Morgunblaðið - 13.11.2009, Side 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2009
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
„ÞAÐ er ekki hægt að segja annað
en að lóðarhafi hafi brugðist vel við
þeim athugasemdum sem bárust,“
segir Júlíus Vífill Ingvarsson, for-
maður skipulagsráðs Reykjavíkur-
borgar.
Nýjar tillögur vegna fram-
kvæmda á Ingólfstorgi voru lagðar
fram í skipulagsráði í gær, en fyrri
tillögur vöktu hörð viðbrögð og
töldu margir að kæmi til þeirra
framkvæmda þýddi það varanlega
eyðileggingu Ingólfstorgs.
„Eftir að fyrri tillagan kom úr
auglýsingu var farið yfir þær at-
hugasemdir sem fram komu og
voru settar fram mjög ákveðið.
Við tókum mark á því og reynd-
um með þessu að koma til móts við
það og finna leiðir sem sátt getur
orðið um,“ segir Júlíus.
Áhyggjur af skuggamyndun
Breytingarnar fólu m.a. í sér að
tvö gömul hús við torgið yrðu flutt
lengra inn á torgið og gamla Sjálf-
stæðishúsið þar sem skemmtistað-
urinn Nasa er nú rekinn yrði rifið
til að koma fyrir fimm hæða hóteli.
Gagnrýnendur skipulagsins
töldu að litið væri fram hjá gildi
gamalla húsa auk þess sem aukið
skuggavarp inn á Ingólfstorg
myndi flæma burt það mannlíf sem
þar hefur myndast. Tillagan sem
nú er til skoðunar tekur tillit til
þessa því samkvæmt henni verða
gömlu húsin tvö, Brynjólfsbúð og
Hótel Vík, sem áður stóð til að
flytja yfir Vallarstræti og fram á
torgið, áfram á sínum stað til
frambúðar.
Gömlu húsin óhreyfð
„Núverandi deiliskipulag gerir
ráð fyrir að húsin hverfi af reitnum
en það er nokkuð sem skipulags-
ráð hefur ekki viljað sjá gerast,“
segir Júlíus. „Þessi tillaga sem nú
er verið að skoða heldur í öll húsin
þannig að þau verða ekki hreyfð af
staðnum og það verða engar háar
byggingar reistar.“ Á milli Brynj-
ólfsbúðar og Hótels Víkur við enda
Ingólfstorgs mun hins vegar rísa
bygging sem verður að sögn Júl-
íusar í anda húsanna sem eru þar
fyrir, en þau eru bæði timburhús.
Hótel rís en smærra í sniðum
Þar er enn fyrirhuguð hótel-
starfsemi, en hún verður mun
minni í sniðum en það sem gert
var ráð fyrir áður og hafði vakið
hörð viðbrögð gagnrýnenda sem
töldu að svo stórt hótel myndi
auka verulega á bílaumferð í mið-
borg þar sem nóg væri af hótelum
fyrir.
Mikil gagnrýni kom jafnframt
fram á það að húsið þar sem Nasa
stendur yrði rifið og tónleikasal-
urinn í þess stað endurbyggður í
kjallara nýrrar byggingar.
Nasa stendur óbreytt
Samkvæmt nýju tillögunum
verður Nasa áfram á sama stað,
húsið verður ekki rifið og salurinn
ekki færður til. Ástand Nasa verð-
ur því óbreytt að öðru leyti en því
að veggir verða styrktir til að
hægt verði að byggja ofan á salinn.
„Salurinn er í byggingu sem er
ekki sterk, en kosturinn við þetta
er sá að með því að byggja sjálf-
stæða byggingu ofan á má reikna
með að hljóðeinangrunin verði
betri en ella,“ segir Júlíus. Þá
verði ekki lengur sama hætta á
skuggavarpi inn á torgið.
Nýmæli í verkferlum
Skipulagsráð hefur þegar átt
fund með nokkrum þeirra sem
lýstu yfir áhyggjum sínum af
framkvæmdunum og fengið ábend-
ingar um hina nýja tillögu.
Júlíus Vífill segir að við vinnslu
þessara tillagna hafi hefðbundnum
verkferlum í skipulagsmálum að
vissu leyti verið snúið við þar sem
leitað var eftir viðbröðgum fólks
áður en tillagan var lögð fram í
skipulagsráði.
„Þetta er nýmæli í verkferlum
skipulagsmála almennt. En það er
ákveðinn hópur sem hefur látið sig
Ingólfstorg sérstaklega varða og
það er akkur í því fyrir okkur að
geta farið yfir málin og unnið að
lausnum í góðri sátt.“
Nýja Björn Ólafs arkitekt hefur teiknað nýja tillögu þar sem litið er til þeirra athugasemda sem fram komu og reynt að koma til móts við þær.
Ný tillaga um Ingólfstorg
Deiliskipulag sem gerði ráð fyrir að gömul hús vikju fyrir 5 hæða hóteli vakti
hörð viðbrögð Samkvæmt nýrri tillögu verða húsin óhreyfð og hótelið minna
Gamla Mikill fjöldi athugasemda barst vegna skipulagsins þar sem ráð-
gert var að færa gömlu húsin fram á torgið og reisa 5 hæða nýbyggingu.
