Morgunblaðið - 13.11.2009, Side 17
Fréttir 17VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
DEBENHAMS gekk í gær frá
kaupum á dönsku stórversluninni
Magasin Du Nord. Kaupverðið er
101 milljón danskra króna fyrir allt
hlutafé í verslunarrekstrinum. Selj-
andi var Straumur, en bankinn
eignaðist 75% í eignarhaldsfélaginu
Magillum A/S við gjaldþrot Baugs í
mars síðastliðnum. Straumur eign-
aðist síðan allt félagið þegar 25%
hlutur B2B Holding var leystur til
bankans.
Við söluna í gær var eign
Straums í rekstrarfélaginu þó að-
eins 50%, að því er upplýsingar frá
Straumi herma. Gengi bréfa Deben-
hams í kauphöllinni í London hækk-
aði snarlega við tíðindin í gærmorg-
un. Oscar Crohn, sem heldur utan
um eignir Straums í Danmörku,
segir að söluverðið fyrir rekstur
Magasin sé mjög ásættanlegt miðað
við aðstæður á markaði.
Að sögn Crohns mun Jón Björns-
son sitja áfram í stóli forstjóra
Magasin eftir eigendaskiptin. Jón
tók við sem forstjóri þegar yfirtak-
an á Magasin var gerð árið 2004.
Keyptu á 494 milljónir
Baugur Group, Straumur og B2B
Holding keyptu 87% hlutafjár í
Magasin þann 13. nóvember 2004.
Aðaleigandi B2B Holding er at-
hafnamaðurinn Birgir Þór Bielt-
vedt. Fyrir 87% hlut voru greiddir
4,8 milljarðar króna. Samkvæmt því
var heildarvirði fyrirtækisins 494
milljónir danskra króna, eða sem
nemur 12,3 milljörðum króna á
gengi dagsins í dag.
Söluverð Straums nú er því um
það bil 80% prósentum lægra en
kaupverð íslenska fjárfestahópsins
fyrir fimm árum. Þegar Magasin
var tekið yfir árið 2004 hafði rekst-
ur fyrirtækisins gengið illa, og tap
þess numið hundruðum milljóna
danskra króna í nokkur ár í röð.
Fljótlega tókst að snúa rekstrinum
við í hagnað. Á síðasta uppgjörsári
var þó tæplega 100 milljóna
danskra króna taprekstur á Maga-
sin.
Engar fasteignir fylgja
Engar fasteignir Magasin munu
fylgja með í kaupunum, ólíkt því
sem fram kom í fjölmiðlum í gær.
Þetta staðfestir Oscar Crohn. Um
mitt ár 2006 seldi Baugur allar fast-
eignir Magasin til félags í eigu
Landic Property. Straumur, í sam-
starfi við pakistanska fjárfestinn
Alshair Fiyaz, keypti þær þó til
baka í ágúst á þessu ári í gegnum
félagið Solstra Holding A/S.
Kaupa reksturinn á 2,5 milljarða
Jón Björnsson verður áfram forstjóri Magasin eftir eigendaskiptin Straumur heldur eftir
fasteignum félagsins Forsvarsmenn bankans ánægðir með söluverðið miðað við aðstæður
Í HNOTSKURN
»Baugur Group, Straumurog B2B Holding keyptu
87% hlutafjár í Magasin fyrir
410 milljónir danskra króna
árið 2004. Með í kaupunum
fylgdu allar fasteignir Maga-
sin.
»Solstra Holding A/S, semStraumur á að hálfu á móti
pakistanska fjárfestinum
Alshair Fiyaz, mun halda eftir
öllum fasteignum Magasin.
»Rekstrarfélag Magasin ermeð 25 ára leigusamning
um afnot af húsnæðinu við
Kongens Nytorv.
»Kaupverðið nemur alls um2,5 milljörðum króna.
Debenhams hefur keypt rekstur
Magasin Du Nord. Söluverðið
nemur 2,5 milljörðum króna, sem
er um það bil 10 milljörðum
lægra en kaupverð íslenskra fjár-
festa árið 2004.
