Organistablaðið - 01.05.1969, Qupperneq 6

Organistablaðið - 01.05.1969, Qupperneq 6
fyrir ('handstýrð) pípuorgel. Vanti þessi sérkenni, finnst áhevrend- um hljómurinn „lífvana“, „harður“ og „flatur“. — Hinn sveiflunar- lausi — og ef segja má — „kemiskt hreini“ tónn rafeindaorgelanna biriist hins vegar með fullum styrkleika þegar í stað, en það veldur þreylandi tilbreyiingarleysi. (Sú „gerviiibrá“, sem tekizt hefur að framleiða, þreylir einnig fljótt, þar eð orgelleikarinn fær engu um þokað). Hljómauðgi pípuorgelsins stafar að miklu leyti af „kórrœnum áhrifum“ (,,Choreffekt“), það er hin stærðfræðilega ónákvæma sam- hljómun yfirtónaraðanna á hintim einstöku orgelpípum, en hún læt- ur sérstaklega heillandi í eyrum manna. Hins vegar hefur rafeinda- orgelið aðeins einn „generator" (rafal) fyrir einn tón (á ódýrari tegundum meira að segja aðeins stakan „generator“ fyrir heila átt- und), en þaðan eru yfirtónaraðirnar teknar (sem aftur eru alveg hinar sömu). Gagnvart hljómrænu látleysi orgelpípunnar er hér á ferð hljómræn vönun, sem — samkvæmt reynslu — þreytir áheyr- endur fljótlega. Hin tilbúna yfirtónaröð rafeindaorgelanna er lialdin svo stærð- fræðilegu tilbreytingarleysi, að ókostir hinnar lempruðu tónstillingar aukast gjarnan þannig, að söngvurum og tónlistarmönnum reynist nánast ókleift að samlagast leik rafeindaorgels fullkomlega. Hljóm- sveitarstjórar og hljóðfæraleikarar hafa hvað eftir annað komizt að sömu niðurstöðu. Tónbókmenntir fyrir orgel eru í innsta eðli sínu fjölradda („poly- fón“) að gerð. En fjölröddun gerir ráð fyrir nokkru ví'ðfeðmi hljóm- tækjanna. Pípuorgelið hefur til að bera þetta spennisvið milli hassa og diskants, sem er hljóðeðlisfræðilega áhrifamikið og blasir einnig við augum manna, í enn ríkari mæli vegna mismunandi staðsetningar hinna einstöku hljómheilda („Hauptwerk", „Positiv", „Oberwerk“, o. s. frv.). En einu gildir hins vegar, hversu margar „raddir“ raf- eindaorgelið hefur, þær geta aðeins geislað í gegnum málmþynnur hátalaranna. Þrátt fyrir alla tæknilega fullkomnun hjá framleiðendum raf- eindaorgelsins verður hálalarinn óyfirslíganlegur múr milli hljóð- færis og hlustenda. Rafeindaorgelið getur ekki — cins og öll önnur hljóðfæri — náð til áheyrenda með neinum frumlónum, heldur er það óhjákvæmilega bundið hátalara sem tatknilegum miðli. (Frœðilega 6 ORGANISTABI.AÐIÐ

x

Organistablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.