Skinfaxi - 01.08.2011, Blaðsíða 24
24 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
KNATTSPYRNA:
Stjarnan Íslandsmeistari í fyrsta sinn
Stjarnan í Garðabæ varð
Íslandsmeistari í knatt-
spyrnu kvenna árið
2011. Stelpurnar höfðu
tryggt sér titilinn eftir
3:0 sigur á Aftureldingu
þegar tvær umferðir voru
eftir af Pepsi-deildinni.
Stjarnan vann svo sannfærandi 5:0 sigur á
Breiðabliki í lokaumferðinni í Garðabæn-
um. Að leik loknum lyftu þær síðan bikarn-
um á loft við frábærar undirtektir þeirra
fjölmörgu stuðningsmanna sem mættu til
að fagna áfanganum með liðinu. Þetta var
fyrsti Íslandsmeistaratitill knattspyrnu-
deildar Stjörnunnar í meistaraflokki og því
mikill áfangi fyrir félagið. Stjarnan vann
alla leiki sína í ár nema einn og þar af 15 í
röð á tímabilinu, sem er met í efstu deild
kvenna. Liðið vann sannfærandi sigur í
deildinni og endaði níu stigum á undan
Val sem varð í öðru sæti. Þjálfari liðsins er
Þorlákur Már Árnason. Stjarnan átti þrjá
leikmenn í liði ársins, þær Önnu Björk
Kristjánsdóttur, Ashley Bares og Gunnhildi
Yrsu Jónsdóttur, sem jafnframt var valin
besti leikmaður Pepsi-deildar kvenna.
Karlalið Stjörnunnar náði einnig sínum
besta árangri frá upphafi en liðið endaði í
fjórða sæti Pepsi-deildar karla. Þrír Stjörnu-
strákar voru í liði ársins, þeir Daníel Laxdal,
Garðar Jóhannsson og Halldór Orri Björns-
son.
Stjörnustúlkur
fagna fyrsta
Íslandsmeistara-
titili félagsins í
meistaraflokki
kvenna.
Geir Þorsteinsson,
formaður KSÍ,
afhendir Gunn-
hildi Yrsu Jóns-
dóttur, fyrirliða
Stjörnunnar,
Íslandsbikarinn.