Skinfaxi - 01.11.2011, Side 33
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 33
Brynjar Gauti Snorrason og Daði Fannar
Sverrisson urðu Íslandsmeistarar í sínum
aldursflokkum í spjótkasti á Meistaramóti
Íslands í frjálsum íþróttum 15–22 ára sem
var haldið á Akureyri 27. ágúst sl. Brynjar
Gauti kastaði spjótinu 39,43 metra í flokki
pilta 18–19 ára. Hann varð að auki annar
í 1500 metra hlaupi og þriðji í 800 metra
hlaupi.
UÍA eignaðist tvo Íslandsmeistara í spjótkasti
Daði Fannar þeytti spjótinu 46,53 metra
og sigraði í flokki 15 ára pilta. Hann varð
að auki annar í sleggjukasti, kringlukasti,
kúluvarpi og þrístökki auk þess að hljóta
bronsverðlaun í 100 metra grindahlaupi.
Örvar Þór Guðnason, þriðji UÍA-maður-
inn, vann bronsverðlaun í hástökki. Þeir
keppa allir fyrir Íþróttafélagið Hött.
Brynjar Gauti
Snorrason, Íþrótta-
félaginu Hetti.
Daði Fannar Sverrisson, Íþróttafélaginu Hetti. Mynd að ofan: Brynjar Gauti Snorrason, Daði
Fannar Sverrisson og Örvar Þór Guðnason, allir í
Íþróttafélaginu Hetti.
Úr hreyfingunni