Morgunblaðið - 13.11.2009, Page 29

Morgunblaðið - 13.11.2009, Page 29
Umræðan 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2009 FJÁRLAGA- FRUMVARPIÐ sem lagt var fram á Alþingi gerir ráð fyrir 87,4 milljarða halla. Nið- urskurður útgjalda verður 43 milljarðar og skattahækkanir 61 milljarður. Hvernig eiga skuldsettar fjöl- skyldur að þola frekari álögur á meðan kaup- máttur launa er í frjálsu falli? Nýtum fármagnið sem er komið inn í hagkerfið með skattlagningu lífeyrisiðgjalda fyrirfram. 12% iðgjöld lífeyris og sér- eignasparnaður verði skattlagðir strax (ekki afturvirkt) sem skilar ríkissjóði tekjum sem jafngilda um 6% hækkun á tekjuskattstofni frá fyrsta degi, án þess að nokkur taki eftir því, tímabundið í 5 ár með stofnun lífeyrisdeildar um skatt- lausan sparnað. Þessir peningar eru komnir inn í hagkerfið og gera engum gagn eins og sakir standa, því er algerlega glórulaust af ríkinu að lána lífeyr- issjóðunum þessa peninga til ára- tuga, þegar svo illa árar. Vafalítið eiga sjóðirnir eftir að tapa þeim margfalt áður en þeim verður skil- að aftur í hagkerfið. Ef þeim verður þá einhvern tímann skilað! Þetta er miklu betri leið en álög- ur á samborgara okkar og heimilin sem eiga nóg með sitt. Kaupmáttur er í frjálsu falli og úrræði ríkisins á skuldavanda heimilanna er til há- borinnar skammar. Einn þáttur hrunsins var alltof mikið fjármagn á alltof litlum markaði. Of mikið framboð á fjár- magni virkaði þensluhvetjandi á gengi hlutabréfa o.s.frv. í bland við glæpsamlega meðferð fárra á þess- um alltof miklu fjármunum. Ef líf- eyrissjóðir hefðu minna fjármagn er líklegt að ávöxtun þeirra yrði betri. Hingað til hafa varðhundar nú- verandi kerfis barist gegn öllum breytingum, barist gegn gegnsæi, afnámi verðtryggingar og talið fyr- irfram skattlagningu lífeyris breyta kerfinu í gegnumstreymiskerfi með gríðarlegum birgðum á þá sem greiða framtíðarskatta. Þessir sömu varðhundar vilja leggja sama ríki til fé vegna framkvæmda og auka þannig skuldabyrðina enn frekar í formi ríkisábyrgðar. Þegar upp er staðið er um nákvæmlega sama hlutinn að ræða nema að þeir sem stjórna sjóðunum vilja stjórna framtíðartekjum ríkisins líka. Ekki voru þeir fáanlegir til að byggja íbúðir fyrir aldraða sjóðs- félaga sem hefði kom- ið sér vel í dag. Þeir hefðu betur hlustað á menn eins og Helga í Góu og Sigurð Odds- son verkfræðing sem skrifaði um Líf-bygg og sýndi fram á arð- semi þess að fjárfesta í húsnæði fyrir sjóðs- félaga sem lokið hafa vinnuskyldu. Hver verður tekju- skattur eftir 30 ár? Við höfum nú þegar fengið stóran hluta af framtíðarskatttekjum ríkissjóðs lánaðan sem hafa tapast að stórum hluta. Ávöxtun lífeyrissjóða er lögbund- in 3,5% raunávöxtun samkv. lögum um skyldutryggingu frá 1998. Síð- an þá hafa sjóðirnir verið ávaxtaðir með tæplega 3% raunávöxtun mið- að við þeirra útgáfu af tapinu sem er ótrúverðug í meira lagi. Ávöxtun verðtryggðra innlánsreikninga með binditíma hjá stærstu bönkunum þremur var að meðaltali 5,96% síð- ustu 10 árin. Þetta þýðir að venju- legir innlánsreikningar gáfu 100% betri ávöxtun en lífeyrissjóðirnir, með alla ofurlaunaforstjórana sem keppast nú við að fela tapið og fegra bækur í skjóli ASÍ og SA. Lífeyrissjóðirnir, SA og ASÍ (Al- mannavarnir Samfylkingarinnar á Íslandi) hafa þvertekið fyrir þessar hugmyndir. Eina rökrétta skýr- ingin á því eru völd á kostnað al- mennings. Hin skýringin er sú að lífeyriskerfið stendur á það miklum brauðfótum að ef þessi leið verður farin þurfa sjóðirnir að losa verð- lausar „eignir“ sínar mun fyrr en ella. Í