Organistablaðið - 01.05.1969, Qupperneq 31

Organistablaðið - 01.05.1969, Qupperneq 31
í tilefni þessa, baíS OrganistablaSiS hann um nokkrar línur um starfið. Hann segir m. a.: — Ég réðst sem organisti við Kálfa- fellstaðarkirkju 1. des. 1928. Kirkjan var þá aðeins eins árs gömul og prestur séra Jón Pétursson. Þegar ég tók viö starfinu, var mitt fyrsta verk að stofna 4-raddaöan kór. Var áhugi mikill hjá fólkinu, sem var búsett dreift um alla Suðursveit. Var æft af miklu kappi og sungið við messu á jóladag sama ár. Þetta tókst vonum framar, og þótti stórviöburður þá. Forsöngvari í kirkj- unni, áður en ég tók við, var Sigur- björn Björnsson, síðar tengdafaðir minn. Oftast var sungið án undirleiks og þá einraddað. Hann liafði sérstak- lega tónvissa söngrödd. Ágústa dóttir hans, kona mín, virðist hafa erft söng- gáfur föður síns enda sungið alla tíð síðan í kirkjukórnum, og verið mér ómetanleg aðstoð í starfi mínu. Við hjónin fluttum svo til Horna- fjarðar 1952. Höfum við starfað að kirkjusöng hér síðan. Kórinn okkar er um 20 manns, margt góðra radda, fé- lagslíf gott og áhugi mikill. Hér höf- um við fengið nýja kirkju, sem var vígð fyrir þremur árum og í hana lítið hljómfagurt pípuorgel, sem von- andi á eftir að verða lyftistöng í kirkju- starfinu. Á síðastliðnum jólum, barzt mér gjöf í tilefni 40 ára starfsafmælisins, vegleg heimilisklukka, með fagurlega gerðri áletrun frá Hafnarsöfnuði. G. S. Eyþór Ste/ánsson organleikari á Sauðárkróki átti 40 ára starfsafmæli 28. janúar sl., sem organleikari Sauðárkrókskirkju. Obl. bað hann að segja frá starfi sínu og rifja upp endurminningar. Honum seg- ist svo frá: Eftir kirkjubókum Sauðárkróks- kirkju, hafa þessir menn verið þar organleikarar: Kristján Gíslason, kaupm. á Sauðárkróki 1893 og 4, Hall- grímur Þorsteinsson söngkennari og söngstjóri í Rvík 1895—1907, þá tek- ur við Gísli Magnússon (kallaður Gísli organisti) frá 1907—1925. Þá segir hann lausu starfi og við tekur Pétur Sigurðsson frá Geirmundarstöðum í Sæmundarhlíð. Ifans naut þó ekki lengi við, því hann sagði lausu starfi 1. jan. 1929. — Hinn 28. jan. það ár, er ég svo ráðinn til starfsins og hef gegnt því síðan. Þegar Sauðárkrókskirkja var vígð i des. 1892 — var leikið á tvö orgel- harmoníum, — það gerðu þeir Kristján Gíslason, kaupm. og Benedikt bóndi á Fjalli í Sæmundarhlíð og þótti mikið til koma. Höfðu þeir félagar æft vel og lengi fyrir þessa athöfn ásamt 12 manna kór. I des. 1912 byrjaði ég að syngja í kirkjukórnum — altrödd — þá 11 ára gamall, síðan söng ég svo tenor og eftir að Pétur gerðist organleikari, að- stoðaði ég hann í forföllum. Pétur var góður organleikari og söng- stjóri og var skemmtilegt að vinna með honum, vegna áhuga hans á starf- inu. Hann kom með nýjan og ferskan blæ með sér, svo að sumum hinna eldri fannst nóg um hraðann í söngn- um, en Pétur fór sínar leiðir og skeytti ekki um aðfinnslur. Pétur lærði hjá Benedikt á Fjalli og siðar hjá Sigur- geiri söngkennara og organleikara á Akureyri og mun hann þar hafa fengið gott veganesti. Þetta er nú orðinn nokkuð langur tími sem ég er húinn að starfa við ORGANISTABLAÐIÐ 31

x

Organistablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.