Skinfaxi - 01.11.2011, Blaðsíða 36
36 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Úr hreyfingunni
Sundráð UÍA stóð fyrir bikarmóti í sundi 19.
nóvember sl. og fór það fram á Djúpavogi.
Ríflega 80 keppendur á aldrinum 6–16 ára
tóku þátt í mótinu og ríkti góð stemming
meðal keppenda og áhorfenda. Fram-
kvæmd mótsins gekk afar vel enda lögðu
margir sjálfboðaliðar hönd á plóginn.
Mótið er stigamót milli sunddeilda á
Austurlandi þar sem keppt er um sæmdar-
heitið bikarmeistari Austurlands. Einnig
eru veitt verðlaun fyrir næststigahæsta
liðið og stigahæstu karla- og kvennalið.
Sunddeild Hattar átti stigahæsta karlalið
mótsins og nældi það sér í 183 stig en
Neisti átti stigahæsta kvennaliðið með
189 stig.
Neisti hreppti titilinn bikarmeistari Aust-
urlands þriðja árið í röð, með 363 stig. Brut-
ust út mikil fagnaðarlæti meðal heima-
manna er úrslitin voru kunngjörð en að
þessu sinni fékk Neisti harða keppni frá
Neisti bikarmeistari Austurlands í sundi þriðja árið í röð
Hetti sem varð í öðru sæti með 332 stig.
Leiknir hafnaði í þriðja sæti með 162 stig
og Sindri í því fjórða með 158 stig.
Í tengslum við mótið var boðið upp á
æfingabúðir í sundi á sunnudeginum og
tókust þær vel í alla staði. Það voru því
þreyttir en glaðir sundgarpar sem héldu
heimleiðis frá Djúpavogi.
Ungmennafélagið
Neisti hreppti titilinn
bikarmeistari Austur-
lands þriðja árið í röð.
Stigamót UÍA í frjálsum
íþróttum fór fram í
Fjarðahöllinni laugar-
daginn 26. nóvember sl.
Keppt var í 60 m hlaupi,
60 m grindahlaupi og þrístökki í flokkum
stelpna og stráka 11 ára, 12–13 ára, 14–15
ára og 16 ára og eldri. Þátttaka hefði mátt
vera betri en um 20 keppendur mættu til
leiks. Gaman var þó að sjá hve þeir komu
frá mörgum félögum en 6 félög áttu kepp-
endur á mótinu.
Mótið var, eins og nafnið gefur til kynna,
stigakeppni þar sem keppendur söfnuðu
stigum fyrir hverja grein. Í lok móts var
stigahæsti einstaklingur í hverjum flokki
verðlaunaður.
Svellkalt stigamót UÍA í frjálsum
Hlutskörpust urðu:
Stelpur 11 ára:
Heiða Elísabet Gunnarsdóttir, Þrótti.
Strákar 11 ára:
Daði Þór Jóhannsson, Leikni.
Stelpur 12–13 ára:
Hrefna Ösp Heimisdóttir, Hetti.
Strákar 12–13 ára:
Mikael Máni Freysson, Þristi.
Strákar 14–15 ára:
Daði Fannar Sverrisson, Hetti.
Karlar 16 ára og eldri:
Örvar Þór Guðnason, Hetti.
Sigurvegararnir hlutu fallega verðlauna-
gripi úr gleri sem minntu um margt á
ísmola, en það fór vel á því, enda afar kalt
í Fjarðahöllinni þennan dag.
Dregin voru út tvenn útdráttarverðlaun
og féllu þau í skaut Einars Bessa Þórólfs-
sonar, Þristi, sem fékk glaðlegt hreindýra-
jólabindi til að skarta um hátíðarnar, og
Jóhönnu Malenar Skúladóttur, Þristi, sem
fékk hreindýrshornaspöng og rautt
Rúdólfsnef.
Sigurvegarar stiga-
keppninnar. Á mynd-
ina vantar Hrefnu
Ösp Heimisdóttur.
Sprettur, afrekssjóður UÍA og Alcoa, styrkir
árlega ungt og efnilegt íþróttafólk á Aust-
urlandi til frekari afreka og öfluga þjálfara
og íþróttafélög á svæðinu til góðra verka.
Alls bárust 37 bárust umsóknir í sjóðinn
að þessu sinni.
Laugardaginn 26. nóvember sl. fór fram
formleg afhending styrkja úr sjóðnum í
íþróttahúsinu á Reyðarfirði.
Afreksstyrki hlutu Heiðdís Sigurjóns-
dóttir, frjálsíþrótta- og knattspyrnukona,
Hetti, og Lilja Einarsdóttir, blakkona, Þrótti,
100.000 kr. hvor. Þeir Andrés Kristleifsson
og Eysteinn Bjarni Ævarsson, körfuknatt-
leiksmenn úr Hetti, hlutu 50.000 kr. hvor.
Iðkendastyrki að upphæð 50.000 kr.
hlutu Alexandra Sigurþórsdóttir, fimleika-
Styrkhafar ásamt Guðnýju Björgu Hauksdóttur,
fulltrúa úthlutunarnefndar. Á myndina vantar
nokkra af styrkhöfum.
kona úr Hetti, Eiríkur Ingi Elísson, skíða-
maður úr Skíðafélaginu í Stafdal, Lilja
Tekla Jóhannsdóttir, skíðakona úr Þrótti,
Ragnar Pétursson, knattspyrnumaður
úr Hetti, og Örvar Þór Guðnason, frjáls-
íþróttamaður í Hetti.
Þjálfarastyrki hlutu: Eysteinn Húni
Hauksson, knattspyrnuþjálfari hjá Hetti,
60.000 kr., fimleikadeild Hattar 50.000 kr.
og Bjartur Þór Jóhannsson, skíðaþjálfari
hjá Þrótti, 40.000 kr.
Félagsstyrki hlutu Skautafélag Aust-
urlands 50.000 kr. vegna uppbyggingar
vélfrysts skautasvells, blakdeild Hattar
50.000 kr. vegna blakæfinga fyrir 10–12
ára og skíðadeildir Austra, Vals og
Þróttar 50.000 kr. vegna skíðaskóla.
Úthlutað úr Spretti, afrekssjóði UÍA og Alcoa