Skinfaxi - 01.11.2011, Page 46
46 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Eftirtaldir aðilar
styðja starfsemi
Ungmennafélags Íslands:
Varmahlíð
Akrahreppur, Skagafirði
Akureyri
Framtal sf., Kaupangi, Mýrarvegi
Haukur og Bessi tannlæknar
Ísgát ehf., Laufásgötu 9
Raftákn ehf., Glerárgötu 34
Tannlæknastofa Árna Páls
Halldórssonar, Mýrarvegi
Tannlæknastofa Ragnheiðar Hansdóttur,
Kaupangi, v/Mýrarveg
Vélsmiðjan Ásverk ehf.,
Grímseyjargötu
Húsavík
Jarðverk ehf., Þingeyjarsveit, Birkimel
Laugar
Framhaldsskólinn á Laugum, Laugum
Reykjadal
Vopnafjörður
Hólmi NS-56 ehf., Hafnarbyggð 23
Ljósaland ehf., verktakafyrirtæki,
Háholti 3
Egilsstaðir
Birta ehf., Egilsstöðum og Reyðarfirði,
Miðvangi 2–4
Héraðsprent ehf., Miðvangi 1
Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf.,
Einhleypingi 1
Seyðisfjörður
Seyðisfjarðarkaupstaður,
Hafnargötu 44
Eskifjörður
Eskja hf., Strandgötu 39
Fáskrúðsfjörður
Loðnuvinnslan hf., Skólavegi 59
Höfn í Hornafirði
Skinney - Þinganes hf., Krossey
Selfoss
AB-skálinn ehf., Gagnheiði 11
Búnaðarsamband Suðurlands,
Austurvegi 1
Kvenfélag Hraungerðishrepps
Veitingastaðurinn Menam,
Eyrarvegi 8
Búnaðarfélag Grafningshrepps,
Villingavatni
Kvenfélag Gaulverjabæjarhrepps,
Galtastöðum
Hveragerði
SportTæki ehf., Austurmörk 4
Þorlákshöfn
Fiskmark ehf., Hafnarskeiði 21
Járnkarlinn ehf., Unubakka 25
Eldhestar ehf., Völlum
Laugarvatn
Menntaskólinn að Laugarvatni
HVAR
ERU ÞAU
Í DAG?
Sigríður Anna
Guðjónsdóttir
Sigríður Anna Guðjónsdóttir, frjálsíþrótta-
kona úr HSK, á enn í dag Íslandsmetin í
þrístökki, innan- og utanhúss. Íslandsmet
hennar utanhúss frá 1997 er 13,18 metrar
og er því orðið 14 ára gamalt. Sigríður
Anna er í hópi okkar sterkustu stökkvara
en hún var mjög áberandi þegar ferill
hennar stóð sem hæst.
Sigríður Anna segir að hún hafi allan feril
sinn keppt fyrir HSK en hún keppti með hléum
til 1998. Sigríður Anna er yfirþjálfari frjáls-
íþróttadeildar Umf. Selfoss og kemur einnig
að þjálfun meistarahópsins ásamt þremur
öðrum þjálfurum.
Sigríður Anna er íþróttakennari að mennt
og kenndi leikfimi og sund í 15 ár en hætti
því og kennir nú eingöngu stærðfræði við
Vallaskóla á Selfossi. Hún útskrifast í vor af
stærðfræðikjörsviði við Háskóla Íslands.
30 HSK-met á einu móti
„Umhverfi frjálsra íþrótta hefur tekið stakka-
skiptum á undanförnum árum. Með tilkomu
nýju frjálsíþróttahallarinnar breyttist aðstað-
an til muna og mér finnst mikið af efnilegum
unglingum vera að koma fram. Svo er einnig
vel staðið að þjálfun almennt og metnaður-
inn mikill. Frjálsar íþróttir eru í sókn. Til marks
um það er að unglingarnir eru að bæta sig og
verða enn betri. Hvað keppendur okkar í HSK
áhrærir þá voru sett 30 HSK-met á Silfurleik-
unum sem haldnir voru í nóvember sl. Þetta
segir sína sögu,“ sagði Sigríður Anna Guðjóns-
dóttir í samtali við Skinfaxa.
„Það er engum blöðum um það að fletta
að bætt aðstaða frjálsíþróttafólks hefur fleytt
íþróttinni fram. Hér á Selfossi eru aðstæður
frábærar og margir telja völlinn vera þann
„Íþróttirnar hafa
gefið mér gríðar-
lega mikið“
Sigursveit HSK í
1000 m boðhlaupi
á Landsmóti UMFÍ
í Borgarnesi 1997.
besta á landinu. Aðstæður eru allt aðrar en
þegar ég var að æfa og keppa. Þá hljóp ég á
malarbrautum svo að allir sjá hvað breyting-
arnar hafa orðið gífurlegar,“ sagði Sigríður
Anna.
Sjálfsagi og metnaður
Þegar Sigríður Anna var spurð hvað hefði
ýtt henni út í frjálsar íþróttir á sínum tíma
sagðist hún hafa elt vinkonur sínar en hún
sagði að áhuginn í byrjun hefði ekki verið
mikill. Það hefðu verið flottir þjálfarar á þeim
tíma. Vésteinn Hafsteinsson hefði þjálfað sig
þegar hún var 14 ára gömul, en þá náði hún
fyrsta Íslandsmeistaratitlinum. Kári Jónsson
þjálfaði hana síðan síðustu árin með góðum
árangri.
„Íþróttirnar hafa gefið mér gríðarlega mikið
og ég ég mun búa að iðkun þeirra alla mína
ævi. Maður byggir upp sjálfsaga og metnað
sem kemur að góðum notum í lífinu,“ sagði
Sigríður Anna Guðjónsdóttir.