Skinfaxi - 01.11.2011, Qupperneq 32
32 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Menningin á sér engin landamæri og ekkert
svæði umfram annað. Það sannaðist eina
ferðina enn þegar undirrituð ók 40 mín-
útna leið frá Borgarnesi upp í sveit sunnu-
dagskvöldið 27. nóvember til að sjá upp-
færslu Ungmennafélagsins Dagrenningar
á Sölku Völku eftir Halldór Laxness. Verkið
var sett upp í félagsheimilinu Brautar-
tungu og að því stendur breiður hópur
fólks sem flest á heimili í Lundarreykjadal.
Í verkinu er kreppa og átök. Þeir ríku hirða
peningana af alþýðunni sem þó aflar
stærsta hluta þeirra og mestra raunverð-
mæta. Misréttið og fátæktin dafna. Ráða-
menn eru fjarlægir fólkinu og skilja ekki líf
þess og baráttu. Þessi lýsing gæti átt við
nútímann en hún á einnig við um sam-
félagið á Óseyri við Axlarfjörð, vettvanginn
í Sölku Völku.
Verkið kom út á árunum 1931–32 og er
því skrifað í kreppunni sem hófst með
falli banka í Bandaríkjunum í lok þriðja ára-
tugarins. Margt var því líkt með aðstæð-
um nú og þá og því einkar vel við hæfi að
taka Sölku Völku til sýningar í dag.
Leikritið er sett upp á aldarafmælisári
Dagrenningar, en leikdeild félagsins hefur
gjarnan valið sér metnaðarfull verkefni.
Leikendur eru rúmlega tuttugu frá níu bæj-
um í sveitinni og víðar – auk þriggja manna
hljómsveitar. Þetta er litríkur hópur sem
LEIKLIST:
tekst að skapa rík blæbrigði á sviðinu, bæði
í hreyfingum og túlkun á persónum. Tón-
listin málar sterka liti við textann og á sinn
þátt í aðdráttarafli sýningarinnar. Lýsingin
er falleg og sviðið stílhreint og haganlega
gert. Í raun er ótrúlegt hvað hægt er að að
nota það vel. Það iðar oft af lífi og fjöri en
þar eru líka hádramatískar senur sem fá
áhorfandann til að hljóðna við. Þannig er
leiklistin, góð túlkun getur slegið á marga
strengi. Í uppfærslu Dagrenningar eru
persónur vel mótaðar og heppilega hefur
verið valið í hlutverk. Það var viss atvinnu-
mannsbragur yfir sýningunni, maður fann
að hér hafði verið vandað til verks. Samt
er þetta flókið verk, saga Sölku Völku er
mikil örlagasaga með djúpri hugsun um
hugsjónir, örlög, drauma og veruleika.
Þetta er meitlaður texti sem á svo sannar-
lega mikið erindi við áhorfendur í dag.
Ég óska Dagrenningu til hamingju með
metnaðarfulla sýningu og hvet fólk til að
sækja hana vel. Menningin blómstrar í
dalnum.
Guðrún Jónsdóttir
Ungmennafélagið Dagrenning í Borgarfirði:
Salvör Valgerður á fjölunum
Frá leiksýningu Ung-
mennafélagsins
Dagrenningar á
leikritinu Sölku
Völku eftir sögu
Halldórs Laxness.