HÆSTIRÉTTUR
hefur dæmt karl-
mann í 18 mánaða
fangelsi fyrir
kynferðisbrot
gegn dótturdóttur
sinni. Maðurinn
var sakfelldur fyr-
ir að þukla á
stúlkunni inn-
anklæða og utan í fjögur skipti á ár-
unum 2005 til 2008. Stúlkan er fædd
árið 1994.
Maðurinn var í héraði dæmdur til
að greiða stúlkunni 800 þúsund kr. í
bætur. Kemur fram í dómi Hæsta-
réttar að hann hafi þegar greitt.
Litið var til þess við ákvörðun refs-
ingar að brotin beindust gegn ungu
barnabarni mannsins, sem hafi ítrek-
að leitað á heimili hans vegna bágra
aðstæðna og vanlíðunar heima fyrir.
Fimm dómarar dæmdu í málinu.
Tveir þeirra vildu dæma manninn í
15 mánaða fangelsi og vísuðu til þess
að hluti brota mannsins hefði verið
framinn áður en lögum um kynferðis-
brot var breytt árið 2007 og refsingar
þyngdar.
Braut gegn
dótturdótt-
ur sinni
Tveir dómarar vildu
vægari refsingu
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þess
efnis að ekki hafi verið í lögum
heimild til að innheimta stimpil-
gjöld af aðfarargerðum þegar þeim
var þinglýst.
Lögfræðingur sem krafinn var
um 729 þúsund krónur í stimp-
ilgjöld við þinglýsingu aðfar-
argerðar sýslumannsins 14. mars
2008 fór í mál og byggði m.a. á áliti
umboðsmanns Alþingis. Umboðs-
maður afgreiddi frá sér álit á síð-
asta ári þar sem komist var að
sömu niðurstöðu. Í kjölfarið var
lögunum breytt.
Í nefndaráliti vegna lagabreyt-
inganna kom fram að tekjurnar af
gjaldinu næmu um það bil 5% af
heildartekjum af stimpilgjaldi á ári
hverju eða sem svarar 320 millj-
ónum króna. Kröfurnar fyrnast á
fjórum árum en ríkið gæti engu að
síður því þurft að endurgreiða um
einn milljarð króna.
Ríkið þarf að
endurgreiða
stimpilgjöld
ÞEIM fjölgar stöðugt sem horfa á
fréttir mbl.is á Skjá einum sam-
kvæmt nýjum rafrænum áhorfsmæl-
ingum Capacent. Fyrsti fréttatíminn
fór í loftið 15. október og hefur frá
þeim tíma komist vel á kortið. Þann-
ig voru fréttir mbl.is á Skjá einum sá
fréttatími sem flestir í aldurs-
hópnum 12 til 49 ára horfðu á
fimmtudaginn 29. október, eða alls
19,4%. Á fréttir Stöðvar 2 horfðu
17,7% og 16,8% á fréttir Sjónvarps-
ins. Rétt er að taka fram að hér er
miðað við uppsafnað áhorf en fréttir
mbl.is eru sýndar kl. 18:50 og end-
ursýndar kl. 21:50 auk þess sem
hægt er að horfa á þær á netinu.
Aðra daga eru hlutföllin nokkuð
önnur en þróunin er almennt sú að
fréttir mbl.is eru í sókn.
„Áhorfið endurspeglar styrkinn
sem felst í samstarfi Skjás eins og
Morgunblaðsins. Skjár einn verður
áskriftarsjónvarp í næstu viku, í
kjölfarið munum við endurskoða
sýningartíma fréttanna með það að
leiðarljósi að hámarka áhorfið og
ávinning af samstarfinu. Það er
gaman og gott að sjá nýjar leiðir
skila árangri,“ segir Sigríður Mar-
grét Oddsdóttir, sjónvarpsstjóri
Skjás eins.
„Þetta er í samræmi við þau við-
brögð sem við fáum. Fréttir eiga
ekki alltaf að vera með neikvæðum
tón og við höfum lagt okkur fram um
að varpa líka ljósi á það jákvæða,“
segir Hlynur Sigurðsson, frétta-
stjóri sjónvarpsfrétta mbl.is.
sbs@mbl.is
Mbl.is skorar á Skjánum
Mbl.is í sókn í sjónvarpsfréttum á Skjá einum Uppsafnað
áhorf er mest 19,4% Áhorfið endurspeglar styrkinn
%
Rafræn mæling Capacent
26. okt. 27. okt. 28. okt. 29. okt. 30. okt.
11,8
17,2
21,3
11,5
2120
21,6
17,7 17,2
12,3
19,4
7,5
17,4 16,8 16,8
Áhorf í prósentum Skjáreinn Stöð 2 RÚV
www.noatun.is
UNGNAUTASNITSEL
KR./KG
1398
VERÐ
ÓTRÚLEGT
Ódýrt
og gott
í Nóatúni
42%
afsláttur
2398
BBESTIR
Í KJÖTI
ÚRKJÖTBOR
ÐI
ÚR
KJÖTBORÐI