Organistablaðið - 01.05.1969, Síða 29

Organistablaðið - 01.05.1969, Síða 29
Félag íslenzkra organleikara. Musica sacra. Franski organleikarinn Jean-Luc Jaquenod, bróðir í Taize-reglunni kom til landsins um miðjan febrúar á veg- um F.Í.O. Lék Jaquenod á tvennum tónleikum Musica sacra, í Dómkirkj- unni þann 14. febr. og Laugarneskirkju daginn eftir. Norrœna kirkjutónlistarmótiS. Á fundi F.Í.O. þann 20. janúar sl. var samþykkt að fresta norræna kirkju- tónlistarmótinu um eitt ár vegna fjár- hagsörðugleika. Var það einróma álit fundarmanna að ekki væri mögulegt að halda mótið á sumri komanda með því takmarkaða fjármagni sem félagið hefur yfir að ráða. Söngskóli Kirkjukórasambands Reykjavíkurprófastsdœmis. Eins og kunnugt er stofnaði Kirkju- kórasamband Reykjavíkurprófastsdæm- is söngskóla síðastl. haust. F.Í.O. barst tilmæli frá Kirkjukórasamb. Rvíkur- prófastsdæmis þess efnis, að organleik- arar í Rvíkurpróf.d. tilnefndu einn fulltrúa í skólanefnd söngskólans. Að ósk organleikara tók Ragnar Björns- son sæti í skólanefndinni. Söngmálastjóri. F.Í.O. hauð söngmálastjóra á fund félagsins þann 20. jan. sl. Flutti söng- málastjóri stutt erindi um orgel til notkunar í kirkjum. Ræddi hann sér- staklega um rafeindaorgel og benti hlaðnefnd ó grein um það efni, sem væntanlega verður birt i blaðinu. Að erindinu loknu svaraði söngmálastjóri fyrirspurnum og ræddi við félagsmenn. Launamál. Launanefnd F.Í.O. og Samstarfs- nefnd þjóðkirkjusafnaða Reykjavíkur- prófastsdæmis áttu viðræður á nokkr- um fundum eftir óramót í vetur, ekki varð mikill árangur af þeim viðræðum og var fundum frestað um sinn. Tónleikar í Reykjavík og nágrenni. Reykvíkingar hafa átt kost á þrem orgeltónleikum það sem af er þessum vetri. Fyrstur var Haukur Guðlaugs- son, sem hélt nú sína aðra opinberu tónleika í Reykjavík. Haukur lék að þessu sinni á hið ágæta orgel Krists- kirkju. Það verður að segjast eins og er, að ekkert orgel höfuðstaðarins veitir organleikaranum jafn mikla ánægju og þetta vel heppnaða Fro- beniusar-orgel. Engin kirkja höfuðstað- arins skilar heldur jafnvel eiginleikum hljóðfærisins og Kristskirkja. Efnis- skráin samanstóð af Dorisku Toccöt- inni og fugunni, 10 af sálmforleikjum Baohs og C. Francks E-dur Choral. Ég þakka Hauki fyrir ánægjulegt kvöld, en hvers vegna ekki að halda sig ein- göngu við Bach, þetta kvöld, með allri virðingu fyrir C. Franck? Abel Rodrigues hélt tónleika í Dóm- kirkjunni í byrjun febrúar. Rodrigues er ungur organleikari frá Mexikó, sem róðinn var organleikari við Selfoss- kirkju á síðastliðnu hausti og einnig kennari við tónlistarskólann þar á staðnum. Efnisskráin á þessum tónleik- um var 17 tilbr. um „Allein Gott in ORGANISTABLAÐIÐ 29

x

Organistablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.