Organistablaðið - 01.05.1969, Qupperneq 24
nafntogaða skagfirska Bændakór. —
Haustið eftir var söngmönnum fjölg-
að um helming og var svo nokkur ár
og aldrei urðu þeir fleiri en níu. Allt
góðir söngmenn og sumir í hópnum
afburða raddmenn. Bændakórinn starf-
aði í 10 ár við hin örðugustu skilyrði.
Þá voru lélegir vegir, þá voru engir
bílar, )>á var sími ekki nema á ein-
staka stað. Og vegalengd milli heim-
ila kórmanna 40 til 50 kílómetrar. En
söngur Bændakórsins varð flestum
ógleymanlegur er á hlýddu. Fór þar
saman frábær raddstyrkur og tóngæði
og markviss og skörulcg stjórn hins
unga, f'kapheita söngstjóra. Síðla vetrar
1926 lagðist þessi merkilega starfsemi
niður. Sumir félaganna dóu, sumir
fluttu úr héraðinu. Ógleymanlegum
þætti í söngsögu Skagafjarðar var
lokið.
Organleikari við Reynistaðarkirkju
varð Pétur fljótlega eftir að hann flutti
að Mel. Hélt hann því starfi áfram,
eftir að hann flutti til Sauðárkróks,
allt til ársins 1924. Við Sauðárkróks-
kirkju var Pétur organleikari frá árs-
byrjun 1924 þar til í janúarbyrjun
1929, er við starfinu tók frændi hans,
Eyþór Stefánsson. Þennan vetur, 1929,
frá janúarlokum til vors stjórnaði
Pétur nýlega stofnuðum kór frammi í
firðinum, og gaf honum nafnið „Heim-
ir“, sem hann hefur síðan borið, eða
í 40 ár. Söngkennari við barnaskóla
Sauðárkróks var Pétur frá þvi stuttu
eftir komu sína þangað og til æviloka.
Péturs Sigurðssonar mun lengi verða
minnst í Skagafirði og víðar, sem frá-
bærs söngstjóra og tónskálds. Sjálfur
hélt hann tónsmíðum sínum litt á lofti,
vissi sem var: Að þær voru ígripaverk
á stolnum stundum frá harðri lifsbar-
áttu fátæks manns, sem var framúr-
skarandi skyldurækinn og kröfuharður
við sjálfan sig. Mann sem skilaði al-
veg ótrúlega miklu dagsverki á öðrum
sviðum, og verður það ei rakið hér.
Hann átti „söguna stutta en göfuga.“
Hulldór Bencdiklsson.
Úr söngaríi kirkjunnar
TUTTUGU OG TVEffi HELGISÖNGVAR
FYRIR KÓRA OG SÖFNUÐI
Róbert A. Ottósson
hljómsetti og bjó til prentunar.
Útgccfan tileinkuð
KIRKJUKORASAMBANDI
ISLANDS
Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar
24 ORGANISTABLAÐIÐ