Skinfaxi - 01.11.2011, Qupperneq 19
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 19
Munntóbaksneysla og notkun á nef-
tóbaki sem munntóbaki hefur höfðað sér-
staklega til ungra karlmanna og hefur
verið að aukast undanfarin ár.
Capacent Gallup hefur kannað notkun
munntóbaks meðal ungs fólks á aldrinum
16–23 ára fyrir embætti landlæknis í þrem-
ur könnunum. Sú fyrsta var gerð í október-
nóvember 2009, en sú síðasta í júní 2011.
Niðurstöðurnar sýna að neyslan er umtals-
verð og samkvæmt síðustu könnun segj-
ast um 20% pilta í þessum aldurhópi nota
munntóbak daglega. Langflestir, eða 86%,
segjast eingöngu taka íslenska neftóbakið
í vörina. Þessar niðurstöður eru í samræmi
við sífellt aukna framleiðslu Áfengis- og
tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) á neftóbaki,
sem hefur aukist úr 16,8 tonnum árið 2007
í 25,5 tonn á síðasta ári (2010).
Á Íslandi er með lögum bannað að
flytja inn, framleiða og selja allt munntó-
bak. Lögin tóku gildi 1. febrúar 1997 og
voru sett til að bregðast við tilskipun frá
Evrópusambandinu.
Í athugasemdunum með frumvarpinu
var bent á að þetta tóbak væri ávanabind-
andi ekki síður en tóbak sem er reykt.
Einnig var bent á að með þessum nýju
gerðum tóbaks væri einkum verið að höfða
til ungs fólks og sums staðar, t.d. í Svíþjóð,
með þeim afleiðingum að umtalsverður
hluti unglinga væri farinn að nota „reyklaust
tóbak“ að staðaldri.
Reynslan í öðrum
löndum
Í nýlegri samantekt miðstöðvar krabba-
meinsrannsókna í Heidelberg í Þýskalandi
um skaðsemi sænska munntóbaksins kem-
ur fram að þessi tóbaksneysla sé skaðleg
heilsu og valdi fíkn.
Bent er á að neysla þess höfði einkum til
ungs fólks og auki heildarneyslu tóbaks.
Ennfremur segir þar að ekki hafi verið sýnt
fram á að munntóbaksneysla sé gagnleg
leið til að hætta reykingum.
Reynslan frá Svíþjóð sýnir að munn-
tóbak er notað til að hætta að reykja í stað
þess að fá aðstoð við að hætta að reykja.
Um það bil einn af hverjum fjórum fyrrver-
andi reykingamönnum skipta yfir í munn-
tóbak en flestir reykingamenn ná árangri í
að hætta reykingum án þess að nota munn-
tóbak. Þeir sem hætta að reykja með því
að skipta yfir í munntóbak eru því háðir
tóbaki eftir sem áður. Munntóbaksneysla
meðal kvenna er lítil í Svíþjóð og flestar
konur, sem hætta að reykja, gera það án
þess að nota munntóbak í staðinn. Í Svíþjóð
er tóbaksneysla meðal karla mikil. Þótt hlut-
fall reykinga þar sé lágt og munntóbaks-
neysla mikil er lág tíðni reykinga fyrst og
fremst vegna þess að þeim fækkar sem
aldrei byrja að reykja. Þá er bent á það í
þýsku samantektinni að í mörgum Evrópu-
löndum sé tíðni reykinga á hraðri niður-
leið án þess að þar sé leyfður innflutning-
ur á sænska munntóbakinu.
ÁTVR kaupir sína hrávöru til framleiðslu
á íslensku neftóbaki frá Swedish Match,
helsta munntóbaksframleiðanda Svía.
Þannig getum við með nokkrum sanni
sagt að íslenska neftóbakið og sænska
munntóbakið sé sama tóbakið.
Á síðasta ári voru birtar niðurstöður úr
rannsókn sem Rannsóknir og greining
Er munntóbak skaðlaust?
vann fyrir Íþróttabandalag Reykjavíkur
(ÍBR). Þar kemur fram að munntóbaks-
neysla er svipuð hjá þeim sem stunda
íþróttir og þeim sem ekki stunda íþróttir.
Það kemur hins vegar vel í ljós að þeir sem
stunda íþróttir reykja mun minna en þeir
sem ekki stunda íþróttir.
Komið hefur fram í sænskum rannsókn-
um að munntóbaksneytendum er hætt-
ara við meiðslum en þeim sem ekki nota
munntóbak. Meiðsl í vöðvum, liðum,
hnjám, liðböndum og sinum og bak-
eymsli ýmiss konar voru algengari meðal
munntóbaksneytenda en þeirra sem ekki
notuðu munntóbak eða reyktóbak. Þessi
staðreynd ætti að vera öllum sem vilja ná
árangri í íþróttum næg ástæða til að láta
alla tóbaksneyslu eiga sig.
Viðar Jensson, verkefnisstjóri tóbaksvarna
hjá embætti landlæknis.
Oft heyrir maður munntóbaksneyslu borna saman
við reykingar og er þá sagt að munntóbak sé skað-
minna en reykingar. Þessi samanburður er villandi
því að fátt er jafnskaðlegt heilsunni og sígarettu-
reykingar. Eðlilegra er að bera hættuna af munn-
tóbaksneyslunni saman við það að nota alls ekki
tóbak.
Auglýsing úr herferð
Landlæknisembætt-
isins, ÍSÍ, KSÍ, UMFÍ
og ÁTVR.
Landsmót UMFÍ 50+
verður haldið í Mos-
fellsbæ 8.–10. júní
næsta sumar og eru
UMSK og Mosfells-
bær mótshaldarar.
Á fyrsta fundi landsmótsnefndar
skipti stjórnin með sér verkum og er
Valdimar Leó Friðriksson, UMSK, formað-
ur og Helga Jóhannesdóttir, Aftureld-
ingu, gjaldkeri. Mikil bjartsýni og ánægja
er með að mótið skuli vera haldið í Mos-
fellsbæ og allir eru staðráðnir í að gera
það sem veglegast.
Fyrsta Landsmót UMFÍ 50+ var haldið
á Hvammstanga sl. sumar og tókst afar
vel. Landsmót UMFÍ 50+ er fjölskyldu-
hátíð með fjölbreyttri dagskrá en ásamt
keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum
verða fyrirlestrar og kynningar.
Landsmót UMFÍ 50+ í Mosfellsbæ:
Undirbúningur hafinn af fullum krafti
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, og Valdemar Leó Friðriks-
son, formaður UMSK, undirrita samning um Landsmót UMFÍ 50+.