Morgunblaðið - 13.11.2009, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2009
DÓMSMÁLARÁÐHERRA hefur
sett á fót vinnuhóp til að kanna
hvaða möguleikar séu fyrir hendi
innan gildandi laga og alþjóðlegs
samstarfs til að efla eftirlit með út-
lendingum og tryggja að verið sé
að nýta þær heimildir sem eru til
staðar til að uppræta glæpastarf-
semi hér á landi. M.a. verður skoð-
að hvort unnt sé að taka upp tíma-
bundið vegabréfaeftirlit.
Í vinnuhópnum eiga sæti Sigríð-
ur Björk Guðjónsdóttir, lög-
reglustjóri á Suðurnesjum, Guð-
brandur Guðbrandsson, lögreglu-
fulltrúi hjá ríkislögreglustjóra,
Þorsteinn Gunnarsson, forstöðu-
maður hjá Útlendingastofnun, Jó-
hann Karl Þórisson, aðalvarðstjóri
hjá lögreglustjóranum á höfuð-
borgarsvæðinu og Jón Pétur Jóns-
son, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá
lögreglustjóranum á Suðurnesjum.
Vinnuhópur um
vegabréfaeftirlit
Eddufelli 2, sími 557 1730
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Buxnaleggings – Verð 13.900 kr.
Ný sending
Kjólar við buxur-Verð 9.900 kr.
Sunnudagsmogginn
kemur nú með
laugardagsblaðinu.
Nýjar áherslur. Minna
brot, spennandi vikurit.
Aðventustjaki
kr. 3.680
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími 568 2870 – www.friendtex.is
LAGERHREINSUN
Aðeins
þessi verð:
1.000.-
2.000.-
3.000.-
4.000.-
5.000.-
Ullarjakki, jakkar peysur,kjólar,
túnikur,buxur, bolir og skór.
Nú er hægt að gera dúndur góð kaup.
Opið í dag föstudag frá kl. 12.00 -18.00 laugardag frá kl.11.00 -16.00
Við minnum einnig á Friendtex
bangsarnir til styrktar leiðtarstöð
Krabbameinsfélagsins eru seldir hér
Mörkinni 6, sími 588 5518
Opið virka daga kl. 10-18,
laugardaga frá kl. 10-16
Nýjar
vörur
Glæsilegar
yfirhafnir, húfur
og hattar
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16
Ný sending af buxum
frá ROBELL
Svartar, bláar, brúnar, gráar. Þrjár síddir.
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið sýnishornin á laxdal.is
NÝ DÚNÚLPUSENDING
ekta dúnn, með eða án skinnhettu (refur)
Starfskostnaður
er 40 þúsund
STARFSKOSTNAÐUR borgarfull-
trúa er 40 þúsund krónur á mánuði en
ekki 66.400 krónur eins og kom fram í
fréttaskýringu í Morgunblaðinu í
gær. Starfskostnaður borgarstjóra er
hins vegar 66.400 krónur eins og kom
fram í blaðinu. Þá er rétt að taka
fram að greiðsla vegna símakostn-
aðar borgarfulltrúa er að hámarki 25
þúsund krónur á mánuði.
Þá voru laun fyrir setu í stjórn
Faxaflóahafna skráð á Þorleif Gunn-
laugsson, en það er Sóley Tóm-
asdóttir sem situr í stjórn fyrirtæk-
isins fyrir hönd VG. Þetta þýðir að
laun þeirra eru mjög svipuð eða um
660 þúsund krónur á mánuði.
LEIÐRÉTT
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
AUGLÝSING Flugstoða eftir flugvallarvörðum á
Reykjavíkurflugvelli fer fyrir brjóstið á slökkviliðsmönn-
um. Þeir segja að verið sé að brjóta lög en Flugstoðir vísa
því á bug og segja um hagræðingu að ræða.
Samningur Flugstoða við slökkvilið höfuðborgarsvæð-
isins vegna brunavarna á Reykjavíkurflugvelli rennur út
1. mars á næsta ári. Á innanhúsvef SHS er auglýsing frá
Flugstoðum þar sem óskað er eftir flugvallarvörðum til
að ganga í störf slökkviliðsmanna auk annarra starfa.
Sverrir Björn Björnsson, formaður Landssambands
slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna, segir að verðirnir
eigi m.a. að sinna viðhaldi á tækjum og hann telji að það
sé brot á lögum og reglum rétt eins og sú ákvörðun að
hafa ekki slökkviliðsmenn áfram á svæðinu.
18 starfsmenn í hættu
Sverrir Björn segir að samtals starfi 18 slökkviliðs-
menn á vöktum á vellinum og þeir sinni einnig sjúkra-
flutningum. Hann segir að breytingin þýði að viðbún-
aðarstigið í borginni dragist saman og hafa beri í huga að
sjúkraflutningar séu hluti af grunnþjónustu við lands-
menn og með ákvörðuninni sé öryggi stefnt í hættu.
Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Flug-
stoða, segir að hugmyndin sé að nýta starfsmennina í
fleiri störf og um hagræðingu sé að ræða með fullu sam-
þykki samgönguráðuneytisins og Flugmálastjórnar.
Hún leggur áherslu á að á 12 af 15 flugvöllum á landinu sé
viðbragðsþjónusta veitt af flugvallarvörðum. Fyllsta ör-
yggis verði gætt og flugvallarverðir á Reykjavíkurflug-
velli fái alla þá menntun og þjálfun sem krafist sé og
nauðsynleg sé talin vegna starfsins. Flugstoðir eigi
áfram öll tæki og tól á vellinum og öryggiskröfurnar til
viðbúnaðarþjónustu flugvallarins verða óbreyttar.
Auglýsing eitur í bein-
um slökkviliðsmanna
Flugstoðir ætla að ráða flugvallarverði á Reykjavíkurflugvelli
Morgunblaðið/Júlíus
Brunavarnir Flugvallarstarfsmenn Flugstoða koma í
stað slökkviliðsmanna Slökkviliðsins á Reykjavík-
urflugvelli 1. mars á næsta ári.
ALLS hafa 8.650 einstaklingar
greinst með inflúensulík einkenni
frá 29. júní til 8. nóvember skv.
upplýsingum Landlæknisembætt-
isins. Þar af eru 3.942 karlar og
4.618 konur. Í síðustu viku greind-
ust 797 einstaklingar skv. skrán-
ingu heilbrigðisþjónustunnar. Það
eru töluvert færri en í vikunni á
undan. Tilfellum hefur bæði fækk-
að á höfuðborgarsvæðinu og á
landsbyggðinni. Enn greinast hlut-
fallslega fleiri börn í aldurshópnum
0-9 ára með inflúensulík einkenni,
færri greinast í öðrum aldurs-
hópum.
Færri greinast með inflúensulík einkenni