Skinfaxi - 01.08.2011, Blaðsíða 21
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 21
KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA
UÍA stóð í samstarfi við Fjarðabyggð, Fljóts-
dalshérað og Náttúrustofu Austurlands fyrir
göngu á Grænafell í tilefni af Degi íslenskrar
náttúru. Um 30 Fjarðamenn gengu frá
Grænafellsvelli og sóttist leiðin á tindinn
nokkuð greiðlega. Þóroddur Helgason
fór fyrir göngumönnum og fræddi um
það sem fyrir augu bar. Gengið var upp
með hinu ægifagra Geitarhúsagili og var
þar margt að sjá framan af en þegar ofar
dró í fjallið skall á með þoku og útsýni af
tindinum var því ekkert. Þar var engu að
síður glaðst saman, nesti snætt og ung-
mennafélagsandinn dreginn, en allir
göngumenn drógu spjald með útskýringu
á hugtakinu ungmennafélagsandi. Um 30
Héraðsmenn gengu einnig á fjallið úr Fagra-
dal. Þar fór Guðrún Sóley Guðmundsdóttir
í broddi fylkingar og naut fulltingis Skarp-
héðins Þórissonar frá Náttúrustofu Austur-
lands, sem fræddi göngufólk um grös og
steina. Þokan lagðist ekki síður yfir Héraðs-
menn sem fetuðu upp hlíðar fjallsins hin-
um megin og sáu göngugarpar vart handa
sinna skil á tímabili. Það varð því úr að þeir
gengu á nyrðri tind Grænafells en fellið
skartar tveim tindum og fóru Fjarðamenn
á þann syðri. Þar sem þeim síðarnefndu lá
nokkuð á að komast niður til að sjá sína
menn sigra í Útsvari varð út að hluti hóps-
UÍA stóð
fyrir göngu á
Grænafell
ins fór niður sömu leið og þeir komu en
aðrir héldu áfram í gegnum hnausþykka
þokuna til móts við Héraðsmenn. Hóparnir
tveir höfðu kallast á dágóða stund í gegn-
um þokuna áður en þeir náðu saman og
var þá haft á orði að viðlíka gleði hefði vart
sést í fundum þessara nágrannasveitar-
félaga. Hóparnir gengu síðan niður saman
og drógu Héraðsmenn ungmennafélags-
andann að sér þegar niður var komið.
Gönguhátíðin Á Víknaslóðum var haldin á
Borgarfirði eystri um hvítasunnuhelgina.
Inn á milli gangna var boðið upp á létta
afþreyingardagskrá.
Á efri myndinni
má sjá hópinn sem
fór frá Grænafells-
velli en á neðri
myndinni þann
sem lagði á stað úr
Fagradal.