Morgunblaðið - 13.11.2009, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 13.11.2009, Qupperneq 24
24 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2009 Fremstir í atvinnufasteignum :: 590 7600 Þorlákur Ó. Einarsson Þórhildur Sandholt lögg. fasteignasali lögfr. og lögg. fast.sali storeign.is Fax 535 1009 Fasteignasala • Atvinnuhúsnæði • Skúlatún 2 • 105 Rvk Suðurlandsbraut Stóreign 590-7606 kynnir til leigu glæsilega 346 fermetra penthouse skrifstofuhæð við Suðurlandsbraut í Reykjavík. Húsnæðið skiptist í mót- töku, fundarherbergi, þrjár lokaðar skrifstofur stúkaðar af með glerveggj- um og opnu skrifstofurými. Kaffiað- staða er fyrir starfsfólk með eldhús aðstöðu. Húsnæðið er nýlega endurinnréttað allt með vönduðum innrétt- ingum. Gólfefni eru parket. Glæsilegt útsýni er úr öllu rýmum. Möguleiki er á að leigja allt að 700 fermetra í húsinu. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Stóreignar 590 7606 eða brandur@storeign.is ALDREI fyrr hefur mannkynið staðið frammi fyrir viðlíka ógn og það hefur kall- að yfir sig með iðn- væðingu í krafti jarð- efnaeldsneytis. Loftslagsbreytingar af völdum mengunar með gróðurhúsalofti eiga aðeins eftir að stig- magnast verði ekki brugðist við hér og nú. Á al- þjóðaráðstefnunni í Kaupmanna- höfn í desember ræðst hvort sam- komulag tekst um nýjan og bindandi samning í stað Kýótóbók- unarinnar. „Það er erfiðasta stjórn- málaþraut sem heimurinn hefur séð til þessa,“ sagði Gordon Brown, for- sætisráðherra Breta, 19. október síðastliðinn og bætti við að lausn hennar kallaði á endurhönnun heilu efnahagskerfanna. Stjórn- málaleiðtogar um allan heim sitja nú yfir þessum Gordíonshnút, sem flestir vildu til skamms tíma sem minnst vita af og sumir afneituðu. Hrikalegar afleiðingar aðgerðaleysis Viðfangsefnið er í bili komið úr höndum vísindanefndar Sameinuðu þjóðanna IPCC og á borð stjórn- málamanna. Víða um heim hafa sér- fræðinga- og þingmannanefndir set- ið yfir mengunardæminu sem notkun jarðefnaeldsneytis hefur kallað yfir heiminn frá því í árdaga iðnvæðingar og vindur nú æ hraðar upp á sig. David Miliband utanrík- isráðherra Breta opnaði heimskort í Science Museum í London 22. októ- ber sl. sem sýnir afleiðingar að- gerðaleysis að hálfri öld liðinni. Kortið er byggt m.a. á mati vísinda- manna hjá Hadley Centre og gerir ráð fyrir 4°C hækkun meðalhita á jörðinni árið 2060, tvöfalt hærri tölu en talið hefur verið hámark þess sem unnt væri að búa við án þess að allt fari úr böndum í vistkerfum jarðar og á sjávarströndum. En kortið sýnir líka langtum hærra hitastig yfir þurrlendi en hafinu og mest á norðurslóðum þar sem með- alhitinn gæti farið í 15 til 16°C. Slíkar rökstuddar dómsdagstölur hafa ekki áður sést og afleiðing- arnar fyrir vistkerfi, fæðuöflun og stöðu sjávar eru að sama skapi ógn- vænlegar. Ástralar burt frá ströndinni Aðvörunarhróp var að berast frá ástralsk- ri þingnefnd sem flutti löndum sínum þann boðskap að brátt væri tími bygginga með ströndum fram úti og menn yrðu að færa sig upp í landið frá hækk- andi sjávarborði og brimsköflum. Strend- ur Ástralíu hafa sem víðar haft sérstakt aðdráttarafl fyr- ir húseigendur og yfir 700 þúsund slíkar fasteignir eru nú taldar neð- an við 20 feta hæð frá fjöruborði. Í bænum Byron Bay í Nýja Suður- Wales hefur borgarstjórnin lagst gegn því að eigendur fasteigna byggi varnir og sandpokavirki sjáv- armegin, heldur verði náttúran að hafa sinn gang. Þetta segir þing- nefndin að þurfi ef til vill að lög- leiða, m.a. í ljósi afar flókinna tryggingaákvæða og ábyrgð- arreglna sem tengist loftslagsbreyt- ingum. Eftir valdatöku ástralska Verkamannaflokksins í kjölfar síð- ustu kosninga reyna þarlend stjórn- völd nú að vinna gegn losun gróð- urhúslofts en mæta harðri andstöðu samtaka iðnaðarins og hægri- manna, sem í stjórnartíð sinni stungu hausnum í sandinn. Þrengir að skógum og landbúnaði Afleiðingar loftslagsbreytinganna eru altækar og þótt þær bitni mis- jafnlega hart á einstökum svæðum fyrst um sinn getur enginn hrósað happi til langframa. Eitt af því sem lagt verður