Morgunblaðið - 13.11.2009, Qupperneq 15
en töldu hins vegar fram eignir á
móti skuldum sem metnar voru á
72 milljarða kr. í árslok 2008. Eins
og gefur að skilja hafa margir
þeirra sem skulda mikið tekið lán
til kaupa á hlutabréfum sem eru
talin fram á nafnvirði. Það er því
ekki gott að segja til um það
hversu mikils virði þessi hlutabréf
eru í dag eða hversu miklar tekjur
þessir einstaklingar hafa, eða hafa
haft, af eignunum.“
Með litlar eignir en
miklar skuldir
Hópurinn sem á minnst er jafn-
framt skuldugastur. Hópurinn sem
taldi fram eignir sem námu innan
við 10 milljónum, en í honum eru
76.344 einstaklingar, átti samanlagt
115 milljarða eignir, en hann
skuldaði 108 milljarða eða sem
nemur 94% eignanna. Hlutfall
eigna og skulda hjá þeim sem töldu
fram eignir á bilinu 10-20 milljónir
var 77,7%. Í þessum hópi voru um
25 þúsund einstaklingar. Álíka stór
hópur taldi fram eignir á bilinu 20-
30 milljónir, en skuldir hans námu
64,3% af eignum. Skýringin á því
að hópurinn sem minnst á skuldar
svona mikið er líklega sá að hann
hefur tekið lán til bifreiðakaupa
eða annars slíks sem hefur fallið í
verði á sama tíma og lánin hafa
hækkað.
Í úttekt Páls í Tíund kemur fram
að 37.320 fjölskyldur skulda meira
en þær eiga. Rétt er að hafa í huga
að hlutabréf eru skráð á nafnvirði
og því getur eignarhlutur í félagi
sem skráður er á 500 þúsund í
skattframtali átt eign sem er metin
á milljarða. Einhver hluti þessara
eignalausa hóps á því í reynd um-
talsverðar eignir. „Í árslok í fyrra
töldu 30.609 fjölskyldur fram skuld-
ir sem voru frá 0 til 10 milljónir kr.
umfram eignir. Þessar 30.609 fjöl-
skyldur skulduðu rúma 93 milljarða
kr. umfram eignir. Sem fyrr segir
er óvenjulegt að fólk skuldi mun
meira en það á en þó skuldar 441
fjölskylda meira en 50 milljónum
kr. meira en hún á. Þessar fjöl-
skyldur skulduðu 54 milljarða um-
fram eignir í árslok 2008 en þar af
voru 170 fjölskyldur sem skulduðu
meira en 100 milljónum kr. meira
en þær áttu, 59 fjölskyldur skuld-
uðu meira en 150 milljónum kr.
meira en þær áttu. Þessar fjöl-
skyldur skulduðu rúma 24 milljarða
kr. umfram eignir. Þær töldu fram
skuldir upp á 31,2 milljarða kr. en
á móti skuldum stóðu hins vegar
eignir sem metnar voru á rúma 7
milljarða kr,“ segir í grein Páls.
Miklar vaxtagreiðslur
Sumar fjölskyldur glíma við
þunga vaxtabyrði. Það vekur
nokkra athygli að stór hópur lands-
manna greiðir meira en þriðjung
brúttótekna í vexti og afborganir af
lánum. Um að ræða 9.232 einhleyp-
inga og hjón en sumir þessara
framteljenda, 225 hjón og 972 ein-
hleypingar eða alls 1.197 heimili,
töldu fram hærri vaxtagreiðslur en
sem nam framtöldum brúttótekjum
á árinu 2008.
Páll bendir á í grein sinni að það
veki athygli að þeir sem greiddu
meira en 20% af tekjum ársins
2008 í vaxtagreiðslur töldu að jafn-
aði fram meiri skuldir en eignir, og
því duga eignirnar ekki fyrir skuld-
um sem gefur vísbendingu um að
þeir 19.686 einhleypingar og hjón
sem standa að baki þessum tölum
eigi að öllum líkindum við nokkurn
vanda að etja.
Sá hópur framteljenda sem töldu
fram meira en 150 milljónir í eignir
átti rúman fjórðung innstæðna í
bönkum, eða tæpa 168,7 milljarða
kr. af rúmlega 661,5 milljörðum kr.
sem skráðir voru á framtölum
landsmanna.
Í HNOTSKURN
» Fasteignir eru um 80%eigna þeirra sem telja
fram eignir á bilinu frá 10 til
50 milljónir kr. en um er að
ræða 76.199 fjölskyldur eða
tæp 41,9% fjölskyldna í land-
inu.
