Skinfaxi - 01.08.2011, Blaðsíða 30
30 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Forvarnadagurinn 2011 heppnaðist
með ágætum en þetta var í sjötta
skipti sem hann er haldinn. Um 120
skólar víðs vegar um land tóku þátt í
atburðum sem sneru að vímuefna-
forvörnum ungmenna. Margir skólar
tóku dagskrána skrefinu lengra en
gert hefur verið og bættu hana, sem
er lofsvert framtak.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson,
og Dorrit Moussaieff forsetafrú heimsóttu
grunnskóla og framhaldsskóla á Akureyri
í tilefni dagsins. Heimsóttir voru Giljaskóli
og Lundarskóli og framhaldsskólarnir
Menntaskólinn á Akureyri og Verkmennta-
skólinn, en framhaldsskólar landsins tóku
í fyrsta skiptið þátt í Forvarnadeginum.
Forvarnadagurinn er haldinn að frum-
kvæði forseta Íslands, í samvinnu við Sam-
band íslenskra sveitarfélaga, Ungmenna-
félag Íslands, Íþrótta- og ólympíusam-
band Íslands, Bandalag íslenskra skáta,
Reykjavíkurborg og Actavis.
Sú nýjung var í ár að samstarf náðist við
framhaldsskóla landsins og var því í fyrsta
sinn efnt til myndbandasamkeppni á meðal
framhaldsskólanema. Aðkoma Forvarna-
dagsins að framhaldsskólum byggðist
m.a. á því að rannsóknamiðstöðin Rann-
sóknir og greining vann skýrslu þar sem
fram kom að fyrsta ölvunin er oft í byrjun
framhaldskólans. Hver og einn framhalds-
skóli fékk nú greiningu á stöðu áfengis-
og vímuefnaneyslu sem er byggð á spurn-
ingum um fyrstu ölvunina, þ.e. við hvaða
aðstæður, hvaðan kom áfengið/vímuefnin,
með hverjum var viðkomandi og aðrir
þættir sem snerta fyrstu ölvun ungmenna.
Forvarnadagurinn haldinn í sjötta sinn
Forsetahjónin ásamt nokkrum
stúlkum úr Giljaskóla á Akureyri
á Forvarnadeginum.
Niðurstöður sýndu að í efstu bekkjum
grunnskóla höfðu 9% nemenda orðið
ölvuð síðustu 30 daga en 43% 16 og 17
ára nemenda í framhaldsskóla. Því þótti
Forvarnadagurinn eiga fullt erindi til fram-
haldsskóla. Hugsjónin byggir á því að
einstaklingur, sem hefur ákveðið að hefja
ekki drykkju, fái stuðning í umhverfi sínu
til að standa við þá ákvörðun. Myndbanda-
samkeppnin miðaðist við að nemendur
búi til myndbönd þar sem þau lýsa því
hvað haldi þeim frá drykkju og hvers
vegna, á sinn eigin hátt.
Sjö íslensk ungmenni tóku þátt í verkefn
inu Börn á norðurslóðum sem haldið var í
Moskvu í Rússlandi dagana 20. ágúst til
2. september sl. Æskulýðsvettvangurinn
stóð fyrir þessari ferð en tuttugu liðum frá
tíu löndum var boðið á þennan viðburð.
Í hverju liði voru fimm einstaklingar á
aldrinum 14–16 ára ásamt fararstjóra.
UMFÍ þáði boð um að taka þátt í þessari
æskulýðshátíð en þátttakendurnir voru
Gerður Kolbrá Unnarsdóttir, Magnús Valur
Wilhelmsson Verheul, Kristján Örn Kristjáns-
son, Ásgrímur Ari Einarsson, Tryggvi Þór
Árnason, Benjamín Þór Sverrisson og
Andrea Björg Ómarsdóttir. Fararstjóri var
Kristján Gaukur Kristjánsson.
Á hátíðinni kynntu íslensku þátttakend-
urnir m.a. Ísland í máli og myndum en
ferðin í heild sinni heppnaðist vel og var
þroskandi í alla staði.
Æskulýðshátíð í Rússlandi:
Þroskandi ferð í alla staði
Íslensku þátttak-
endurnir, sem tóku
þátt í verkefninu í
Rússlandi, ásamt
fararstjóra.