Skinfaxi - 01.11.2011, Qupperneq 16
16 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Vika 43
Í tilefni af Viku 43, Vímuvarnaviku 2011,
undirrituðu fulltrúar tuttugu félagasam-
taka, umboðsmaður barna og Guðbjartur
Hannesson velferðarráðherra yfirlýsingu
þar sem hvatt er til þess að réttur barna til
lífs án neikvæðra afleiðinga áfengis- og
vímuefnaneyslu sé virtur. Kveðið er á um
þennan rétt barnanna m.a. í barnasátt-
mála Sameinuðu þjóðanna, stefnumörk-
un Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og
hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.
Í yfirlýsingunni er bent á mikilvægi þess
að börn og ungmenni hafni neyslu áfengis
og annarra vímuefna, enda stafi þeim ýmis
hætta af neyslu þeirra. Sterk tengsl séu á
milli áfengis- og vímuefnaneyslu annars
vegar og ofbeldis, óábyrgs kynlífs, umferð-
arslysa og ýmissa slysa og óhappa hins
vegar. Einnig er bent á að mörg börn og
ungmenni verði einnig fórnarlömb neyslu
annarra, innan fjölskyldu sem utan, s.s.
vegna vanrækslu, fátæktar, ofbeldis, mis-
notkunar og sundraðra fjölskyldna.
Það er ósk þeirra sem standa að yfirlýs-
ingunni að fram fari umræða um hvernig
þessi réttur barnanna er virtur á ýmsum
sviðum samfélagsins, s.s. við stefnumót-
un og lagasetningu, í uppeldis- og skóla-
starfi, íþrótta- og tómstundastarfi og
hvarvetna þar sem börn koma við sögu.
Vímuvarnavikan – Vika 43 er árlegt
samstarfsverkefni fjölmargra félagasam-
taka sem starfa að forvörnum, vilja leggja
forvörnum lið og/eða hafa forvarnir að
markmiði starfs síns. Vímuvarnavikan í ár
er sú áttunda sem efnt er til.
Bókaútgáfan Tindur hefur gefið út bókina Íslensk knatt-
spyrna 2011 eftir Víði Sigurðsson en þetta er 31. árið í röð
sem árbók knattspyrnunnar á Íslandi kemur út. Bókin er
stærri en nokkru sinni fyrr, 256 blaðsíður og þar af 112 síður
í lit, en bækurnar undanfarin ár hafa verið 240 síður og mest
96 þeirra í lit. Hún er prýdd um 370 myndum, m.a. liðsmynd-
um af sigurvegurum í öllum flokkum á Íslandsmótinu.
Fjallað er ítarlega um Íslandsmótið 2011 í öllum deildum
og flokkum, mest um efstu deildir karla og kvenna en einnig
um neðri deildirnar og yngri flokkana. Bikarkeppnum karla
og kvenna eru gerð ítarleg skil, sem og landsleikjum Íslands
í öllum aldursflokkum og Evrópuleikjum íslensku liðanna.
Þá er fjallað um íslenska atvinnumenn erlendis, önnur mót
innanlands og margt fleira sem tengist
íslenskum fótbolta á árinu 2011.
Í bókinni er m.a. opinberað hvaða
leikmenn áttu flestar stoðsendingar í
efstu deildum karla og kvenna á árinu
en viðkomandi leikmenn eru verðlaun-
aðir af bókaútgáfunni Tindi við útkomu
bókarinnar.
Ítarleg viðtöl eru við Bjarna Guðjóns-
son, fyrirliða Íslandsmeistara KR, og
Gunnhildi Yrsu Jónsdóttur, fyrirliða
Íslandsmeistara Stjörnunnar, og rætt
við Þorlák Má Árnason sem náði besta
árangri með íslenskt landslið frá upp-
hafi þegar U17 ára lið kvenna komst í
fjögurra liða úrslit Evrópukeppninnar.
Íslensk knattspyrna 2011