Skinfaxi - 01.11.2011, Qupperneq 26
26 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
FIMLEIKAR:
Kvennalið Gerplu varð Norðurlanda-
meistari í hópfimleikum, en mótið fór
fram í Larvik í Noregi 12–13. nóvember
sl. Árangur Gerplustúlkna var frábær,
nú eru þær handhafar tveggja stærstu
titlanna í hópfimleikum en liðið er nú-
verandi Evrópumeistari í þessari grein.
Gerpla vann sannfærandi sigur og hlaut
samtals 49.100 stig. Sænska liðið Höganäs
varð í öðru sæti með 47.950 stig. Örebro
frá Svíþjóð lenti í þriðja sæti með 46.800
stig og B-sveit Gerplu lenti í sjötta sæti
með 42.700 stig.
A-sveit Gerplu hlaut flest stig allra í dans-
inum og á trampólíni en Höganäs flest stig
í æfingum á dýnu. Gerpla hlaut 16.550 stig
fyrir dansinn, 16.750 stig fyrir trampólín-
æfingarnar og 15.800 stig fyrir æfingar á
dýnu.
Keppnin var mjög spennandi og þurfti
hópurinn svo sannarlega að leggja allt und-
ir til að sigra á mótinu. Eftir fyrstu umferð
var Gerpla P1 í fjórða sæti eftir nokkuð lága
einkunn á dýnustökki miðað við styrkleik-
ann í stökkunum sem stúlkurnar sýndu en
þær fengu 15,8 stig fyrir æfingar sínar.
Fyrir ofan þær var lið Höganäs með 16,15
og Bolbro með 16,1 og einnig Örebro með
16,05. Það var því á brattann að sækja.
Næst fóru stúlkurnar í trampolínstökk.
Framkvæmdu þær æfingar sínar mjög vel
með miklum erfiðleikagildum sem skiluðu
alls 16,75 sem var jafnframt hæsta einkunn
á öllum áhöldum í kvennaflokki. Eftir aðra
umferð leiddi Gerpla P1 mótið en þó aðeins
með 0,1 stigi. Því var rafmagnað andrúms-
loft í íþróttahöllinni í Larvik þegar stúlkurn-
ar í P1 úr Gerplu byrjuðu æfingar sínar á
gólfi við mikinn fögnuð fjölmargra Íslend-
inga sem voru viðstaddir. Stúlkurnar hafa
áður hlotið mjög háar einkunnir á gólfi og
vissu að með fullkomnum æfingum stæðu
þær uppi sem sigurvegarar. Dansinn hjá
stúlkunum var óaðfinnanlegur sem skilaði
þeim 16,55 stigum en það var einnig lang-
hæsta einkunn sem gefin var í kvenna-
flokki fyrir gólfæfingar. Því má segja að
með feiknasterkum æfingum á trampolíni
og gólfæfingum hafi hópurinn náð að
vinna sig upp úr fjórða sæti í fyrsta sæti og
sigra með yfirburðum, samtals 49,1 stigum.
Í öðru sæti varð Höganäs með 47,95 stig
og Örebro með 46,8 stig en þessi lið eru
bæði frá Svíþjóð.
Þegar upp er staðið hefur stúlkunum
því, þrátt fyrir áföll í aðdraganda mótsins,
tekist að landa Norðurlandameistaratitli í
hópfimleikum. Eru þær því bæði ríkjandi
Norðurlanda- og Evrópumeistarar í hóp-
fimleikum kvenna. Það er árangur sem
vert er að staldra við.
Að sögn Dóru Sifjar Óskarsdóttur, sem
búsett er í Noregi og æfði árum saman með
Gerplu, var sérstaklega gaman að fylgjast
með framgöngu stúlknanna í P1 sem hafi
heillað alla í höllinni en jafnframt hafi verið
ánægjulegt að fylgjast með öllum íslensku
keppendunum. Það er auðséð að mikið og
gott starf er unnið í fimleikafélögunum á
Íslandi í dag að sögn Dóru Sifjar.
Lið Stjörnunnar/Ármanns keppti í blönd-
uðum flokki og vann til bronsverðlauna.
Norðurlandameistararnir eru: Ásdís Guð-
mundsdóttir, Ásta Þyrí Emilsdóttir, Eva
Dröfn Benjamínsdóttir, Fríða Rún Einars-
dóttir, Glódís Guðgeirsdóttir, Hafdís Jóns-
dóttir, Harpa Snædís Hauksdóttir, Hrefna
Þorbjörg Hákonardóttir, Íris Mist Magnús-
dóttir, Jóhanna Gunnarsdóttir, Karen Sif
Viktorsdóttir, Kristjana Sæunn Ólafsdóttir,
Sif Pálsdóttir, Sigrún Dís Tryggvadóttir og
Valgerður Sigfinnsdóttir.
Gerpla handhafi tveggja stærstu titlanna í hópfimleikum