dag geta þeir notað iðgjöldin til þess að greiða fólki lífeyri í stað þess að losa „eignir“ og geta það næstu 10-15 árin. Sem gerir þeim kleift að afskrifa tapið á útrás- arsukkinu yfir jafnlangan tíma. Lífeyrissjóðirnir hafa gagnrýnt gegnumstreymiskerfið harðlega og talið það kerfi leiða af sér stórkost- leg vandræði þegar fram í sækir. Þessir sömu lífeyrissjóðir eru nú að undirbúa stórfelldar lánveitingar með því að fjármagna verkefni á vegum ríkisins. Með þessu erum við að lána sjálfum okkur peninga sem við þurfum að borga í formi skatta þegar fram í sækir. Þessar fram- kvæmdir verða gerðar með baká- byrgð ríkisins og eru í raun fárán- legur feluleikur við raunveruleikann. Lífeyrissjóðirnir geta alveg eins lánað ríkinu pen- inga og ríkið framkvæmt. ASÍ vill ekki réttláta leiðrétt- ingu höfuðstóls húsnæðislána nema setja á afskriftareikninga í nafni þeirra sem skulda. Þetta er gert svo að Samfylkingin geti hald- ið sínum plönum við AGS í þeirri trú að við fáum flýtimeðferð inn í Evrópusambandið. Ekki hefur ASÍ gagnrýnt hundruð milljarða greiðslur ríkisins í peningamark- aðssjóðina og enn síður skattaálög- ur sem hækka höfuðstól húsnæð- islána. Afskriftir skulda skekkja blekkingarmyndina sem stjórnvöld hafa málað fyrir AGS og ESB. ASÍ treystir því að lífeyrissjóð- irnir nái góðri ávöxtun næstu 40 árin og leggja allt undir með töfra- lausnum Evrópusambandsins án þess að útskýra sérstaklega hvern- ig þær töfralausnir töfra okkur frá skuldavandanum. Geta evran og ESB látið erlendar skuldir okkar og jöklabréfavandann hverfa? Rík- ið greiðir 5,5% vexti af Icesave en lánar lífeyrissjóðunum framtíð- arskatttekjur á innan við 3%. Ríki í ríki Eftir Ragnar Þór Ingólfsson »Eru lífeyrissjóðirnir ríku, ríki í ríki hinna ríku og ríkið og almenn- ingur í gíslingu sjóð- anna? Hvernig lifa fyr- irtækin ef neytendur hverfa? Ragnar Þór Ingólfsson Höfundur er sjóðsfélagi í Lífeyr- issjóði verslunarmanna og stjórn- armaður í VR. NÚ ERU erfiðir tímar og á mörgum vinnustöðum nið- urskurður og upp- sagnir. Hafnarfjarð- arbær er þar ekki undanskilinn og standa nú yfir rót- tækar breytingar hjá bænum. Um nið- urskurðaráætlun bæj- arins spurðist það út að allir þeir sem eru með yfir 400 þúsund krónur á mánuði ættu að taka á sig 5% launaskerðingu og þeir sem væru með yfir milljón á mánuði skyldu taka á sig 11% launalækkun, þar er alltaf miðað við 8 tíma vinnudag. Einnig er ver- ið að fella úr gildi bílastyrki og all- an álíka kostnað þar sem slíkt á við, um leið og stofnunum er skip- að að spara hverja krónu. Nú stendur til að minnka opn- unartíma Suðurbæjarlaugar og frá og með 1. desember verður því lok- að klukkustund fyrr á kvöldin. Með breyttum samningum er hægt að taka þá einu yfirvinnustund sem við starfsmenn höfum fengið á morgnana og breyta honum í vaktaálag í stað yfirvinnu. Þegar ég hóf starf hjá Suður- bæjarlaug fyrir um það bil þremur árum var ég með 140 þús. krónur fyrir 8 tíma dagvinnu. Með launa- hækkunum síðustu þrjú ár er ég kominn með ca. 180 þús. krónur á mánuði, en þess má geta að nú eru fullar atvinnuleysisbætur um 155 þús. krónur á mánuði. Nú á að ráð- ast á yfirvinnuna hjá okkur og lækka heildarlaun starfsmanna um ca. 17-20%. Ég vil taka fram að þetta er allt gróflega reiknað og ég hef ekkert í höndunum til að sýna svart á hvítu, því að þeir góðu menn sem taka þessar ákvarðanir hafa ekki enn séð sér fært að halda með okkur fund og útskýra ná- kvæmlega í hverju niðurskurðurinn felst. Nú ætla bæjaryfirvöld að ráðast á þá lægst launuðu af krafti. Búið er að skera niður