Morgunblaðið - 13.11.2009, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 13.11.2009, Qupperneq 26
26 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2009 ENN á ný hefur ágreiningur um fram- kvæmd skýrslutöku af börnum í kynferð- isbrotamálum orðið til- efni til orðaskipta í fjölmiðlum. Þessi ágreiningur hefur staðið í réttan áratug eða frá því að frum- skýrslutaka af börnum í þessum málaflokki var gerð að sérstakri dómsathöfn með lagabreytingu árið 1999. Þá þegar hafði Barnahúsi verið komið á fót, en aðaltilgangurinn með stofnun þess var að skapa umhverfi sem væri hagfellt börnum til skýrslu- töku í þessum viðkvæmu málum, ásamt því að framkvæma lækn- isskoðun og að veita börnunum meðferð vegna ofbeldisins sem þau hafa sætt. Lagabreytingin árið 1999 fól í sér að dómara er gert að ákveða hvar skýrslutaka af barni fer fram. Við þá framkvæmd hefur skapast viss hefð: flestir dómarar í landinu færa sér í nyt þá barnvæn- legu aðstöðu sem stendur til boða í Barnahúsi, ásamt liðsinni sérfræð- inga sem þar starfa og hafa háskóla- menntun á sviði þroska barna og eru sérþjálfaðir í rannsókn- arviðtölum við börn. Hins vegar hef- ur einn dómstóll landsins, Héraðs- dómur Reykjavíkur, valið að nýta sér ekki Barnahúsið. Aðeins eitt barn í Barnahús Þeirri fortakslausu reglu Héraðs- dómsins að sniðganga Barnahús var komið á árið 2003 þegar dóm- aravakt í þessum málum var aflögð og tveim dómurum falin fram- kvæmdin að mestu leyti. Síðan hafa dómarar í Reykjavík aðeins talið ástæðu til að nota Barnahúsið í einu tilviki. Í því tilviki hafði forsjáraðili barns krafist þess að skýrslutakan færi fram í Barnahúsi en önnur dæmi eru ekki um að farið hafi ver- ið að vilja foreldra í þessum efnum. Þá hefur Barnavernd Reykjavíkur jafnan óskað eftir að skýrslutökur færu fram í Barnahúsinu en þær óskir hafa ekki náð fram að ganga. Ætla má að á þessu tímabili hafi verið teknar skýrslur af um 150 börnum í húsnæði héraðsdóm- stólsins, þ.m.t. mjög ungum börnum, allt niður í fjögurra ára, sumum með þroska- frávik eða aðrar sér- þarfir. Þetta sýnir að ekki er lagt mat á það í hverju tilviki fyrir sig hvað barni er fyrir bestu eins og ber að gera samkvæmt ákvæðum Barnasátt- mála SÞ, svo og þeirri meginreglu í mannréttindamálum að ein- staklingur eigi rétt á sérstöku og einstaklingsbundnu mati þegar op- inberar stofnanir taka ákvarðanir er þá varða. „Skiptir ekki máli“? Helgi Jónsson, dómsstjóri Hér- aðsdóms Reykjavíkur, á heiður skil- ið fyrir að vera jafnan reiðubúinn til skoðanaskipta um þessi málefni. Í viðtali við Morgunblaðið þann 6. nóvember sl. segir hann það einfald- lega „ekki skipta máli“ hvar skýrslutaka fari fram heldur frekar hvernig að henni sé staðið. Þá er staðhæft í viðtalinu að leitað sé lið- sinnis sérfræðinga Barnahúss til að taka skýrslur af börnum í Héraðs- dómi þegar um ung börn er að ræða. Þetta er á misskilningi byggt, það heyrir til undantekninga að leit- að sé til sérfræðinga Barnahúss til að annast skýrslutökuna í Héraðs- dómnum en undanfarin ár hefur það gerst að jafnaði í um einu tilviki á ári. Alvarlegasti misskilningurinn er hins vegar sá að það skipti engu máli hvort skýrsla er tekin af barni við barnvænlegar aðstæður