Skinfaxi - 01.11.2011, Síða 30
30 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Telma Rut Frímannsdóttir úr Ungmenna-
félaginu Aftureldingu varð þann 19. nóv-
ember sl. Íslandsmeistari í kumite. Telma
bar sigur úr býtum í tveimur flokkum, -61
kg flokki og opnum flokki kvenna, annað
árið í röð. Telma lagði Aðalheiði Rósu Harð-
ardóttur frá Akranesi í úrslitum í opnum
flokki en þessar tvær stúlkur hafa skarað
fram úr í þessari íþróttagrein hin síðustu
misseri. Keppendur í opna flokknum voru
um 60 talsins.
„Ég er búin að æfa kumite í tíu ár eða frá
því að ég var níu ára gömul. Ég fór í byrjun
með vinkonu minni til að prófa og síðan
varð ekki aftur snúið. Ég hélt áfram en vin-
kona mín hætti. Það fór að ganga vel þeg-
ar ég mátti fyrst keppa í íþróttinni en þá
var ég 12 ára gömul, en ég hef alltaf keppt
Helgina 26.–27. nóvem-
ber sl. fóru þrír kepp-
endur frá júdódeild
Umf. Selfoss til keppni á
Hilleröd International í Danmörku ásamt
19 öðrum keppendum frá JR og ÍR. Mótið,
sem var mjög fjölmennt, var nú haldið í
30. sinn, en það er fyrir keppendur 21 árs
og yngri. Keppendur komu flestir frá Norð-
urlöndunum en einnig víða að úr Evrópu.
Þeir Grímur Ívarsson, Úlfur Böðvarsson og
Egill Blöndal frá Selfossi fóru á mótið.
Úlfur Böðvarsson keppti í U13-flokki og
átti fimm viðureignir. Hann vann þær allar
og kom heim með gull. Fyrsta viðureignin
Helgina 5.–6. nóvember
sl. var Scandinavian
Open í sparring haldið í
Horsens í Danmörku. Þrír
keppendur frá taekwondodeild Umf. Selfoss
tóku þátt í keppninni. Skemmst er frá því
að segja að árangur þeirra var frábær.
Daníel Jens Pétursson vann gull í -80 kg
karlaflokki og var jafnframt kosinn kepp-
andi mótsins. Davíð Arnar Pétursson vann
silfur í -33 kg kadettflokki og Ingibjörg
Erla Grétarsdóttir vann gull í juniorflokki
kvenna. Þess má geta að Daníel og Davíð
eru bræður.
Mótið var gríðarsterkt og fjöldi kepp-
enda frá öllum Norðurlöndunum. Því er
óhætt að fullyrða að íslensku keppend-
Úr hreyfingunni
undir merkjum Aftureldingar í Mosfellsbæ,“
sagði Telma Rut Frímannsdóttir í spjalli við
Skinfaxa.
Telma sagði áhugann fyrir kumite alltaf
verða meiri hér á landi með hverju árinu.
Telma lætur sér ekki nægja að æfa og keppa
í kumite því að hún leikur einnig hand-
knattleik með meistaraflokksliði Aftureld-
ingar. Telma er nemandi við Menntaskól-
ann við Sund og lýkur stúdentsprófi næsta
vor.
„Það er meira en nóg að gera hjá mér en
ég ætla að halda ótrauð áfram í kumite og
einnig í handboltanum svo lengi sem ég
get. Ég er reyndar búin að vinna allt sem
hægt er á Íslandi svo það væri gaman að
fara að keppa meira erlendis og gera sitt
besta og bæta sig. Maður veit aldrei hvað
Telma Rut úr Aftureldingu
Íslandsmeistari í kumite
framtíðin ber í skauti sér en óneitanlega
væri gaman að fara erlendis og æfa, við
sjáum hvað gerist í þeim efnum,“ sagði
Telma Rut Frímannsdóttir.
Telma Rut Frí-
mannsdóttir,
Íslandsmeistari
í kumite.
Selfyssingar með tvö gull og eitt silfur
á Scandinavian Open í sparring
urnir hafi staðið sig frábærlega. Að vinna
til verðlauna á svona sterku móti er mikill
heiður og hvatning til að standa enn bet-
ur við bakið á afreksfólki okkar ásamt því
að hlúa enn betur að uppbyggingarstarfi
íþróttarinnar. Einnig vekur árangur þeirra
athygli hinna keppendanna og mótshald-
ara á Íslandi og þeim glæsilega árangri
sem taekwondofólk okkar er að ná.
Þessi árangur okkar frábæra taekwondo-
fólks er mikil hvatning fyrir alla, sem stunda
íþróttina, til að gera enn betur á æfingum,
mótum og í keppni.
Frá vinstri: Daníel Jens, Ingibjörg Erla og Davíð
Arnar. Með þeim á myndinni er Meisam Rafiei,
landsliðsþjálfari í sparring.
Gull og brons á júdómóti í Danmörku
var gríðarlega tvísýn en eftir þá glímu vann
Úlfur næstu glímur af öryggi. Flottur árang-
ur hjá Úlfi sem keppti á sínu fyrsta móti
erlendis. Grímur Ívarsson, sem einnig var
að keppa fyrsta í sinn erlendis, keppti í
U17. Grímur er 14 ára og var þar af leið-
andi í hópi yngstu keppenda í U17-flokkn-
um. Hann vann eina viðureign en tapaði
þremur. Þetta var fínn árangur hjá Grími í
erfiðum flokki. Egill Blöndal keppti í U17-
flokki. Egill hefur æft vel og keppir á öllum
mótum innanlands. Hann glímdi samtals
8 viðureignir og vann fimm sem skilaði
honum bronsverðlaunum. Egill er að skipa
sér í hóp fremstu júdómanna landsins.
Egill Blöndal
Ásbjörnsson júdó-
maður frá Selfossi
vann brons á Hill-
eröd International
í U17 flokki.