Organistablaðið - 01.05.1969, Qupperneq 25
Orgel Grindavíkurkirkju
Orgel Grindavíkurkirkju er byggt hjá Walcker í Lúðvíksborg 1967, upp sett
s. ár og úttekið á afmælisdegi fyrrv. organista kirkjunnar, Árna sál. Helga-
sonar, þann 27. okt. Páll Kr. Pálsson var ráðgefandi um gerð og raddval
orgelsir.s, sem er almekaniskt, með rennilokur, 2 nótnaborð og fótspil. —
Tschöckel orgelsmiður frá Walcker setti orgelið upp.
RADDSKIPAN:
I. tónborð:
Gedakt 8’
Piinzipal 4’
Sesquialtera 2föld
Mixtur 2—3föld
II. tónborð:
Gemshorn 8’
Rohrflöte 4’
Prinzipal 2’
Quinte 1’
Tremulant
Fótspil:
Subbass 16’
Trompete 8’
Choralbass 4’
Tengi:
II/I, I/ped., II/ped.
II. tónborð er inn-
byggt í svellkassa.
Við úttektina fluttu ávörp formaður sóknarnefndar, Einar Kr. Einarsson
skólastjóri, söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, dr. Robert A. Ottósson, prófastur-
inn, sr. Garðar Þorsteinsson og sóknarpresturinn, sr. Jón Árni Sigurðsson.
Organleikari kirkjunnar, Svavar Árnason oddviti, lék orgelverk eftir J. S. Bach
og stýrði sálmasöng, kirkjukórs og kirkjugesta. Loks lýsti Páll Kr. Pálsson
hljóðfærinu og kynnti hverja rödd fyrir sig og ,,sýndi*‘ ýmsa raddblöndunar-
möguleika og lék síðan verk eftir J. S. Bach, Buxtehude, Stanley og Whitlock.
Að lokinni athöfninni höfðu prestshjónin boð inni fyrir viðstadda.
Þess má geta að Svavar Árnason gaf sjáifur mikinn hluta orgelverðsins.
ORGANISTABLAÐIÐ 25