eða ekki. Fjölmargar rannsóknir sýna að líðan barns getur haft úr- slitaáhrif á getu þess til tjáningar á erfiðri lífsreynslu og að umhverfi hagfellt barni getur þar skipt sköp- um. Þetta er ástæða þess að í at- hugasemdum með nýjum samningi Evrópuráðsins um vernd barna gegn kynferðisofbeldi eru íslenska Barnahúsinu gerð sérstök skil. Reykjanesdómurinn Ég hef haldið fram því sjónarmiði að nýlegur dómur Héraðsdóms Reykjaness, þar sem faðir var sak- felldur fyrir kynferðisbrot gegn barnungri dóttur sinn og staðfestur var í Hæstarétti með refsiþyngingu, hafi verið án fordæma á Íslandi. Ljóst er að tjáning barnsins við skýrslutöku réð þar úrslitum, tján- ing sem var að takmörkuðu leyti munnleg, en fékkst fram með ein- stöku þolgæði sérfræðinga, þekk- ingu og hæfni og í aðstæðum sem veittu barninu öryggi og góða líðan. Helgi Jónsson andmælir þessu og heldur því fram í fyrrnefndu viðtali að í dómsniðurstöðunni sé „stuðst við ýmislegt annað en það sem fram kom í yfirheyrslunni í Barnahúsi“. Helgi nefnir þar til sögunnar fram- burð ömmu barnsins, fósturfor- eldra, forstöðumanns Barnahúss og tveggja sálfræðinga. Þótt fallast megi á það með Helga að fram- burður þessara aðila hafi vissulega haft þýðingu í málinu þá lýtur hann fyrst og fremst að ætluðum afleið- ingum kynferðisofbeldisins á líðan og hegðun barnsins, en færir ekki fram sönnur á hvers konar kyn- ferðisofbeldi barnið varð fyrir eða af hvers völdum. Engin fordæmi eru fyrir því að vitnisburður af þessu tagi hafi einn og sér, gegn eindreg- inni neitun sakbornings, dugað til sakfellingar án þess að fyrir liggi skýr frásögn barns. Þess vegna blasir við að tjáning barnsins var lykillinn að því að málið hlaut fram- gang í réttarvörslukerfinu eins og raunar oftast á við þegar önnur bein sönnunargögn skortir. Með vísun til þess sem hér hefur verið rakið skora ég á Héraðsdóm Reykjavíkur að endurskoða hinar ómálefnalegu starfsreglur sínar við skýrslutökur á ungum börnum í kynferðisbrotamálum. Lítil börn – lítil mannréttindi? Eftir Braga Guðbrandsson »Hin fortakslausa regla Héraðsdóms að yfirheyra börn án til- lits til aldurs og þroska í eigin húsnæði í stað Barnahúss er andstæð rétti barnsins Bragi Guðbrandsson Höfundur er forstjóri Barnaverndarstofu. Í GREIN sem varaformaður sjávar- útvegs- og landbún- aðarnefndar Alþingis, Ólína Þorvarðardóttir ritar í Morgunblaðið 29. október er farið mikinn, hvort sem fjallað er um líf- fræðilegan hluta fisk- veiðistjórnunarkerf- isins eða þann hagræna. Nauðsynlegt er að leið- rétta augljós rangindi, sem annað hvort eru sett fram af vankunn- áttu eða vondum hug. Ólína talar um að „skapaður“ hafi verið skortur á leigukvóta til að þrýsta á stjórnvöld. Gerir þing- maðurinn sér ekki grein fyrir að einmitt þessi skortur á leigukvóta undirstrikar virkni kvótakerfisins? Með minnkandi aflaheimildum þarf minni flota til að sækja það sem er til úthlutunar. Útgerðir nýta sínar aflaheimildir betur og því er lítið eftir til leigu. Því detta fyrst út kvótalitlir bátar. Þessi leigukvóta- skortur ætti að kæta þá sem hafa harðast gagnrýnt leigu á kvóta. Hefur ekki Ól- ína einmitt verið í þeim flokki? Þingmanninum verður tíðrætt um hvernig kvótakerfið hafi brugðist