fyrir ráðstefnuna í Kaupmannahöfn varðar aðgerðir til að stöðva frekari eyðingu regn- skóga, m.a. með fjárframlögum til þeirra sem telja sig hafa hag af harðviðarsölu eða akuryrkju. Þar kemur pálmaolía mikið við sögu en notkun hennar í fjölmargar iðn- aðarvörur og matvælagerð hefur farið sívaxandi. Er sú eftirspurn ekki síst ástæða þess að regn- skógar eru brenndir í stórum stíl til að rækta í staðinn olíupálma en við það hverfur öflug kolefnisbinding skóganna. – Í kjölfar hlýnunar breytist ræktarland í ördeyðu og eyðimerkur og að sama skapi dreg- ur úr matvælaframleiðslu á heims- vísu og aðgangur að ferskvatni minnkar. Jafnframt verður röskun og tilfærsla á hafstraumum og vist- kerfum sjávar, sem þegar er farin að segja til sín hér við land og haft getur ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér. – Nýverið hvatti Nicholas Stern, fyrrverandi aðal- hagfræðingur Alþjóðabankans og höfundur þekktrar skýrslu, almenn- ing til að snúa sér að grænmeti í stað kjöts af tillitssemi við lofts- lagið. Rökin eru þau að metan- losun frá nautgripum og svínum er gífurleg og talið að slík losun frá húsdýrum valdi á heildina litið um fimmtungi hlýnunar. Ábyrgðin er iðnríkjanna Iðnríkin viðurkenndu þegar árið 1995 að þeirra væri ábyrgðin á loftslagsbreytingum af mannavöld- um. Nú er hins vegar svo komið vegna stórstígrar iðnvæðingar margra þróunarlanda með Kína í farabroddi að einnig þau þurfa nú að axla ábyrgð af sívaxandi mengun andrúmsloftsins og hægja um leið á efnahagsvexti. Það gerist hins veg- ar ekki nema til komi fjár- skuldbindingar og stuðningur af hálfu ríkra þjóða og um þann pakka deila þróuðu ríkin nú innbyrðis. Mest óvissa er um hlut Bandaríkj- anna því að án framlags þeirra jafnt í niðurskurði í losun sem og fjárframlögum verður ekkert bita- stætt samkomulag í Kaupmanna- höfn. Framhaldið verður prófsteinn á markaðshagkerfið og getu al- þjóðasamfélagsins til að snúa af þeirri braut sem æ fleiri sjá nú að snýst um örlög siðmenningar og til- vist mannkyns. Prófsteinn á markaðshagkerfið Eftir Hjörleif Guttormsson » Stjórnmálaleiðtogar um allan heim sitja nú yfir þessum Gor- díonshnút sem flestir vildu til skamms tíma sem minnst vita af og sumir afneituðu. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. FAGLEG vinnu- brögð við viðhald bíla verður sífellt brýnna þegar bílaflotinn eldist m.a.vegna samdráttar í sölu nýrra bifreiða. Því miður hafa alltof margir, bæði hér á landi sem og erlendis, brennt sig illa á að láta aðila sem ekki hafa réttu tækin eða réttu kunnáttuna til að gera við bíla sína í þeim tilgangi að spara. Fólk fer með bílinn sinn til aðila sem auglýsa sig oft á netinu eða í smáauglýsingum og bjóða „ódýrar“ viðgerðir á bílum. Oftast er um svarta starfsemi að ræða og án allr- ar ábyrgðar. Þegar upp er staðið verður viðgerðin margfalt dýrari en ella hefði orðið. Ástæðan er að þeir sem á bak við slíkar auglýsingar standa eru oftast ófullkomin bílskúrsfyrirtæki og kunnátta þeirra og tæki sömuleiðis. Þar eru oft að störfum menn með af- ar takmarkaða þekkingu, tæki og tól. Og oftar en ekki ræður þetta fólk ekki við hinn mikla margbreytileika, sem er í útbúnaði og gerð hinna fjöl- mörgu bifreiðategunda, er á mark- aðnum eru. Þekkingu, tæki og tækni vantar oftast í þessum tilfellum til þess að tryggja öryggi og endingu bifreið- arinnar svo að lagfært verði það sem lagfæra verður. Af þessu hlýst oft, því miður, stór- tjón og endanlegur viðgerðarkostn- aður margfaldast. Fjölmörg dæmi eru um að ein- staklingar hafa komið með bíla sína á viðurkennt verkstæði eftir að hafa verið með þá í höndunum á fúsk- urum. Tjónið og kostnaðurinn er þá orðinn miklu meiri en hann annars hefði þurft að vera, ef viðkomandi bíleigandi hefði snúið sér strax til faglegs verkstæðis, sem búið var viðeigandi tækni- búnaði og kunnáttu. Bílar í dag eru mjög tæknilegir og búnir ýmsum tölvubúnaði, sem auðvelt er að eyði- leggja með röngum vinnubrögðum og því miður eru fjölmörg dæmi þar um. Þetta á ekki bara við um flókn- ar viðgerðir þar sem flestir hlutar bílsins eru