Organistablaðið - 01.05.1969, Side 24

Organistablaðið - 01.05.1969, Side 24
nafntogaða skagfirska Bændakór. — Haustið eftir var söngmönnum fjölg- að um helming og var svo nokkur ár og aldrei urðu þeir fleiri en níu. Allt góðir söngmenn og sumir í hópnum afburða raddmenn. Bændakórinn starf- aði í 10 ár við hin örðugustu skilyrði. Þá voru lélegir vegir, þá voru engir bílar, )>á var sími ekki nema á ein- staka stað. Og vegalengd milli heim- ila kórmanna 40 til 50 kílómetrar. En söngur Bændakórsins varð flestum ógleymanlegur er á hlýddu. Fór þar saman frábær raddstyrkur og tóngæði og markviss og skörulcg stjórn hins unga, f'kapheita söngstjóra. Síðla vetrar 1926 lagðist þessi merkilega starfsemi niður. Sumir félaganna dóu, sumir fluttu úr héraðinu. Ógleymanlegum þætti í söngsögu Skagafjarðar var lokið. Organleikari við Reynistaðarkirkju varð Pétur fljótlega eftir að hann flutti að Mel. Hélt hann því starfi áfram, eftir að hann flutti til Sauðárkróks, allt til ársins 1924. Við Sauðárkróks- kirkju var Pétur organleikari frá árs- byrjun 1924 þar til í janúarbyrjun 1929, er við starfinu tók frændi hans, Eyþór Stefánsson. Þennan vetur, 1929, frá janúarlokum til vors stjórnaði Pétur nýlega stofnuðum kór frammi í firðinum, og gaf honum nafnið „Heim- ir“, sem hann hefur síðan borið, eða í 40 ár. Söngkennari við barnaskóla Sauðárkróks var Pétur frá þvi stuttu eftir komu sína þangað og til æviloka. Péturs Sigurðssonar mun lengi verða minnst í Skagafirði og víðar, sem frá- bærs söngstjóra og tónskálds. Sjálfur hélt hann tónsmíðum sínum litt á lofti, vissi sem var: Að þær voru ígripaverk á stolnum stundum frá harðri lifsbar- áttu fátæks manns, sem var framúr- skarandi skyldurækinn og kröfuharður við sjálfan sig. Mann sem skilaði al- veg ótrúlega miklu dagsverki á öðrum sviðum, og verður það ei rakið hér. Hann átti „söguna stutta en göfuga.“ Hulldór Bencdiklsson. Úr söngaríi kirkjunnar TUTTUGU OG TVEffi HELGISÖNGVAR FYRIR KÓRA OG SÖFNUÐI Róbert A. Ottósson hljómsetti og bjó til prentunar. Útgccfan tileinkuð KIRKJUKORASAMBANDI ISLANDS Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar 24 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.