í að byggja upp fiskistofna. Það er engin furða enda var megintil- gangur kvótakerfisins ekki sá. Því var komið á til að auka arðsemi í greininni og draga úr sóknargetu flotans. Sóknargetu sem stjórn- málamenn höfðu skapað með gegndarlausum innflutningi á tog- urum. Upp úr 1980 hafði tog- araflotinn stækkað um rúmlega hundrað togara og algert hrun blasti við útgerðinni og reyndar fiskistofnum líka. Svarta skýrsla Hafró hafði komið út 1976 og Ís- lendingar voru að átta sig á nauð- syn þess að stunda ábyrgar sjálf- bærar veiðar. Kvótakerfinu var þvingað upp á útgerðarmenn og þeir látnir bera ábyrgð á nið- urskurði á fiskiskipaflotanum, en fengu í staðinn nýtingarrétt auð- lindarinnar. Það er hollt að rifja það upp, að árið 1981 veiddu Íslendingar 469 þúsund tonn af þorski. Nærri fjórðungur af þessum afla endaði á skreiðarhjöllum og var seldur fyrir lágt verð til Nígeríu. Í þess- ari miklu veiði var tap útgerð- arinnar í sögulegu hámarki og fiskveiðiarðurinn lítill sem enginn. Í þessu samhengi verða menn að skilja að kvótakerfið ræður ekki veiðimagni, enda er sú ákvörðun tekin pólitískt af ráðherra í sam- ráði við vísindamenn Hafró. Vankunnátta eða slæmur hugur Eftir Gunnar Þórðarson Gunnar Þórðarson » Þessi leigukvóta- skortur ætti að kæta þá sem hafa harðast gagnrýnt leigu á kvóta. Höfundur er viðskiptafræðingur með meistarapróf í alþjóðlegum við- skiptum. LOFSVERT er það framtak Fram- tíðarlandsins að boða til þjóðfundar. Um fimmtán hundruð manns munu vinna í hópum, skilgreina vandamál þjóð- arinnar, leita lausna, kryfja til mergjar lífsgildi okkar og stjórnsýslu. Þessir hópar munu leggja fram hugmyndir er snerta flest svið þjóðfélagsins. Allt þetta fólk myndar þverskurð þjóðfélagsins; er á öllum aldri og úr flestum starfsgreinum – það mun skila sér í árangri og gæðum þessarar vinnu. Kraftur æskunnar og þor – ásamt yfirsýn, reynslu og visku hinna eldri, mun skila sér í raun- hæfum hugmyndum sem öll þjóðin getur fylkt sér um. Jafn áríðandi og það er að finna skjótar lausnir á brýnum vanda- málum heimila og fyrirtækja er ekki síður nauðsynlegt að horfa til langrar framtíðar; tryggja þjóð- inni fullkomið sjálfstæði og þar með rétt til að slípa úrræðin til eftir því sem reynsla kemur á þau og leiðrétta stefnu þjóðarskút- unnar ef vá er framundan. Sjálfstæði getur þjóð glatað með ýmsum hætti. Augljósast er þegar ein þjóð beitir aðra vopna- valdi. Það þekkjum við td. frá heimsstyrjöldunum tveim á síð- ustu öld. Einnig getur getur þjóð orðið gjaldþrota og verið knésett af td. lánardrottnum sem í raun halda þá um stjórnartaumana með eigin hagsmuni að leiðarljósi. Dæmi um það má td. finna í Afr- íku og Suður-Ameríku. Þá eru þess dæmi að þjóð gefist upp á að stjórna sér sjálf og gefi sig á vald nágrannaþjóð í vonleysi og vantrú á eigin getu. Nýfundnaland, á austurströnd Norður-Ameríku, fórnaði sjálfstæði sínu um miðja síðustu öld og er nú fylki í stórrík- inu Kanada. Þjóðfundurinn tekur væntanlega til umræðu þau mál sem nú ber einna hæst í umræðunni um stjórnmál á Íslandi, þ.e. Alþjóða gjaldeyrissjóðinn, Icesave og Evr- ópusambandið – sem ríkistjórnin sækir fast að koma Íslandi í. Öll þessi mál þarf að skoða gagn- rýnum augum með til- liti til framtíðar – ekki sem skyndilausn á vandamálum dagsins í dag. Hér skal bent á tvær athyglisverðar blaðagreinar: „Icesave fyrir dóm“ eftir Magnús Óskarsson lögfr., Mbl. 20.10. 