið mér ofarlega
í huga sem hefur það að leiðarljósi að bæta
heilsu íslensku þjóðarinnar. Lykillinn að því
að sitja í stjórn samtaka á borð við UMFÍ
er að hafa gaman af því sem maður tekur
sér fyrir hendur og líta á það á jákvæðan
hátt,“ sagði Haukur Valtýsson.
Stefán Skafti Steinólfsson:
Tækifærin næg og
það er bjart fram
undan
„Aðkoma mín að félags- og íþróttastörfum
var fyrst og fremst í gegnum mitt gamla
félag, UDN. Fyrst byrjaði ég reyndar með
Ungmennafélaginu Vöku á Skarðsströnd
og Stjörnunni í Saurbæ. Segja má að þarna
hafi íþróttaáhuginn byrjað fyrir alvöru,
þegar ég var ungur strákur. Ég keppti með
þeim á Landsmótum, meistara- og innan-
félagsmótum. Ég fylgdist síðan vel með og
þegar ég kom suður fór ég í Ungmenna-
félagið Skipaskaga á Akranesi og endaði
þar í stjórn sem gjaldkeri og hef verið það
í nokkur ár,“ sagði Stefán Skafti Steinólfs-
son sem tók sæti í stjórn UMFÍ eftir sam-
bandsþingið á Akureyri auk þess að sitja í
framkvæmdastjórninni.
Stefán Skafti sagðist ennfremur hafa
komið töluvert að starfsmannafélaginu á
vinnustað sínum. Hann hefði alla tíð fylgst
mikið með íþróttum og þá sérstaklega
frjálsum íþróttum. Hann sagðist í raun
vera alæta á íþróttir ef þannig mætti
komast að orði.
„Ég hef alltaf haft gríðarlegan áhuga að
öllu því sem kemur Ungmennafélagi
Íslands við í gegnum mín gömlu félög og
allt starfið. Mér finnst mjög spennandi að
starfa innan stjórnarinnar en allt starf sem
unnið er í UMFÍ á virkilega mikið erindi til
þjóðarinnar. Tækifærin eru næg og það
er bjart fram undan,“ sagði Stefán Skafti
Steinólfsson.
Frá stjórnarfundi
UMFÍ. Frá vinstri:
Einar Kristján Jóns-
son, Stefán Skafti
Steinólfsson, Björg
Jakobsdóttir og
Eyrún Harpa Hlyns-
dóttir.
Velkomin
á Selfoss
Verslunarmannahelgina 3.–5. ágúst 2012