Morgunblaðið - 13.11.2009, Page 6

Morgunblaðið - 13.11.2009, Page 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2009 Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is INNRITUNARGJÖLD verða að öllum líkindum innheimt í sam- göngumiðstöðinni í Vatnsmýri. Ólaf- ur Sveinsson, verkefnisstjóri sam- göngumiðstöðvarinnar, segir ekki tímabært að upplýsa hversu há þessi innritunargjöld eigi að vera, en segir að rætt sé um að innheimta þau bæði vegna flugþjónustu og rútuferða, í mismiklum mæli. Ólafur segir farið eftir þeirri hugmyndafræði að þeir sem noti aðstöðuna taki þátt í að borga fyrir hana. Gjaldið yrði breyting frá því sem nú er, en í dag er ekkert innritunar- gjald innheimt í innanlandsflugi. Tekjur samgöngumiðstöðvarinn- ar, sem ráðgert er að hefja fram- kvæmdir við eftir áramótin, verða því væntanlega tvenns konar. Í síð- ustu viku sagði Kristján L. Möller samgönguráðherra að kostnaðurinn við bygginguna yrði greiddur með leigugjöldum frá þjónustufyrirtækj- unum í húsinu, flugfélögum, rútufyr- irtækjum, bílaleigum og tengdri þjónustu, svo sem veitingastöðum og verslunum. Kristján segir í samtali við Morg- unblaðið að frá upphafi hafi verið ætlunin að greiða kostnaðinn við byggingu hússins með þessum tveimur leiðum, notendagjöldum og leigutekjum. Flugstoðir ohf. verða eigandi hússins og munu því ábyrgj- ast greiðslu lánakostnaðar vegna þess, ef fyrrnefndar tekjur duga ekki til í framtíðinni, til dæmis ef húsið verður ekki fullnýtt af þjón- ustufyrirtækjum. Fullyrt er að leiga frá opinberum aðilum, sem verða með aðstöðu í húsinu, verði aldrei nema lítill hluti af tekjum samgöngu- miðstöðvarinnar. Kristján segir ekkert hafa verið rætt um að ríkið hlaupi undir bagga ef tekjur duga ekki fyrir lánakostn- aði. Hann ítrekar að unnið sé að því að ákvarða heppilegustu stærð húss- ins, svo það verði alltaf fullnýtt. Vonast er til þess að skipulagsmál- in í kringum verkefnið komist á hreint og byggingarleyfi fáist á næstunni. Stærð hússins hefur nokkuð rokkað til og frá en nú segir Ólafur að niðurstaðan verði að öllum líkindum sú að húsið verði að lág- marki 3.500 fermetrar. Innritunargjald í Vatnsmýrinni Stefnan að þeir borgi fyrir samgöngu- miðstöðina sem nota þjónustu hennar Þjónusta Miðstöðinni er ætlað að gerbreyta innanlandssamgöngum. ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS fékk á dögunum smjör- kúpu úr gleri af heimili Jóns Sigurðssonar forseta. Lilja Árnadóttir, fagstjóri munasafns Þjóðminjasafnsins, seg- ir gripinn koma úr eigu afkomenda Jens Sigurðssonar, bróður Jóns forseta og rektors, og hafi smjörkúpan verið á heimili Jóns í Kaupmannahöfn. Hún sýni ásamt öðru þann höfðingsbrag sem var á heimi þeirra Jóns og Ingibjargar og segist Lilja efast um að margar svo sögulegar smjörkúpur finnist enn. Tryggvi Gunnarsson bankastjóri keypti á sínum tíma all- marga muni úr dánarbúi Jóns Sigurðssonar á uppboði í Kaupmannahöfn og gaf íslensku þjóðinni. Þeir eru stofn- inn í sérsafni Jóns Sigurðssonar sem varðveitt er í Þjóð- minjasafninu. Lilja segir að framundan sé mikið hátíðaár, en árið 2011 verður 200 ára fæðingarafmælis Jóns Sigurðssonar minnst sérstaklega. Þjóðminjasafnið mun leggja sinn skerf til sýningahalds með fleiri stofnunum. Lilja segir að hafi fólk undir höndum muni sem tengjast ævi og störf- um Jóns forseta og konu hans Ingibjargar þá sé mikill fengur í því fyrir safnið að taka þá til varðveislu. Hún vill jafnframt koma á framfæri þökkum til afkomenda Jens rektors Sigurðssonar, sem ákváðu að fela Þjóðminjasafni Íslands smjörkúpuna til varðveislu. aij@mbl.is Morgunblaðið/Heiddi Munir Lilja Árnadóttir með smjörkúpuna innan um húsgögn og aðra hluti úr búi Jóns Sigurðssonar. Söguleg smjörkúpa afhent ÍS L E N S K A S IA .I S IC E 47 64 6 11 /0 9

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.