Skinfaxi - 01.11.2011, Page 14
14 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Vinningshafar
í Ratleiknum
Við athöfn, sem haldin var á Bessastöðum
26. nóvember sl., voru vinningshöfum í
Ratleiknum afhent glæsileg verðlaun.
Þessi leikur var í tengslum við forvarnadag-
inn sem haldinn var 5. október. Ratleikur-
inn var samstarfsverkefni Ungmennafélags
Íslands, Íþrótta- og Ólympíusambands
Íslands og Bandalags íslenskra skáta.
Framhaldsskólarnir með
Þátttakan í ratleiknum var mjög góð
eins og endranær og tóku mörg hundruð
grunn- og framhaldsskólanemendur þátt
með því að svara ákveðnum spurningum
sem tengdust þeim aðilum sem að framan
greindi. Þess má geta að framhaldsskól-
arnir í landinu tóku að þessu sinni þátt í
forvarnadeginum í fyrsta skipti.
Vinningshafarnir, sem dregnir voru út,
voru Alma Stefánsdóttir, Menntaskólan-
um á Akureyri, Hugrún Harpa Björnsdóttir,
Vallaskóla á Selfossi, og Sigurbjörg Lovísa
Árnadóttir, Grunnskólanum á Egilsstöðum.
Besta myndbandið
Þá fór fram í fyrsta skipti samkeppni um
besta myndbandið. Bjarni Þórarinsson,
Tjarnarskóla, bar sigur úr býtum með mynd-
ina sem ber heitið Ekki byrja of snemma.
Snorri Hertervig, Tækniskólanum, lenti í
öðru sæti með myndina Bekkur í strand
og þeir Einar Ólafur Vilmundarson, Viktor
Daði Einarsson og Gunnar Agnarsson,
Flensborgarskóla, höfnuðu í þriðja sæti
með myndina Áfengi og heili.
Frá afhendingu viðurkenninga vegna
Ratleiks forvarnadagsins á Bessastöðum.
Framleiðum barmmerki
í öllum stærðum og
gerðum.
Mikið úrval af bikurum
og verðlaunapeningum.
Verið velkomin í verslun
okkar að Síðumúla 17
eða hafið samband í
síma 588-3244
fax 588-3246
netfang: isspor@simnet.is
F
M
BS