Verslun Magasin við Kóngsins
Nýjatorg í Kaupmannahöfn.
ÞETTA HELST ...
● SKILANEFND Kaupþings mun að öll-
um líkindum óska eftir áframhaldandi
greiðslustöðvun Kaupþings hjá Héraðs-
dómi Reykjavíkur í dag. Tæpt ár er síðan
bankinn fékk fyrst heimild til greiðslu-
stöðvunar en að hámarki getur greiðslu-
stöðvun varað í 24 mánuði. Að því loknu
getur þrennt gerst: slitameðferð, gjald-
þrotaskipti eða nauðasamningur.
Greiðslustöðvun Kaup-
þings verði framlengd
● SAMKVÆMT fréttum Reuters og
Bloomberg í gær er Actavis í hópi
10 lyfjafyrirtækja og fjárfestahópa
sem gert hafa tilboð í þýska fyr-
irtækið Ratiopharm. Tilboðin eru
sögð frá 2-2,5 milljarða evra, jafn-
virði 360-460 milljarða króna. Ekki
er um bindandi tilboð að ræða í
fyrstu. Talsmenn Actavis hafa ekki
viljað tjá sig um málið.
360-460 milljarða til-
boð í þýskt fyrirtæki
Eftir Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
SKILANEFND Icebank hefur
gert samning við verðbréfafyrir-
tækið Arev um að það sjái um
stýringu á rekstri og eignum veit-
ingastaðarins Ruby Tuesday og
ritfangaverslunarinnar A4.
Icebank tók nýverið yfir Ruby
Tuesday og A4 og í stað þess að
halda rekstri félaganna innan vé-
banda bankans var ákveðið að leita
til utanaðkomandi aðila.
Nokkrir möguleikar í stöðunni
Stofnað hefur verið samlags-
hlutafélag utan um rekstur félag-
anna og hefur það fengið nafnið
Björg. Það verður svo í umsjón
Arev, en verðbréfafyrirtækið hefur
töluvert sinnt fjárfestingum í
óskráðum félögum sem starfa í
heildsölu, verslun og þjónustu.
Björn Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Arev, segir ekkert
liggja fyrir ennþá um framtíðar-
áform Bjargar og nokkrir val-
möguleikar séu í stöðunni. Hann
segir að hægt verði að auka
hlutafé og skrá það þegar fram í
sækir og jafnframt sé hugsanlegt
að rekstur fyrirtækjanna sem
heyra undir móðurfélagið verði
seldir þegar hagstæðari skilyrði
skapast.
Icebank leitar til utan-
aðkomandi sérfræðinga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Veitingastaður Icebank tók nýlega yfir veitingastaðinn Ruby Tuesday.
Arev sér um
eignastýringu
HREIN eign líf-
eyrissjóðanna
minnkaði um
tæplega 50 millj-
arða milli ára í
septemberlok, að
því er kemur
fram í nýjum
tölum Seðla-
banka Íslands
sem birtar voru í gær. Eignir sjóð-
anna jukust þó milli mánaða um
ríflega 26 milljarða króna. Sú
breyting var nú gerð á framsetn-
ingu talna að staða sjóðanna í af-
leiðusamningum var sundurliðuð. Í
ljós kom að staða lífeyrissjóða í af-
leiðusamningum er neikvæð um 65
milljarða króna. Erlend verð-
bréfaeign sjóðanna hefur hækkað
um 30 milljarða frá miðju ári
2008, eða ríflega 6%. Það er því
ljóst að lífeyrissjóðir hafa verið
stórtækir í sölu erlendra verð-
bréfa. thg@mbl.is
Hrein eign
minnkar um
50 milljarða
Neikvæð afleiðu-
staða 65 milljarðar
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150
Opið virka daga kl. 12.00 - 18.00 – laugardaga 12.00 - 16.00
6 mán. vaxtalausar greiðslur
Fyrst og fremst í heilsudýnum