» Samkvæmt framtölum erurúmlega 661,5 milljarðar
inni á bankareikningum lands-
manna. Fjórðungur upphæð-
arinnar er í eigu framteljenda
sem eiga meira en 150 millj-
ónir hver.
Eignir alls í milljónum króna
0
0
-5
5-
10
10
-1
5
15
-2
0
20
-2
5
25
-3
0
30
-3
5
35
-4
0
4
0
-4
5
4
5-
50
50
-5
5
55
-6
0
6
0
-6
5
6
5-
70
70
-7
5
75
-8
0
8
0
-8
5
8
5-
9
0
9
0
-9
5
9
5-
10
0
10
0
-1
0
5
10
5-
11
0
11
0
-1
15
11
5-
12
0
12
0
-1
25
12
5-
13
0
13
0
-1
35
13
5-
14
0
14
0
-1
4
5
14
5-
15
0
+
15
0
Ma. kr.
500
450
400
350
300
250
200
150
100
50
0
Fjöldi
fjölskyldna
80.000
70.000
60.000
50.000
40.000
30.000
20.000
10.000
0
Eignir og skuldir einstaklinga
raðað eftr heildareignum
12
.6
69
68
.8
23
7.
52
1 10
.7
41 14
.2
70
14
.6
86
11
.8
18
8.
50
9
6.
36
3
5.
39
0
4.
42
2
3.
53
0
2.
58
2
1.4
12
1.
08
9
85
6
1.
85
8
69
2
55
6
49
4
36
2
29
2
27
6
23
7
20
0
14
7
14
6
12
5
11
5
11
8
75 1
.3
81
Fjöldi fjölskyldna
Eignir alls
Skuldir alls
Ma. kr.
4.000
3.500
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
19
93
19
9
4
19
9
5
19
9
6
19
97
19
9
8
19
9
9
20
0
0
20
0
1
20
0
2
20
0
3
20
0
4
20
0
5
20
0
6
20
0
7
20
0
8
20
0
9
Álagningarár
Eignir og skuldir einstaklinga
1993 til 2009
71
5
22
0
23
8
26
1
27
8
30
3
33
1
36
5
41
5 47
7 54
7
58
6 65
7 75
7 9
18
1.
11
3 1.
34
8 1
.6
83
74
0
76
5
77
9
81
6 88
3 95
9 1.
09
8
1.
23
8 1.4
06 1.4
97 1.
66
9 1.
92
7
2.
45
5
2.
82
0
3.
38
0 3
.6
57
Eignir alls
Skuldir alls
teljist til skattskyldra tekna þótt lög-
aðilinn sjálfur sé skattskyldur. „Ef
ákvæði af þessu tagi komast inn í lög
má með sanni segja að upp sé komin
sú staða að menn geti valið sér skatt-
stofna eftir pöntun. Tengdir aðilar
munu fella niður og endurvekja
skuldir eftir þörfum til að stjórna
skattgreiðslum sínum og bankar og
önnur fjármálafyrirtæki munu eins
og reynslan sýnir liðka fyrir slíkum
aðgerðum.“
Aðalsteinn sagði í samtali við
Morgunblaðið að það hefðu aðilar
verið að berjast fyrir því að fyrirtæki
gætu fellt niður skuldir án þess að
það teldist til skattskyldra tekna.
„Það eru tvær ástæður fyrir þessu.
Önnur er sú að það er búið að tæma
félögin með arðgreiðslum. Menn
keyptu fyrirtæki og tæmdu allt sem
hægt var í formi arðs. Síðan var líka
leikinn sá leikur að eignirnar voru
búnar til á þann hátt að þær veita
ekki skattafrádrátt ef þær afskrifast
og tapast. Það á við um viðskiptavild
sem oft er stór liður í bókhaldi fyr-
irtækja. Þess vegna eru menn að
reyna að berja það fram að niðurfell-
ingin fáist fram án þess að hún teljist
til tekna. Það er að mínu mati algert
stílbrot og andstætt öllu því sem gilt
hefur í skattarétti í áraraðir.“
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2009
Eftir Ívar Pál Jónsson
ivarpall@mbl.is
SKULDIR Orkuveitu Reykjavíkur,
OR, námu 227 milljörðum króna um
mitt ár 2009. Hinn svokallaði
EBITDA-rekstrarhagnaður á árinu
2008 nam 11,7 milljörðum króna og er
hlutfall skulda af þeim hagnaði því
19,5. Í rekstrarfræðum er talið eðli-
legt að fyrirtæki í sama geira séu með
skuldir/EBITDA-hlutfall á bilinu 3-5.
