Morgunblaðið - 13.11.2009, Page 2

Morgunblaðið - 13.11.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is heldur áfram kl. 20-22 Miðvikudag 18. nóv og fimmtudag 19. nóv Skráið ykkur í síma 525 3000 eða á jol@blomaval.is Takmarkaður sætafjöldi Ókeypis aðgangur Jólaskreytinga- Eftir Helga Bjarnason og Steinþór Guðbjartsson EKKI náðist endanleg niðurstaða í umræðum um skattatillögur ríkis- stjórnarinnar í gær. Þingflokkar Samfylkingarinnar og Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs ræddu málin í gærkvöldi. Málinu var vísað til formanna flokkanna. Reiknað er með að þeir leggi hugmyndir sínar fyrir fund ríkisstjórnarinnar í dag. „Við fórum rækilega yfir stöðuna. Það verður unnið í því áfram […] Menn eru ennþá að kalla eftir frekari gögnum og útreikningum á áhrifum tiltekinna breytinga,“ sagði Árni Þór Sigurðsson, starfandi formaður þingflokks VG, eftir fundinn í gær- kvöldi. Þingflokkur Samfylkingarinnar veitti Jóhönnu Sigurðardóttur for- sætisráðherra umboð til þess að ganga frá ákveðnum hlutum á grundvelli tiltekinna hugmynda. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, vara- formaður þingflokks Samfylkingar- innar, segir að þingflokkurinn hafi farið yfir tekju- og gjaldaþátt fjár- laganna. Menn hafi skipst á skoðun- um en komist að ákveðinni niður- stöðu. „Ég reikna fastlega með því að hlutirnir skýrist um helgina og eftir helgi,“ segir hún. Stefnt að þrepaskiptum skatti Ekki var fyllilega ljóst í gærkvöldi hvort full sátt væri um hugmyndir um þriggja þrepa tekjuskatt. Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, sagði að þingmenn VG teldu það mikil- vægt að breyta skattkerfinu og þriggja þrepa tekjuskattur væri meira í anda stjórnarflokkanna en gamla kerfið sem ekki hefði reynst vel. „Það er ekki eina markmiðið að ná í tekjur, þótt það sé fyrsta mark- mið, heldur viljum við breyta skatt- kerfinu í leiðinni þannig að það fær- ist ekki aftur til þess tíma þegar allt hrundi,“ segir hann. Þrepin og tekjuskattsprósentur geta tekið breytingum frá því sem rætt hefur verið um. Björn Valur segir að reynt sé að færa neðsta þrepið upp til að hlífa þeim lægst launuðu en um leið að gæta þess að jaðaráhrif ofar í kerfinu verði ekki of þung fyrir tiltekna hópa. Þá hefur komið til umræðu að fresta hluta af áformuðum hækkun- um á virðisaukaskatti. Skattamálin ófrágengin  Þingflokkar stjórnarflokkanna ræddu skattalagabreytingar í gærkvöldi  Enn verið að kalla eftir gögnum og útreikningum  Málið metið á ríkisstjórnarfundi » Þriggja þrepa tekjuskattur enn í umræðu » Forseta ASÍ líst illa á byrðar millitekjufólks » SA una ekki hækkunum sem dýpka kreppuna » Rætt verður um skattamálin á Alþingi í dag KVENNALANDSLIÐIÐ í knattspyrnu fékk í gær viðurkenningu Jafnréttisráðs fyrir það for- dæmi, sem starf og árangur landsliðsins hefur gefið, og þá hvatningu og fyrirmynd sem það hefur veitt ungum stúlkum. Viðurkenningin var afhent í 17. sinn og tók Katr- ín Jónsdóttir, fyrirliði liðsins, við henni af Árna Páli Árnasyni félagsmálaráðherra, en nokkrar landsliðskonur voru viðstaddar athöfnina. JAFNRÉTTISRÁÐ HEIÐRAR KVENNALANDSLIÐ KSÍ Morgunblaðið/Golli Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is FRÁ og með fyrsta janúar þurfa væntanlegir foreldrar að taka bleiur með sér upp á fæðingardeild. „Þetta hefur verið í umræðunni síðasta árið og í byrjun október sendum við til- mæli þess efnis til heilsugæslunnar, segir Hildur Harðardóttir, yfirlækn- ir á fæðingardeild Landspítala - há- skólasjúkrahúss. Er þetta einn þeirra fjölmörgu sparnaðarliða sem Landspítalinn þarf nú að grípa til og er þegar byrjað að kynna vænt- anlegum foreldrum breytinguna. Bleiubónin á jafnt við um þá sem nýta sér þjónustu Hreiðursins, fæð- ingardeildar og meðgöngu- og sængurkvennadeildar, sem og sé barnið lagt inn á barnaspítala ein- hverju eftir heimkomuna. Sé barnið hins vegar lagt inn á vökudeild eru því útvegaðar bleiur þar. „Þetta er bara fyrsta skrefið því við munum halda áfram á þessari braut,“ segir Hildur. Ekki er því ólíklegt að væntanlegir foreldrar þurfi til að mynda að taka barnaföt með sér á fæðingardeildina í fram- tíðinni enda tíðkast sá siður hjá mörgum sjúkrahúsum annars staðar á Norðurlöndum. Áætlaður sparnaður vegna bleiu- kaupanna er 1,5 milljónir króna á ári. Foreldrarnir komi sjálfir með bleiurnar Morgunblaðið/Ásdís Bleiulaus Börnin verða þó ekki bleiulaus uppi á spítala, því þar verða að sjálfsögðu til bleiur sé þess þörf. Fjölmargra leiða leitað við sparnað á Landspítala NBI hf. hagnast um 3,4 milljarða króna með sölu á hlut sínum í innheimtufyrir- tækinu Intrum Justitia. NBI keypti 7,5% hlut gamla Lands- bankans í Intrum á 54 sænskar krónur á hlut, alls sex milljónir hluta. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins setti NBI bréfin í söluferli í gær á verðinu 85 sænskar krón- ur á hlut. Það er því ljóst að ávöxt- un NBI af eignarhlutnum í Intrum verður um 57% og söluhagnaður bréfanna verður 3,4 milljarðar króna. Sænska fjármálafyrirtækið Carnegie, sem áður var að hluta í eigu íslenska fjármálafyrirtæk- isins Milestone, annast söluna. thg@mbl.is Hagnast um 3,4 milljarða FRUMVARP sjávarútvegs- ráðherra um breytingar á lög- um um stjórn fiskveiða er afar skaðlegt og gengur þvert á samkomulag sem gert var við rík- isstjórnina með stöðugleika- sáttmála um að þessi mál færu í vinnslu í breiðum starfshópi. Þetta kemur fram í leiðara Vilhjálms Eg- ilssonar, framkvæmdastjóra Sam- taka atvinnulífsins, „Orð skulu standa“, í fréttabréfi samtakanna. | 22 Þvert á samkomulag Vilhjálmur Egilsson AFI og amma þriggja ára drengs, sem hafa verið á flótta með dreng- inn undan barnaverndaryfirvöldum undanfarna 10 daga, geta nú komið úr felum. Kærunefnd barnaverndarmála ákvað í gær að fresta framkvæmd ákvörðunar barnaverndarnefndar um að taka barnið frá þeim og setja það í fóstur annars staðar. Geta komið úr felum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.