Organistablaðið - 01.05.1969, Side 33

Organistablaðið - 01.05.1969, Side 33
haldið 1952 var flutt Páskamótetta eftir hann. Síðan hafa nokkrir íslenzkir kirkjukórar sungið þessa mótettu nokkr- um sinnum við páskamessur. Ýmsar fréttir. Tónleikar í heiðurskyni við Pál ís- ólfsson á 75 ára afmæli hans, voru haldnir í Austurbæjarbíói 12. og 13. okt. 1968. Flutt voru píanóverk og einsöngslög. Flytjendur voru: Þuríður Pálsdóttir, sópransöngkona, Jórunn Viðar píanóleikari, Kristinn Hallsson barytónsöngvari, Árni Kristjánsson píanóleikari og Rögnvaldur Sigurjóns- son píanóleikari. Ávarpsorð flutti Þor- kell Sigurbjörnsson tónskáld. ÚtvarpiS. Það fer ekki hjá því þegar einu tón- skáldi er ætlaður töluvert lengri tími í heilan mánuð hjá útvarpinu en venju- legt er, að menn fái betri heildarmynd — ef svo mætti segja — af verkum höfundarins. Og þá kemur í ljós, að íslenzk tónskáld eiga meira í fórum sínum en margan grunar. Tónskáld mánaóarins, 1967—’68 voru það Páll ísólfsson, Sigurður Þórðarson, Jón Leifs, Karl 0. Runólfsson, Þórarinn Jónsson, Árni Björnsson og Skúli Ilall- dórsson. Allir hafa þeir lagt vel á borð með sér og þjóðin þakkar fyrir að fá að njóta þess með þeim. — í vetur hafa það verið Hallgrímur Helgason, Jón Þórarinsson, Jórunn Viðar, Magn- ús Blöndal Jóhannsson, Jón Nordal, Jón Ásgeirsson, Páll Pampichler Páls- son og — svo áfram. — Alþingishát'Sarkantata dr. Páls ísól/ssonar. Hinn 19. marz sl. afhenti dr. Páll Isólfsson Alþingi að gjöf handrit sín af Alþingishátiðarkantötu sinni. Ann- að handritið er fyrir píanó, kór, ein- söng og framsögn, og hitt fyrir sin- foniuhljómsveit, kór, einsöng og fram- sögn. Forseti sameinaðs Alþingis, Birg- ir Finnsson, veitti gjöfinni viðtöku fyrir hönd Alþingis. Alþingishátíðarkantatan hefur ekki verið gefin út ennþá. Hún var síðast flutt 5. des sl. í tilefni af 75 ára af- mæli höfundarins. Stjórnandi var dr. Robert Abraham Ottósson. Tónleikar í Laugarneskirkju. Bachtónle.kar voru haldnir í Laugar- neskirkju 3. nóv. sl. fyrir forgöngu organistans Gústafs Jóhannessonar. Var efnisskráin fjölbreytt. Einleik á orgel lék Gústaf Jóhannesson, einleik á cello Gunnar Björnsson. Flutt var kantata nr. 5 Jauchzet Gott in allen Landen, af Guðfinnu Dóru Ólafsdóttur (sópran) og strokkvartett og trompet. ]ólatónleikar voru 2. jan. Verkefni voru eftir Bach, Buxtehude og Diets- ler. Flytjendur voru Sólveig Björling, Guðfinna Dóra Ólafsdóttir, Arnþrúður Sæmundsdóttir, Halldór Vilhelmsson, Þórður Möller, Gústaf Jóhannesson ásamt hljóðfæraleikurum og kór kirkj- unnar. Bachtónleikar voru 2. marz. Einleik á orgel lék Gústaf Jóhannesson, Strengjakvartett Þorvaldar Steingríms- sonar )ék aríu úr hljómsveitarsvítu í D-dúr og Þorvaldur lék einleik á fiðlu Chaconnu í d-moll. Flutt var kantata nr. 169 „Gott soll allein mein Herze haben“ fyrir altsóló sungin af Sólveigu Björling með aðstoð orgels og strok- kvartetts, óbós og átta söngvurum. ORGANISTABLAÐIÐ 33

x

Organistablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.