Organistablaðið - 01.05.1969, Blaðsíða 23
Pétur Sigurðsson,
tónskálcl frá Sauðárkróki.
Pétur Sigurðsson var fæddur á Geir-
mundarstöðum í Sæmundarhlíð í Skaga-
firði hinn 14. apríl 1899. Foreldrar
hans voru Sigurður bóndi þar Sigurðs-
son, Bjarnasonar bónda og smiðs á
Stóra-Vatnsskarði, og kona hans Ingi-
lijörg Halldórsdóttir smiðs Björnssonar
frá Hvalnesi. Var Pétur fjórða barn
foreldra sinna, af fimm. 011 voru þau
systkin hið mesta atgenúsfólk, en urðu
skammlif flest.
Pétur ólst upp með foreldrum sinum
til tvítugs aldurs eða til vorsins 1919.
Hinn 19. apríl það ár kvæntist hann
Guðrúnu Kristjönu Sigfúsdóttur, (f.
28. júní 1897) Björnssonar bónda á
Ölduhrygg í Svarfaðardal, og konu
hans Soffíu Zóphóníasdóttur bónda á
Bakka í sömu sveit, Jónssonar. Reistu
þau Pétur og Kristjana bú það vor,
á Mel hjá Reynistað og bjuggu þar til
vorsins 1923, er þau brugðu búi og
fluttu til Sauðárkróks. Var Kristjana
þá heilsutæp orðin og var svo um
langa hríð.
Þau hjónin eignuðust fjögur börn.
Pétur lézt úr skæðri lungnabólgu,
hinn 25. ágúst 1931, rúmlega 32 ára
og varð öllum harmdauði er til hans
þekktu. Pétur var óvenjulega bráð-
þroska og vel að sér gerr um flesta
hluti. Var ungur að árum með hærri
mönnum, sterkur vel, og kappsfullur.
Dökkur á brún og brá, fölleitur nokk-
uð í andliti, augun snör, — gátu orðið
mjög hvöss, við einbeitni hugans eða
geðbrigði. Tilfinningamaður mikill,
skapheitur, örlyndur og geðstór, en
tamdi skap sitt vel. Trygglyndur og
vinfastur. Hamhleypa til allra verka,
hagvirkur og frábær afkastamaður. —
„Af honum bæði gustur geðs og gerð-
arþokki stóð.“ Snemma þótti bera á
hljómlistargáfum hjá Pétri og nokkrti
fyrir fermingu fékk hann tilsögn i
organleik hjá Benedikt Sigurðssyni
bónda á Fjalli, er kenndi mörgum á
harmonium. Benedikt taldi Pétur lang
fremstan þeirra er hann hafði kennt.
Batt við hann miklar vonir og ævilanga
vináttu. Hvatti hann Pétur til að reyna
að afla sér frekari fræðslu. En þar var
ekki um auðugan garð að gresja. Þó
var Pétur um tíma við nám hjá Sigttr-
geiri Jónssyni organleikara á Akttr-
eyri, og auk þess las hann allt sem
hann komst yfir um hljómfræði og
tónsetningu. Þegar er Pétur kom frá
Akttrevri vann hann ósamt Benedikt
á Fjalli að því að stofna karlakór, og
fyrsti árangur var það, að vorið 1916
söng karlakvartett nokkttr lög á
skemmtisamkomu að Víðimýri og söng-
stjórinn var Pétur, þá aðeins 17 óra
gamall. Þetta var vísirinn að hinuro
ORGANISTABLAÐIÐ 23