Skinfaxi - 01.11.2011, Blaðsíða 20
20 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Mjög góð þátttaka var
í almenningsíþrótta-
verkefnum UMFÍ í
sumar sem leið. Verð-
launaafhending fór
fram í þjónustumið-
stöð Ungmennafélags
Íslands 8. desember
sl. og voru þátttakendur í verkefninu
Hættu að hanga! Komdu að hjóla, synda eða
ganga og Fjölskyldan á fjallið verðlaunaðir
fyrir framtak sitt. Einstaklingar, sem dregnir
voru út fyrir að hafa hreyft sig í 30 daga, 60
daga og 80 daga fengu viðurkenningar.
Þeir einstaklingar sem gengu á flest fjöll
voru Birna Steingrímsdóttir, 109 fjöll, Guð-
bjartur Guðbjartsson, 83 fjöll, Þröstur Vil-
hjálmsson, 38 fjöll, og Ástríður Helga Sig-
urðardóttir sem gekk einnig á 38 fjöll.
Bjarni Bogar Jóhannsson fékk viðurkenn-
ingu fyrir að hreyfa sig í 30 daga, Lilja Hrund
Pálsdóttir viðurkenningu fyrir að hreyfa sig
í 60 daga, Hermann R. Jónsson fyrir að
hreyfa sig í 80 daga og Inga Birna Tryggva-
dóttir fyrir hreyfingu í 103 daga.
Hópar, sem hreyfðu sig mest, voru starfs-
fólk frá Maritech sem hreyfði sig í 424 daga,
Skautsmiðja Norðuráls í 392 daga, A-vakt
Almenningsíþróttaverkefni UMFÍ
– viðurkenningar afhentar
steypuskála Norðuráls og fjármálasvið
Norðuráls í 259 daga.
Hópar, sem gengu á flest fjöll, voru
C-vakt kerskála Norðuráls sem gekk á 65
fjöll, D-vakt kerskála Norðuráls, 23 fjöll, og
Maritech sem gekk einnig á 23 fjöll.
Verðlaunahafar fyrir Fjölskylduna á fjall-
ið voru Fjóla Dögg Konráðsdóttir, Aðal-
heiður Vilbergsdóttir, Rut Sigurðardóttir,
Þorgeir Vigfússon, Þórunn Sara Guð-
brandsdóttir og Eyjólfur Valur Gunnars-
son. Öll fengu þau bókaverðlaun fyrir
þátttökuna.
Í verkefninu Fjölskyldan á fjallið rituðu
um 20 þúsund manns nöfn sín í gestabæk-
ur sem hafði verið komið fyrir á 24 fjöllum.
Flest þessara fjalla eiga það sameiginlegt
að tiltölulega létt er að ganga á þau. Mark-
miðið er fyrst og fremst að fá einstaklinga
og fjölskyldur í léttar fjallgönguferðir og
stuðla þannig að aukinni samveru, útivist
og um leið góðri líkamsrækt. Göngugarp-
ar voru hvattir til að skrifa nöfn sín í göngu-
bækurnar á fjöllum. Á hverju hausti síðustu
ár hefur síðan verið dregið úr hópi þátttak-
enda og hinir heppnu hafa fengið sérstök
verðlaun fyrir framtak sitt.
Verkefnið heldur áfram næsta sumar og
verður það auglýst nánar þegar nær dreg-
ur. Gestabækur verða áfram á fjöllum og
ef til vill bætast fleiri fjöll við þau sem fyrir
eru. Ungmennafélag Íslands vill nota tæki-
færið og þakka öllum sem tóku þátt í verk-
efninu og vonast til að sjá sem flesta taka
þátt í verkefnum UMFÍ á næsta ári.
Hópar sem gengu
á flest fjöll. C- vakt
kerskála Norðuráls
gekk samanlagt
á flest fjöll, D-vakt
kerskála Norðuráls
og Maritech komu í
næstu sætum.
Einstaklingar sem
voru dregnir út.
Bjarni Bogar
Jóhannsson eftir 30
daga, Inga Birna
Tryggvadóttir eftir
103 daga og Lilja
Hrund Pálsdótt-
ir eftir 60 daga. Á
myndina vantar
Hermann R. Jónsson
sem dreginn var út
eftir 80 daga. Með
þeim á myndinni er
Helga Guðrún Guð-
jónsdóttir, formaður
UMFÍ, og Eyrún
Harpa Hlynsdóttir,
stjórnarmaður í
UMFÍ.
Hópar sem hreyfðu sig flesta daga. Maritech sem
lenti í fyrsta sæti, skautsmiðja Norðuráls, A-vakt
steypuskála Norðuráls og fjármálasvið Norðuráls
sem deildu þriðja sætinu.
Einstaklingar sem gengu á flest fjöll. Birna Stein-
grímsdóttir gekk á 109 fjöll, Guðbjartur Guðbjarts-
son gekk á 83 fjöll og Ástríður Helga Sigurðardótt-
ir gekk á 38 fjöll. Þröstur Vilhjálmsson, sem er ekki
á myndinni, gekk á 38 fjöll. Árni Magnús Björns-
son tók verðlaununum fyrir hönd Þrastar.