Skuldir OR eru að mestu í erlendum
myntum, en tekjur í íslenskum krón-
um.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær lækkaði lánshæfisfyr-
irtækið Moody’s lánshæfiseinkunn
Orkuveitu Reykjavíkur niður í svo-
kallaðan ruslflokk. Samkvæmt reikn-
ingi fyrir fyrri hluta þessa árs nam
handbært fé Orkuveitunnar um mitt
ár 1,4 milljörðum króna, en skamm-
tímaskuldir um 16 milljörðum.
Lán frá Evrópska fjárfest-
ingarbankanum tryggt
Anna Skúladóttir, framkvæmda-
stjóri fjármála hjá Orkuveitu Reykja-
víkur, segir að nú sé verið að ganga
frá lánum við Evrópska fjárfesting-
arbankann, EF. „Það gefur okkur
strax aðgang að 15 milljörðum
króna,“ segir hún. „Síðan erum við að
vinna að skuldabréfaútgáfu á inn-
lendum markaði, sem við gerum ráð
fyrir að klára fyrir áramót. Þar er um
að ræða 10 milljarða útboð,“ bætir
hún við.
Anna segir að með láninu frá EF sé
Orkuveitan vel stödd fram á næsta ár.
„Með þessu láni og skuldabréfaútgáf-
unni erum við því í góðum málum
hvað varðar lausafjárstöðu,“ segir
hún.
Anna segir að lánið frá EF, sem er
upp á u.þ.b. 30 milljarða, verði notað
til að fjármagna helminginn af fjár-
festingum á Hellisheiði, þ.e. síðasta
áfangann þar, og Hverahlíðarvirkjun.
Hverahlíðarvirkjun hefur verið í bið-
stöðu að undanförnu. „Það hefur ver-
ið gefið út að ekki verði lagt í þá virkj-
un fyrr en fjármögnun hennar er að
fullu tryggð,“ segir hún.
Anna segir að nú þurfi Orkuveitan
að leita að fjármögnun á hinum helm-
ingi Hellisheiðarvirkjunar, enda sé
gert ráð fyrir því að þeim áfanga
verði lokið síðari hluta árs 2011 og
virkjunin þá gangsett. „Við förum
núna á fulla ferð í það. Forsendan fyr-
ir því var að ganga frá láni EF,“ segir
hún. „Fjárfestingaáætlun okkar á
þessu ári hljóðar upp á 16 milljarða
króna,“ bætir hún við.
Anna segir að á næsta ári sé einnig
gert ráð fyrir miklum fjárfestingum
vegna Hellisheiðarvirkjunar. Ekki sé
þörf á stórum endurfjármögnunar-
pakka – fyrst og fremst þurfi að fjár-
magna stórar fjárfestingar á næst-
unni.
Aðgengið þyngra
Aðspurð hvort lækkun lánshæfis-
mats Orkuveitunnar niður í svokall-
aðan „ruslflokk“ setji ekki strik í
reikninginn við fjármögnun þessara
verkefna, segir Anna að augaleið gefi
að viðbúið sé að aðgengi Orkuveit-
unnar verði þyngra. „Ég efa það ekki,
en það fer svolítið eftir því hvar okkur
tekst að bera niður. Stofnanir á borð
við EF hafa t.a.m. örlítið önnur sjón-
armið en margir aðrir lánveitendur á
markaði,“ segir hún.
OR skuldar 19-
faldan hagnað
Vinnur að fjármögnun nýrra verkefna
Í HNOTSKURN
»Lánshæfiseinkunn OR varlækkuð niður í ruslflokk.
»Heildarskuldir fyrirtæk-isins eru í erlendri mynt
og svara til 227 milljarða
króna.
»Skuldir eru 19,5 sinnumrekstrarhagnaður.
»Eðlilegt þykir að hlutfalliðhjá fyrirtækjum í orku-
geiranum sé á bilinu 3-5.
Húsfélagaþjónusta Kaupþings
sparar þér tíma og fyrirhöfn
Nánar á www.kaupthing.is/husfelag
Ekkert mánaðargjald
Einföld innheimta
Öflugur netbanki
Þinn þjónusturáðgjafi
Fullkomið rekstraryfirlit
Félagatal og greiðslustaða
Komdu í viðskipti með húsfélagið þitt. Sendu fyrirspurn
á husfelag@kaupthing.com - hringdu í síma 444 7000
eða komdu við í næsta útibúi. Starfsfólk Kaupþings tekur
vel á móti þér og veitir allar nánari upplýsingar.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
A
U
47
73
3
11
/0
9