tengdir við margbrotið tölvukerfi bifreiðarinnar, sem auð- velt er að skemma með röngum vinnubrögðum. Sérstaklega er rétt að benda fólki á að allt sem lýtur að stýris- og bremsubúnaði snýr beint að öryggi ökumanns, farþega sem og annarra vegfarenda. Það ætti því alls ekki – undir neinum kringumstæðum – að láta fúskara með lélegan tækjakost eiga við slíkan búnað. – Það er lífs- hættulegt! Ekki dettur nokkrum manni í hug að láta bifvélavirkja gera við tenn- urnar í barninu sínu, – því síður að framkvæma inngrip inn í flóknari innri líffæri líkamans. Það sama á auðvitað við um viðhald fjöl- skyldubílsins þegar kemur að örygg- isatriðum bílsins, þar sem skilið get- ur á milli feigs og ófeigs. Fúsk í bílavið- gerðum er bæði dýrt og hættulegt Eftir Özur Lárusson Özur Lárusson » Fólk fer með bílinn sinn til aðila sem auglýsa sig oft á netinu eða í smáauglýsingum og bjóða „ódýrar“ við- gerðir á bílum. Höfundur er framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins. ÞAÐ ERU erfiðir tímar, skorið niður og sparað. Flestir skilja nauð- syn þess og eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum. Rætt er um flatan niðurskurð á flestum sviðum, en er það sú leið sem fólkið í landinu vill fara? Viljum við skera niður í heilsu- gæslu og ungbarnaeftirliti; viljum við láta skera niður krabbameins- lækningar eða rými fyrir aldraða með heilabilun svo nokkuð sé nefnt? Flestir Íslendingar vilja alls ekki láta skera niður sjúkrahús, mennta- stofnanir eða stuðning við þá sem þurfa á hjálp að halda og geta ekki bjargað sér sjálfir. Þetta er sú grunnþjónusta sem við Íslendingar höfum stolt byggt upp á síðustu öld. En hvers konar þjóðfélag viljum við nú hafa? Það er staðreynd að við þurfum að spara og þá skulum við byrja á að skera niður dauða hluti en láta lifandi fólk og sjúklinga í friði. Við erum að tala um börnin okkar, foreldra og hugsanlegt er að við sjálf þurfum skyndilega á aðstoð að halda og viljum svo sannarlega að hún sé til staðar. Það eru hópar í þjóðfélaginu sem eiga sér fáa eða enga málsvara. Hver hlustar t.d. á drukkinn mann, hver er málsvari húsmóður í vest- urbænum sem er að drekka sig í hel? Hver tekur að sér dauðsjúkan vímu- efnafíkil sem þarf bráðaaðstoð? Alkóhólistar eiga sér a.m.k. einn tryggan málsvara, SÁÁ. Það á að spara með því að draga úr þjónustu við áfengis- og vímu- efnasjúklinga, en hvað sparast? Heilsuhagfræðingar hafa lengi vitað að áfengismeðferð sparar þjóðfélag- inu gríðarlega mikla fjármuni. Í Bandaríkjunum birtist fyrir mörg- um árum skýrsla sem sýndi fram á, að fyrir hverja krónu sem sett er í meðferð þá sparast 6 krónur. Þarna var framreiknaður kostnaður eins og komur á bráðamóttökur sjúkra- húsa, skemmdarverk, afbrot, fang- elsi ofl. Heilsuhagfræðingar hafa einnig reiknað út að 35 ára gamall maður sem fer í meðferð og snýr aft- ur til vinnu nær að greiða fyrir með- ferð 16-40 annarra einstaklinga með sköttum sínum. En málið snýst ekki bara um krónur og aura, heldur líka um vel- ferð okkar og lífsgæði. Gríðarlegt álag og streita getur fylgt áfengis- og vímuefnasjúkdómnum fyrir fjöl- skyldur landsins þegar ekki fæst viðeigandi aðstoð. Hvernig metum við það böl til fjár? Það hafa farið í meðferð hjá SÁÁ yfir 20.000 Íslend- ingar og meirihluti þessa fólks er við góða heilsu í dag. Aðsókn og þörf á meðferð er ekki að breytast og ef skera á niður framlög til sjúkrahúss- ins Vogs verður þetta ekki hægt. Það er búið að skera það mikið síð- ustu misserin á Vogi að nú að óbreyttu er bara hægt að draga úr þjónustu. Það er sannfæring okkar að þetta er ekki það sem fólkið í landinu vill. Hver hlustar á drukkinn mann? Eftir Guðbjörn Björnsson, Ing- unni Hansdóttur og Magnús Einarsson » Við erum að tala um börnin okkar, for- eldra og hugsanlegt er að við sjálf þurfum skyndilega á aðstoð að halda og viljum að hún sé til staðar. Guðbjörn Björnsson Guðbjörn er læknir á sjúkrahúsinu Vogi, Ingunn er sálfræðingur hjá SÁÁ, Magnús er áfengis- og vímu- efnaráðgjafi hjá SÁÁ. Magnús EinarssonIngunn Hansdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.