Organistablaðið - 01.05.1969, Page 8

Organistablaðið - 01.05.1969, Page 8
HVERS VEGNA LÁTIÐ ÞÉR SYNGJA SÁLMANA EINRADDAÐA í GUÐSÞJÓNUSTUNNI? Svar vi& spurningunni, flutt á skírdagskvöld í Dóm- kirkjunni á vegum Brœ'ðrafélags Dómkirkjusafnaðarins. Ég vil taka það fram í byrjun, að ég tel mig ekki vera að gera neina byltingu í safnaðarsöng með því að láta syngja sálma ein- raddaða við Guðþjónusturnar. Safnaðarsöngur er aldagamall, þó alltaf jafn nýr og getur aðeins verið einraddaður. Hann er meðal til sameiningar þeirra, sem í kirkjuna koma og án þessa samsöngs er Guðsþjónustan ekki nema hálf, hvorki að formi né mætti. Um þetta held ég að hægt sé að vera sammála, en samt tökum við ekki undir, — hvers vegna ekki? Listrænan söng og safnaðarsöng er ekki hægt að sameina og liggja til þess margar ástæður. Fjórraddaður söngur verður að teljast til listræns söngs og þá liggur laglínan venjulega á því sviði, sem flest- um er óeðlilegt að syngja á. Þar að auki er listrænn söngur til þess að hlusta á og njóta í þögn. Við mundum tæplega telja það til kurteisi, ef áheyrendur á tónleikum tækju undir með þeim, sem tón- listina flyttu, en það væri nokkurn veginn samhljóða því, þegar við tökum undir við fjórraddaðan sálmasöng kirkjukórsins, því við verð- um að gera ráð fyrir því, að kórinn hafi æft sínar fjórar raddir og sé umhugað að skila sínu hlutverki vel. En hér stangast ýmislegt á. Orgelið flytur sömu raddirnar og kórinn syngur, þannig að söng- röddin nýtur sín ekki, hún getur livorki „intonerað“ eða myndað „fraseringar“ vegna þess, að tónninn í orgelinu er á vissan hátt „starr“ — eða dauður — þ. e. a. s. getur ekki fylgt sveiflum radd- arinnar og það leiðir af sér, að allar tilraunir kórsins til „núanser- inga“, eða tilbrigða í söng, koma ekki til skila. Dr. Páll ísólfsson sagði einhverntíma við mig: „vitanlega hlýtur almennur einraddaður söngur að verða hefð hér eins og annars stað- ar“, og mun Sigfús Einarsson hafa látið sömu skoðun í ljós, enda hef- ur það vafalaust vakað fyrir þeim frændum, þegar þeir undirbjuggu 8 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.