Organistablaðið - 01.05.1969, Side 3
organisti við Fríkirkjuna í Hafnarfirði í 5 ár. Frá 1930—1965 var
ég organisti að Stóra-Núpi, og samtímis 10 ár í Landsveit.
— Hváð viltu segja um. álit þilt á harmonium, í kirkju og heim-
ilum og áhrif þess á tónmennt yfirleilt?
— Ég hef ekki nema gott um þau að segja. Þau hafa dugað mikið
til eflingar tónlistinni hingað til, og tel ég sennilegt þau geri það
framvegis.
-Ég sé að þú átt í fórum þínum fágœtt nólnasafn skrifað með
eigin hendi, hváð villu segja mér um það?
— Ástæðan fyrir því að ég tók til að skrifa nótur, var sú að
ég vildi eignast nótur, en efni lítil. Svo þegar ég fór að ferðast um
landið, sá ég ýmislegt er ég vildi eignast, var þá eina ráðið að skrifa
það upp. Nú á ég 15 stórar bækur innbundnar og efni i 5, sumt af
því fremur fágætt.
— Þú hafðir fleiri járn í eldinum á þessum árum?
— Já, ég starfaði hjá Ungmennafélögunum, æfði kóra og kenndi
að spila og tók þátt í samkomum þeirra. Var við þetta í 17 ár. Síðan
starfaði ég á vegum Kirkjukórasambands Islands og hélt með þeim
söngmót. Var þetta starf mitt eingöngu í 12 ár og var það hið
ánægjulegasta. Ég hef starfað með 125 kórum í öllum landsfjórð-
ungum og stofnað nokkra þeirra. Eins og kunnugt er, var Sigurður
Birkis upphafsmaður að stofnun Kirkjukórasambandsins og var mjög
ánægjulegt að vinna með honum að þessum málum, meðan hans
naul við. Einnig Iiefur verið ágætt að starfa með Jóni ísleifssyni,
sem er núverandi formaður Sambandsins.
— llváð villu scgja mér um. samstarf þitt með organistum og
kirkjulcórum víðsvegar um landið?
— Það samstarf hefur verið mjög ánægjulegt í alla staði. Alls
staðar mikill áhugi og fórnfýsi.
Eftir að hafa þegið afmæliskaffi með heimilisfólkinu og kvatt það,
fylgdi afmælisbarnið okkur út á hlað og kvaddi okkur með sínu
hlýja hand'aki og milda brosi. Við árnuðum honum heilla. Það var
fagurt á Stóra-Núpi þetta kvöld. G. S.
ORGANISTABLAÐIÐ 3