2009, og „AGS og Landspítalinn okkar“ eftir Gunnar Skúla Ármannsson lækni, Mbl. 17.10. 2009 – þá síð- arnefndu má einnig finna í greina- safni á www.landsmenn.is Þá kemur og til margháttuð sérstaða Íslands, bæði viðskipta- sambönd okkar, mikil fiskimið, svo og að við erum vopnlaus þjóð. Viljum við ganga í Evrópusam- bandið sem stefnir að því að verða herveldi og hefur skoðanir og af- skipti langt út fyrir landamæri sín? Stjórnsýsla, lög og dómskerfi verða sjálfsagt rædd og vonandi ályktað að færa allt í það horf er endurspeglar vilja og réttlæt- iskennd þjóðarinnar. Samskipti við aðrar þjóðir þarf einnig að skoða. Sá undirlægjuháttur sem einkennt hefur samskipti við ESB er okkur til skammar. Um þau þarf að setja siðareglur sem tryggja fulla reisn Íslendinga. Þá hefur framkoma framkvæmda- valdsins við löggjafann, Alþingi – svo og þjóðina sjálfa – gefið fullt tilefni til þess að setja starfs- reglur þar um. Undirritaður sendir þjóðfund- inum bestu kveðjur, þakkar fund- armönnum störf þeirra og vonar að þeir plægi þann akur sem heið- arlegt, mannvænt, öruggt og metnaðarfullt þjóðfélag sjálf- stæðra Íslendinga blómstrar í. Þjóðfundur Eftir Baldur Ágústsson Baldur Ágústsson »Kraftur æskunnar og þor – ásamt yf- irsýn, reynslu og visku hinna eldri, mun skila sér í raunhæfum hug- myndum sem öll þjóðin getur fylkt sér um. Höf. er fv. forstjóri og frambjóðandi í forsetakosningum 2004 – www.lands- menn.is – baldur@landsmenn.is NÝLEGA var tekið í notkun nýtt íþrótta- hús í Fagralundi í Fossvogi. Búið var að reisa félagsaðstöðu og hluta af búnings- klefum fyrir nokkrum árum. Íþróttahúsið er ætlað fyrir íþrótta- kennslu í Snælands- skóla og æfingaað- stöðu fyrir HK, þ.e. handbolta, blak, körfubolta og fleiri íþróttir. Íþróttahúsið er ásamt mannvirkj- unum sem fyrir voru tæplega 3000 m2. Framkvæmdir hófust á fyrri hluta árs 2008 og um þessar mund- ir er verið að ljúka við fram- kvæmdir á lóð en húsið er komið í fulla notkun. Lægstbjóðandi í byggingu íþróttahússins sem var alútboð var Eykt ehf. og hefur fyrirtækið skil- að góðu verki. Áætlaður kostnaður við hús og lóð er áætlaður um 670 m.kr. Þetta glæsilega íþróttahús er góð viðbót við þau íþróttamannvirki, sem fyrir eru í Kópavogi og mun bæta þjónustu við unga fólkið okkar, sem stundar íþróttir og aðra hreyfingu. Það hefur verið stefna meirihluta bæj- arstjórnar Kópavogs að veita mikla fjár- muni til uppbyggingar íþróttamannvirkja. Ef þau eru fyrir hendi er það besta forvörnin sem hægt er að bjóða upp á í víðum skilningi þess orðs. Ég efast um að nokkurt annað sveitarfélag hafi varið eins miklum fjármunum til íþróttamann- virkja á síðustu 20 árum og Kópa- vogsbær. Til hamingju HK og Kópavogs- búar. Nýtt glæsilegt íþrótta- hús í Fagralundi Eftir Gunnar I. Birgisson Gunnar I. Birgisson » Þetta glæsilega íþróttahús er góð viðbót við þau íþrótta- mannvirki, sem fyrir eru í Kópavogi … Höfundur er fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogsbæjar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.