hjá leikskólum og skólum sem og hjá mörgum öðrum stofnunum. Niðurskurðirnir sjást kannski ekki gerla úti í sam- félaginu þar sem ráðist er á yf- irvinnu fólks en ekki kjarasamn- inga. Bæjaryfirvöld virðast ekki geta komið hreint fram eins og sést vel á grein sem birtist í fjöl- miðlum varðandi mögulegar upp- sagnir forstöðumanna félagsmið- stöðva í Hafnarfirði. Forstöðumenn þessir hafa frétt af uppsögnum sínum óformlega hjá bæj- arfulltrúa, en ekki fengið skýringar að öðru leyti. Ég geri mér vel grein fyrir því að á þessum erfiðu tímum þurfa allir landsmenn að axla auknar byrðar og skil vel að nú þurfi að spara, en á helst að spara hjá þeim sem hafa ekki efni á því? Spurningar mínar til bæjarstjóra eru því eftirfarandi;  Á virkilega að skera 17-20% af launum fólks með 157 – 180 þús fyrir dagvinnu á meðan þeir sem eru með yfir milljón taka ein- göngu á sig 11% skerðingu?  Minnkun launa jafngildir minni verslun. Minni verslun þýðir minni skattar, er búið að taka það með í reikninginn?  Laun lægst launuðu bæjarstarfs- manna munu vera á við atvinnu- leysisbætur og gætu því sumir séð hag sinn í því að vera heima og þiggja pening í stað þess að mæta í svipað launaða vinnu. Hefur það verið tekið með í reikninginn að það muni kosta bæinn heila auka-launa- útgreiðslu?  Einnig var bæjarbúum lofað að þjónusta yrði ekki skert og að ekki ætti að lækka launin hjá þeim sem minnst mega sín, hvað varð um þær yfirlýsingar?  Á að endurgreiða öllum þeim viðskiptavinum sem eiga kort í sund og líkamsrækt hluta af kortunum sínum vegna skertrar þjónustu og opnunartíma? Nú er minna en mánuður í þess- ar breytingar og enn hefur ekkert heyrst frá skipuleggjendum fyr- irhugaðra breytinga né hefur nokkuð heyrst frá Starfsmanna- félagi Hafnarfjarðar. Því sendi ég þetta bréf með von um birtingu og óska eftir svari frá bæjarstjóra eða þeim sem svörin geta veitt. Opið bréf til bæjar- stjóra Hafnarfjarðar Eftir Ívar Pétursson Ívar Pétursson » 1. desember mun Hafnarfjarðarbær ganga næsta skref í gríðarlegum niður- skurði á yfirvinnu starfsfólks. Höfundur er starfsmaður Suðurbæjarlaugar í Hafnarfirði. Við Íslendingar stöndum í baráttu við að ná okkur upp úr efnahagslægðinni. Í því sambandi skiptir miklu máli að auka virðisaukandi starf- semi með því að stuðla að sköpun fleiri at- vinnutækifæra og auka gjaldeyristekjur. At- vinnuleysi á landinu í september mælist 7,2% og er það óviðunandi ástand og við verðum öll að berjast gegn því að slíkt atvinnuleysi verði viðvarandi í íslensku samfélagi. Mörgum þykir slá- andi hvað nágranna- þjóðir okkar sýna stöðu mála hér á landi lítinn skilning. Hluti skýring- arinnar á því er að leið- togum flestra annarra ríkja þykir atvinnustig- ið hér einfaldlega ágætt miðað við hvað það er í heimalandi þeirra. Atvinnuleysi í ríkjum OECD mælist nú 8,6% en 9,7% á evrusvæðinu. Hið mikla viðvarandi atvinnuleysi ESB-þjóðanna vegur þungt á þeirri vogarskál sem fær mig til að telja hagsmunum íslensku þjóðarinnar betur borgið utan ESB en innan. Aldrei skulum við láta ESB-sinna eða leiðtoga ESB- landanna sannfæra okkur um að 9,7% atvinnuleysi sé eðlileg og við- varandi staðreynd fyrir Íslendinga. Er 9,7% atvinnuleysi viðunandi? Eftir Unni Brá Konráðsdóttur » Aldrei skulum við láta ESB-sinna eða leiðtoga ESB-landa sannfæra okkur um að 9,7% atvinnuleysi sé eðlileg og viðvarandi staðreynd fyrir Íslend- inga. Unnur Brá Konráðsdóttir Höfundur er þingmaður. Mikið úrval erlendra bóka Lækjargata 2a 101 R. opið 9.00 - 22.00 alla daga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.