Skinfaxi - 01.11.2011, Side 22
22 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Ungmennafélagið Íslendingur fagnaði
100 ára afmæli sínu þann 11. desember
síðastliðinn. Var tímamótanna minnst í
fjölmennu samsæti í sal Landbúnaðar-
háskólans á Hvanneyri. Það þótti við
hæfi því að félagið var stofnað á þeim
stað árið 1911.
Leiklist í 35 ár
Að sögn Helga Björns Ólafssonar, for-
manns Ungmennafélagsins Íslendings,
snýst starfsemi félagsins í dag að mestu
um íþróttastarf og hefur gert síðustu ár,
mest þó á sumrin, í frjálsum íþróttum og
knattspyrnu. Handbolti hefur líka verið
æfður og svo hefur fólk frá Íslendingi sótt
æfingar hjá Skallagrími í Borgarnesi. Helgi
Björn segir að starfssvæði félagsins sé á
Ungmennafélagið
Íslendingur 100 ára
Hvanneyri, gamli Andakílshreppur, sem er
Bæjarsveit líka, og svo Skorradalur. Helgi
Björn leggur einnig mikla áherslu á leik-
starfið sem búið er að halda úti samfleytt í
35 ár og leikrit er sett upp annað hvert ár.
Félagið rekur einnig Hreppslaug í Skorra-
dal en félagið hefur átt hana frá 1928. Laug-
in er elsta steinsteypta 25 metra laug lands-
ins sem er enn í notkun. Félagið réðst í
þetta þrekvirki í kringum 1928 og hefur
rekið laugina síðan. Þetta eru stærstu þætt-
irnir í starfsemi félagsins en félagið sér
einnig um íþróttamót á sumrin, Jóns-
messuhátíð og stundum hefur félagið stað-
ið fyrir jólatrésskemmtunum. Svo hafa ver-
ið sjálfstæðir hópar innan félagsins og
nefndi Helgi Björn í því sambandi þjóð-
dansahópa og blak en hafa þó verið
tengdir félaginu.
Nokkuð líflegt starf
„Eins og þessi upptalning sýnir er starfið
bara nokkuð líflegt. Við erum með í láni
smákompu hjá Landbúnaðarháskólanum
til að geyma hlutina okkar. Við erum einnig
með aðstöðu við sundlaugina en þar er
stórt sundlaugarhús sem var á sínum tíma
notað sem félagsheimili. Sundlaugin er
bara rekin á sumrin og það eru uppsprett-
ur í landinu sem hita upp laugina. Rekst-
urinn hefur stundum verið í járnum en
hún er mjög vinsæl á sumrin,“ sagði Helgi
Björn Ólafsson sem hefur verið formaður
Íslendings síðan 2010.
Helgi Björn sagðist vera búinn að vera
búsettur í sveitinni í 20 ár, var fyrst í námi
en hefur síðan starfað á Hvanneyri og átt
heima þar. Hann var gjaldkeri í stjórn
Íslendings fyrir tíu árum og starfaði í
nefndum. Svo kom hann aftur til starfa
2010 og varð þá formaður.
Frá 17. júní hátíðahöldum Ungmenna-
félagsins Íslendings á Hvanneyri 2009.
Veggspjald Ung-
mennafélagsins
frá afmælisárinu
1951. Myndina
gerði Björn Sigur-
björnsson.
Stjórn Umf. Íslendings 2011. Frá vinstri: Helgi Björn Ólafsson, formaður, Steinunn Hildur Benediktsdóttir, ritari, og Eyjólfur Kristinn
Örnólfsson, gjaldkeri.