Organistablaðið - 01.05.1969, Side 32
þessa kirkju — 57 ár — með fimm
prestum, enda tel ég að Sauðárkróks-
kirkja hafi verið mitt annað heimili.
G. S.
Útlendar fréttir.
5. alþjóða R. Schumann-keppnin
verður haldin í Zwickau dagan 9.—20.
nóv. nk., fyrir píanóleikara (aldurs-
hámark 29 ár) og söngvara (aldurs-
hámark 31 ár). Verðlaun að saman-
lagðri upphæð DM 26500.00 verða veitt.
Þátttaka tilkynnist fyrir 15. ágúst. —
Upplýsingar veitir Schumann Koncerva-
torium, Zwickau, Grimmitschauer-
Strasse lb, GDR.
Jeanne Demessieux, hinn þekkti
organleikari lézt 11. nóv. sl. 47 ára að
aldri. Hún var nemandi Marcel Dupré
og hóf tónleikaferil sinn í París með
röð af 12 konsertum, og lék þá utan-
bókar öll hin helztu orgelverk, einnig
lék hún þá af fingrum fram (impró-
viseraði) fjögurra þátta symfóníu.
Hún hélt tónleika víða um lönd, lék
inn á hljómplötur (Decca), þ. á m.
öll orgelverk C. Francks á orgel Made-
leine kirkjunnar í París, en þar var
hún organleikari til dauðadags. Kunn-
ust orgelverka er hún samdi, er Te
Deum og flokkur æfinga (Etudes).
Breitkopf & Hártel-forlagið í Leip-
zig á 250 ára afmæli í ár.
Að tilhlutan borgaryfirvaldanna í
Unna, N.-Þýzkalandi, samdi Benjamín
Frankel nýlega „Konsert fyrir ungl-
inga, áheyrendur og hljómsveit". Tón-
leikagestir voru beðnir að koma með
hljóðfæri sín (hver sem væru) og leika
með. Þeim, er tómhentir komu, var
ætlað að blístra eða klappa saman lóf-
unum.
Giovanni Martinelli, sem um 32 ára
skeið var einn helzti tenórsöngvari
Metropolitan óperunnar í New York,
lézt nýlega 83 ára að aldri. Þá er og
látinn hljómsveitarstjórinn Ernest Ans-
ermet (85 ára). Hann stofnaði Suisse
Romande hljómsveitina árið 1918 og
stjórnaði henni í 49 ár. Hann var í
fremstu röð hljómsveitarstjóra og þótti
einkar snjall við túlkun verka eftir
Ravel, Debussy og Stravinsky.
Hollenzka óperustofnunin hefur fal-
ið 5 ungum tónskáldum að semja sam-
eiginlega óperu. Efni hennar skal vera:
Fordæming á íhlutun U.S.A. í löndum
Suður-Ameríku.
P. K. P.
Peter Thomsen organleikari við
Jóhannesarkirkjuna í Kaupmannahöfn
varð 75 ára 25. sept. sl. Nokkrir ís-
lendingar hafa notið leiðsagnar hans
og fyrirgreiðslu og er hann þeim að
góðu kunnur. Kona hans frú Chresta
Thomsen er þekktur organleikari í
Danmörku. Hún varð sextug 14. júní sl.
Sten Carlsson kantor í Uppsala varð
75 ára 28. nóv. sl. íslenzkum organ-
leikurum, sem sótt hafa norrænu
kirkjutónlistarmótin er hann að góðu
kunnur. Hann hefur staðið framarlega
í flokki þeirra sem láta sér annt um
þennan þátt norrænnar samvinnu. Sten
Carlsson var í mörg ár ritstjóri sænsku
kirkjutónlistartímaritanna K.M.T. og
K.S.F.
Conrad Baden organisti í Drammen
og kennari við Konservatoríið í Osló
varð sextugur 31. ágúst sl. Á norræna
kirkjutónlistarmótinu, sem hér var
32 ORGANISTABLAÐIÐ